Morgunblaðið - 30.05.2005, Page 35

Morgunblaðið - 30.05.2005, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2005 F 35 VEITUM ALHLIÐA FASTEIGNAÞJÓNUSTU       Mjög góð 2ja herbergja ca 53 fm íbúð á 2. hæð í fjölbýli sem stað- sett er fremst við Boðagranda með útsýni yfir Flóann. Laus fljót- lega. V. 13,3 m. 6624 BOÐAGRANDI - LAUS Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð 86 fm auk sér geymslu í kjallara. Góðar suður svalir - útsýni til norðurs. Í búðin er til afhendingar strax. V. 16,5 m. 6804 EFSTIHJALLI - ÚTSÝNI Sérlega vel staðsett ca 280 fm einbýli á tveimur hæðum. Nú er sér 3ja herb. íbúð á neðri hæð og möguleiki að koma þar fyrir annarri lítilli íbúð eða hafa 8 til 9 svefnherbergi í allt í öllu húsinu. Veglegar stofur á efri hæð og þar er frábært útsýni. Innbyggður 30 fm bílskúr. Stór lóð gefur möguleika. Stutt niður í fjöru við Kópavoginn. Út- sýni yfir Álftanes út á Flóann. 6728 SUNNUBRAUT - KÓPAVOGI Tröllateigur 20-24 er þriggja og fjögurra hæða fjöleignarhús með alls 34 íbúð- um. Aðalaðkoma hússins er um tvo sjálfstæða stigaganga sem opnast út á svalaganga. Hvor stigagangur þjónar 17 íbúðum. Þessar íbúðir eru glæsilegar og vel útbúnar 3ja herbergja íbúðir í þessu viðhaldslitla og fallega fjölbýlishúsi. Íbúðirnar, sem eru um 120 fm að stærð auk stæðis í bílskýli, verða til afhend- ingar í júlí, fullbúnar með gólfefnum og innfelldri lýsingu í loftum. 6303 TRÖLLATEIGUR - SÍÐUSTU ÍBÚÐIRNAR Mjög rúmgóð íbúð á 1. hæð, samtals ca 123 fm. Stór stofa og tvö stór svefnherbergi á hæðinni og svo herbergi í risi með að- gangi að snyrtingu. Mikil sam- eign. 6726 ESKIHLÍÐ - LAUS Vorum að fá í sölu 12 efri og neðri sérhæðir í 6 tvíbílishúsum á góð- um stað í Norðlingaholti. Hæðirn- ar, sem eru 127,5 fm að stærð auk bílskúrs, eru með 3 svefnher- bergjum og stórum stofum ásamt góðum sérafnotareiti á lóð sem fylgir hverri íbúð. Bílskúrar fylgja efri hæðum. Húsunum verður skilað rétt tæplega tilbún- um til innréttingar að innan en fullbúnum að utan með frágenginni lóð. Sjá glæsilegan kynningarvef á www.borgir.is/byggben. 6802 KRÓKAVAÐ - SÉRHÆÐIR Glæsilegar neðri og efri sérhæðir við Kólguvað í Norðlingaholti. Hæðirnar skiptast í anddyri, gang, 3 svefnherbergi, þvottahús, geymslu, baðherbergi, eldhús og stofu ásamt stórum sérafnotareiti. Húsin eru forsteypt tveggja hæða tvíbýlishús. Að utan eru hús múrhúðuð og steinuð í ljósum lit. Afhendast tæplega tilbúin til innréttingar að innan en fullbúin að utan með frágenginni lóð. Sjá glæsilegan kynningarvef á www.borgir.is/byggben KÓLKUVAÐ - SÉRHÆÐIR Komnar eru í sölu frábærar eignarlóðir í Akrahverfi. Hverfið er vel staðsett á grónu svæði á besta stað í Garðabæ. Þetta eru góðar byggingarlóðir á frjósömu svæði mjög miðsvæðis á höfuð- borgarsvæðinu, með fljótfarnar umferðaræðar til allra átta. Um er að ræða 23 lóðir í síðari hluta 1. áfanga. Nánari upplýsingar um lóðirnar, stærðir þeirra og nýtingu, og einnig upplýsingar um hvernig væntanlegir bjóðendur bera sig að við tilboðs- gerð má nálgast á skrifstofu Borga. 6762 AKRAHVERFI Í GARÐABÆ GULLMOLINN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU 3 ÍBÚÐIR EFTIR Þórhildur Sandholt lögfr. og lögg. fast.sali Gsm 898 8545 Gísli Sigurbjörnsson sölumaður FAX 568 3231 SUÐURGATA Sérstök eign í hjarta borgarinnar til sölu. Járnklætt timburhús á steyptum kjallara. Húsið er kjallari, hæð og ris. Tvær stofur, 5-6 svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Húsið hefur haldið sinni upprunalegu mynd. Húsið stendur á eignarlóð. Vantar allar gerðir og stærðir eigna á söluskrá Farsæl og traust þjónusta í 20 ár GRENIMELUR Gullfalleg 220,9 fm mikið endurnýjuð sérhæð og bílskúr. Eignin skiptist í 175,4 fm íbúð með sérinngangi, hæð og ris og 45,5 fm bílskúr. Á hæðinni er gott fataherbergi frá stigapalli, rúmgott hol, tvær samliggjandi stofur, arinn í dagstofu, glæsilegt eldhús opið að borðstofu með nýrri innréttingu, gas- eldavél og háfi, svalir frá eldhúsi, hjónaherbergi með nýjum fataskápum, lítið vinnuherbergi og baðherbergi með baðkari. Á stiga er steinteppi og gólf- dúkur á hæðinni. Í risi er rúmgott sjón- varpshol, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Bílskúrinn er 45,5 fm á tveimur hæðum. Góð eign á eftirsóttum stað í vesturbæ. KLEPPSVEGUR 4ra herb. íbúð