Morgunblaðið - 29.05.2005, Qupperneq 24
24 B SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Styrkir
Menntamálaráðuneytið
Auglýsing
um styrki vegna miðlunar
menningarefnis
á landsbyggðinni
Samkvæmt samkomulagi menntamálaráðu-
neytis og iðnaðarráðuneytis hefur verið
ákveðið að veita styrki til verkefna, sem nýta
upplýsingatækni og Netið til að auka aðgengi
almennings að menningararfi þjóðarinnar.
Styrkir verða veittir til menningarstofnana eða
annarra aðila, sem standa fyrir skipulagðri
menningarstarfsemi á landsbyggðinni.
Verkefni sem fela í sér einhverja af eftirtöldum
þáttum eiga möguleika á styrk:
Birting og miðlun upplýsinga, heimilda,
fróðleiks og margmiðlunarefnis á Netinu.
Samstarf menningarstofnana í nýtingu upp-
lýsingatækni til að auka aðgengi almenn-
ings að menningararfinum
Tölvutæka skráningu upplýsinga og heim-
ildasafna til birtingar á neti.
Leitað er eftir hugmyndaríkum verkefnum
sem tengjast tilteknum svæðum á lands-
byggðinni eða tengjast menningarlífi þeirra
á einhvern hátt. Nánari upplýsingar um skil-
yrði fyrir umsóknum og umsóknareyðublað
er að finna á vefslóðinni http://
menntamalaraduneyti.is/afgreidsla/sjodir-
og-eydublod/
Umsóknarfrestur er til 27. júní og umsókn-
um skal skilað til menntamálaráðuneytis,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið, 29. maí 2005.
menntamalaraduneyti.is
Íbúð í Árósum
Íbúð til leigu í Árósum, Danmörku, frá 10.6-
2.9 2005. Við skóg/strönd og göngufjarlægð
frá miðbæ. Uppl. í síma 0045 86 13 37 17
(Gunnþóra) eða 562 2294 (Margrét).
Söluturn til leigu
Vegna sérstakra ástæðna er til leigu
mjög góður söluturn í austurborginni.
Lottó, vídeó, grill, ís, sælgæti og fleira.
Góð staðsetning í góðu hverfi. Upplýsingar
aðeins veittar áhugasömum í síma 862 8128.
Kennsla
Nýiskólinn ínorðlingaholti
Stefna skólans hefur ekki verið sett
fram enda er mikilvægt að hún sé unnin
í sameiningu af þeim sem standa að
skólanum, starfsfólki, nemendum,
foreldrum og fræðsluyfirvöldum. Sú
vinna bíður haustsins en þó er ljóst að í
starfi hins nýja skóla verður lögð sér-
stök áhersla á vellíðan nemenda,
einstaklingsmiðaða starfshætti,
samvinnunám, námsval, skóla án að-
greiningar, samkennslu árganga og mikla
samvinnu starfsfólks. Gert er ráð fyrir
því að skólinn verði í nánum tengslum
við samfélagið sem hann er hluti af, m.a.
með öflugu samstarfi við foreldra.
Starf skólans mun grundvallast á því
lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli
búin námsskilyrði svo hann megi, á eigin
forsendum, þroskast og dafna og út-
skrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður,
sterkur og ekki síst lífsglaður
einstaklingur.
Í ágúst 2005 hefur göngu sína nýr skóli í
Norðlingaholti í Reykjavík. Gert er ráð
fyrir því að skólinn verði fullbúinn heild-
stæður grunnskóli fyrir 300 – 400
nemendur í 1. – 10. bekk. Fyrsta starfsár
skólans verða nemendur í 1. – 6. bekk í
skólanum og verður hann starfræktur, til
að byrja með, í skálum sem reistir verða í
útjaðri væntanlegrar skólalóðar við Árvað.
Foreldrar eru hvattir til að innrita
börn sín sem allra fyrst og er hægt
að gera það á heimasíðu skólans
http://www.nordlingaskoli.is eða
með því að senda netpóst til skóla-
stjóra á netfangið sif@skolahjalp.is.