á 4. hæð með fallegu útsýni. Skiptist í rúmgóða stofu með suðursvölum, 3 svefnherbergi, eldhús og baðherb. Sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla i kjallara. Laus íbúð. SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR Mjög góð og björt einstaklingsíbúð skráð 52,7 fm á 2. hæð í vel staðsettu litlu fjölbýli í miðborginni. Stofa og eld- hús út í eitt, baðherb. með sturtu og þvottaherb. Verð 11,8 m. MIÐFELLSLAND V/ ÞINGVALLAVATN Fallegur 46,7 fm sumarbústaður á 5000 fm eignarlóð í landi Miðfells við Þingvallavatn ásamt lítilli verkfæra- geymslu. Skiptist í stofu og eldhús út í eitt, tvö svefnherbergi og auk þess svefnloft og baðherbergi með sturt- uklefa. Innbú fylgir. Góð verönd og fal- legt útsýni til vatnsins. VAÐNES GRÍMSNESI Fallegur 49,5 fm sumarbústaður ásamt 10,2 fm geymslu á 13.900 fm eignar- lóð í landi Vaðness í Grímsnesi. Skipt- ist í stofu opin að eldhúsi, 3 svefnher- bergi, baðherbergi með sturtu. Góð verönd og framan við hana er heitur pottur. Vinsæl og eftirsótt staðsetning og stutt í alls konar afþreyjingu og þjónustu. EINBÝLISHÚS HÆÐIR 4RA HERBERGJA EINSTAKLINGSÍBÚÐIR SUMARHÚS Vaxtabætur Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir koma til greina að endurskoða vaxtabótakerfið frá grunni, en Efna- hags- og framfarastofnunin (OECD) telur í nýbirtu yfirliti sínu um efna- hagsmál hér á landi að draga ætti úr útgjöldum skattkerfisins vegna vaxtabóta. Í fjárlögum í ár er gert ráð fyrir, að útgjöld vegna vaxtabóta verði 4,9 milljarðar kr., en sú áætlun er háð mikilli óvissu, vegna innkomu bankanna á húsnæðislánamarkaðinn á síðasta ári og stóraukinna lána til íbúðakaupa í kjölfarið. Eskifjörður Það styttist í að fyrstu íbúðarhúsin á Eskifirði verði hituð upp með hita- veituvatni úr nýrri borholu í botni Eskifjarðar. Um 100 hús verða tengd í júní og stefnt að því að þau hús, sem eftir eru, verði tengd á árinu. Bretland Brezk stjórnvöld undirbúa að hrinda í framkvæmd áætlun, sem miðar að því að gera fyrstuíbúðarkaupendum auðveldara að eignast íbúð. Sam- kvæmt áætluninni leggja kaupendur út fyrir um helmingi íbúðarverðs á hinum almenna markaði en stjórn- völd og lánastofnun viðkomandi sjá um fjármögnun á hinum helm- ingnum og eiga íbúðina á móti kaup- endunum. Engu að síður munu kaupendur geta selt íbúðir sínar á frjálsum markaði, þegar þeim hent- ar. Húsasmiðir Á síðasta stjórnarfundi Þingiðnar, félags iðnaðarmanna í Þingeyj- arsýslum, var samþykkt inn- göngubeiðni frá Eydísi Kristjáns- dóttur húsasmið. Fyrir í félaginu var ein kona, Svandís Sverrisdóttir, einnig húsasmiður. Konum í félaginu fjölgaði því um 100%. Félagsmenn eru tæplega 100 og þrátt fyrir að konur séu aðeins tvær í félaginu gefa þær körlunum ekkert eftir enda miklar kjarnakonur. Þjónustusvæði Ákveðið hefur verið að byggja upp þjónustusvæði aldraðra í Reykja- nesbæ sem einkaframkvæmd. Svæð- ið verður í Njarðvík, í nágrenni Stapans og Samkaupa, þar sem íþróttavellir Ungmennafélags Njarðvíkur eru nú. Byggt verður hjúkrunarheimili, öryggisíbúðir, þjónustumiðstöð fyrir aldraða og al- mennt íbúðarhúsnæði fyrir eldri borgara. Mið-Austurland Frá því að ákveðið var að reisa álver á Reyðarfirði hefur fólki fjölgað töluvert á Mið-Austurlandi og reikn- að með að fjölgunin verði allt að 3.000 manns á næstu misserum. Fasteignaverð hefur margfaldazt og fasteignamat í Fjarðabyggð hefur hækkað um 100% á tveimur árum. Þar og í Fljótsdalshéraði hafa verið skipulagðar 960 byggingarlóðir og 110 íbúðir þegar verið teknar í notk- un. Seltjarnarnes Öllum bæjarbúum Seltjarnarness á kosningaaldri verður gefinn kostur á að kjósa á milli tveggja mismunandi skipulagstillagna fyrir Hrólfs- skálamel og Suðurströnd 24. júní nk. Kosningin verður bindandi fyrir formlega deiliskipulagsgerð svæð- isins. FASTEIGNIR ÞETTA HELST … ÞEGAR hanna á garðinn er gott að hafa bak við eyrað að börnin stækka og þroskast hratt en þegar þau eru lítil getur verið gott að afmarka leiksvæði þeirra með girðingum sem síðan má fjarlægja þegar börnin eldast. Betra er að hafa lóðétta rimla í þessum girðingum (þau klifra síður í þeim) og hámarks- bil milli rimla í slíkum girðingum er 10 cm, 100 mm, ef það er meira er hætta á að þau geti fest höfuðið í þeim. Rimlagirðing

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.