Einnig er hægt að hafa samband við
Hafdísi Gísladóttur í síma 535-5000
eða með netpósti
hafdisg@grunnskolar.is.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri,
Sif Vígþórsdóttir, í síma 664-8445.
Innritun
nemenda
IÐNSKÓLINN Í HAFNARFIRÐI,
Flatahrauni 12, 220 Hafnarfirði,
sími 585 3600, fax 585 3601.
www.idnskolinn.is
Innritun á haustönn 2005
Allra síðustu innritunardagar eldri nemenda
sem óska eftir skólavist á haustönn eru mánu-
dagurinn 30. og þriðjudagurinn 31. maí.
Innritun nýnema sem eru að ljúka grunnskóla-
prófi í vor fer fram í grunnskólunum sam-
kvæmt auglýsingu menntamálaráðuneytisins
og lýkur 14. júní.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef skól-
ans www.idnskolinn.is.
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 9.00 til 16.00,
sími 585 3600.
Skólameistari.
Til leigu
Skólaslit
Skólaslit og afhending einkunna verða í Kirkju-
hvoli mánudaginn 30. maí kl. 17.30.
Skólastjóri.
Glæsilegt, vel innréttað
skrifstofuhúsnæði til leigu á annarri
hæð í lyftuhúsi að Bæjarhrauni 2
Húsnæðið er 96 m² auk sameignar og skiptist í
4 skrifstofur (eða 3 skrifstofur og fundarherbergi),
rúmgóða móttöku, geymslu og kaffistofu
Nánari upplýsingar gefur Friðrik hjá Meistarafélagi
iðnaðarmanna í Hafnarfirði
Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði
Bæjarhrauni 2 • 555 2666 • mih@mmedia.is
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Félagslíf
Árbók Ferðafélags Íslands er
komin út. Munið eftir að greiða
árgjaldið kr. 3900 og fáið bókina
senda heim. Hjörleifur Gutt-
ormsson skrifar Árbókina 2005
um norðanverða Austfirði.
SAMKOMA
í dag sunnudaginn 29. maí kl.
16.30 í safnaðarheimili Grensás-
kirkju. Thomas Jan Stamkiewicz
predikar.
Brauðsbroting
Mikil lofgjörð og fyrirbænir.
Sameiginlegur kvöldmatur eftir
samkomu.
Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Upplýsingar í síma 564 4303.
Vineyard christian
fellowship international.
Samkoma í dag kl. 16.30
Gunnar Þorsteinsson predikar.
Þriðjud. Samkoma kl. 20.00
Miðvikud. Bænastund kl. 20.00
Fimmtud. Samkoma kl. 20.00,
Laugard. Samkoma kl. 20.00.
www.krossinn.is .
Samkoma kl. 11:00.
með Hafdísi Traustadóttur pían-
óleikara, brauðsbrotning á eftir.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðum. Vörður Leví Trausta-
son.
Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng.
Aldursskipt barnakirkja á meðan
samkomu stendur.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
filadelfia@gospel.is
www.gospel.is
Ath! Hægt er að horfa á beina
útsendingu á www.gospel.is eða
hlusta á útvarp Lindina fm 102,9.
Kl. 20.00 samkoma.
Hallelújakórinn syngur.
Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
Fossaleyni 14, Grafarvogi.
Vorferð kirkjunnar verður farin í
Viðey kl. 11.00 frá Sundahöfn.
Samkoma kl. 20.00 í umsjá unga
fólksins. Böðvar Ingi Böðvars-
son og Jóhann Awel Schram
Reed tala. Þáttur kirkjunnar „Um
trúna og tilveruna“ er sýndur á
Ómega kl. 14.00.
Lóðir
Óskum eftir lóð
undir einbýli eða húsi í lélegu ástandi í jaðar-
byggð á höfuðborgarsvæðinu.Vinsamlegast
sendið inn svör á netfang: r16@internet.is
eða í síma 566 7413 á kvöldin.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Raðauglýsingar
sími 569 1100