Mánudagsblaðið - 18.02.1963, Page 1
Bla.6 fyrir alla
16. árgangur
Mánudagur 18. febrúar 1963
7. tölublað
Skipulag Reykjavíkur:
Ný miðborg—Flugvallarsvæðið
Gerir Daninn grín að landanum? — Endurskoðun nauðsynleg —
Undaníarið hefur verið hljótt um framtíðarskipulag Reykjavíkur. Eftir miklar umræður og bollalegg-
ingar hlóðum og á fjölmennum fundum, kom lausnarorðið, sem varð þess valdandi að allir okkar
ágætu skipulagsfræðingar drógu sig inn í skel: Danskur maður var fenginn til þess að kenna mör-
landanum hvernig ætti að skipuleggja höfuðborg íslands og þar með punktur og basta.
Áliti hins danska manns, sem sennilega hefur unnið verkið
eftir beztu samvizku og með það í huga, að hér væri verið
að byggja upp höfuðborg gamallar nýlendu. sem hefði stungið
af úr ríkjasambandinu við Danmörku, gerði sem eagt svo
rækilega grín að íslenzkum framfaramönnum að lengi mun í
minnum haft og eiu þó ýmis samskipti danekra og íslenzkra
harla brosleg frá sjónarhóli hlutlauss áhorfanda.
Halelúja-samkoma skipulagsmannanna
Það var mikið um dýrðir þegar sá danski skipulagsfræð-
ingur kom með „hina endanlegu lausn á skipulagsmálum
Reykjavíkur“ upp á vasann. Veizlur voru haldnar og ræður
fluttar og bæjarsjóður varð af með sjóð digran, til handa hin-
um erlenda sérfræðingi.
Blöð og útvarp lofsungu snilli og frábært hugmyndaflug
sem lýsti sér í tillögum hins erlenda skipulagsfræðings og
meira að segja íslenzkir arkitektar og verkfræðingar, sem eru
manna viðkvæmastir fyr'r réttmætri krítik, upphófu Halelúja-
söng hástemmdan: Hér voru sem sagt öll vandræði varðandi
skipulag úr sögunni, — Stór-Reykjavík skyldi blifa.
Nýju fötin keisarans
Varla var hirnn danski skipulagsmaður farinn úr landi með
laun sin hin ágætu, er einstaka maður, sem skoðaði tillögumar
fór að hafa orð á þvi, heimulega, að eitthvað væri bogið við
skipulagsuppdráttinn. Hér fór eins og í sögunni um nýju fötin
keisarans. að allir sem sáu, skildu í hvert óefni var komið, en
enginn þorði að kveða upp úr með sannleikann, af ótta við
að verða kallaður maður heimskur eða annað verra.
I stórum dráttum hljóðuðu tillögur hins danska manns á
þá lund, að Reykjavík skyldi byggja samfellt suður fyrir Hafn-
arfjörð og upp að Esju, Reykjavikurflugvöllur mætti vera á
sínum stað en bærinn þaninn út, til kostnaðarauka og erfiðleika
fyrir þessa vesalings borg, sem ekki hefur getað annað götu-
lögnum, samhliða byggingu íbúðarhverfa og er þó ástandið
hátíð hér, borið saman við Kópavog og Hafnarfjörð og önnur
þorp, sem hefðu lent innan hins nýja stórbæjar.
Það sem fyrst opnaði augu manna fyrir vitleysunni, var
að Dar.inn hafði af einhverjum ástæðum hagað skipulagningu
sinni þannig. að t.d. heil verksmiðjuhverfi voru áætluð þar, sem
bæjarbúar voru nýbúnir að byggja íbúðarhverfi. íbúðarhverfi
voru áætluð þar sem nú er verksmiðjuhverfi, eins og t.d. við
Suðurlandsbrautina o. fl.
iélegur undirbúningur —
ðnógur upplýsingar
Þegar hér var komið og mönnum var ljóst allflestum, að
nýju fötin keisarars voru líkt og í sögunni, algjört plat. þá var
tillögunum hinum dönsku stungið niður í skúffu og hefur líti'ð
verið á þær minnst síðan.
Talið er, 'að ýmsar af villum tillagnanna, stafi frá ónógum
undirbúningi og að skipulagsmanninum hafi ekki verið veittar
nægar upplýsingar, eins og t.d. um það hvar þegar væri búið
að byggja, en vitanlega hefði hverjum meðalmanni í star.-iu
verið í lcfa lagið a’ð verð? sér úti um það.
Fyira skipulag raunhæft
Fyrir allmörgum árum, hafði þáverandi skipulagsstjóri
Reykjavíkur gert skipulagsupdráttu af Reykjavík og umhverfi,
og áætlun um þróun borgarinnar og vöxt næstu áratugi.
1 þessum tillögum, sem era raunhæfar í flestu og hefðu
betur kcmið til framkvæmda, er gert ráð fyrir að Reykjavíkur-
flugvöllur verði á brott, liggur enda á einum verðmætasta stað
í bænum og er til ama cg hættu fyrir íbúana. Þá gerir tilvera
hans það að verkum, að bærixm þenst óeðlilega út, sem gerir
allar framkvæmdir dýrari og leggur óeðlilega útsvarsbyrði á
herðar bæjarbúa,
Skipulagsstjóri sá, sem samdi þessar áætlanir, þekkti allar
aðstæður og hafði velferð höfuðborgarinnar í huga. gagnstætt
því sem virðist hafa verið um hinn danska manni, hvers álit
er byggt á skýjaborgum.
dSTýr miðbær skyldi byggður á flugvallarstæðinu og var svo
ráð fyrir gert, að þriðjungur skyldi vera fyrir íbúðarhús og
Franihald á 3. síðu.
Hneyksli hjá Við-
tækjaverzluninni!
Það er alkunna, að á hafnar-
bakkanum í Reykjavík hafa
iegið hátt á annáð ár, 150 út-
varpstæki, sem voru pöntuð
hingað til lands af Viðtækja-
verzlun ríkisins. Þau hafa ekki
verið leyst út, og virðist enginn
áhugi vera fyrir því, enida eru
þetta gömul tæki, sem enginn
myndi kaupa. En hver stendur
fyrir því. að slíkir hlutir eru
keyptir hingað ?
Það hefur löngum viljað loða
við rikisfyrirtæki, að rekstur
þeirra væri heldur bágur, og
mun Viðtækjaverzlun rikisins
ekki vera nein undantekning.
Forstjóri þeirrar stofnunar
keypti fyrrnefnd tæki erlend-
is, þrátt fyrir að þetta eru
gömul rafhlöðutæki, sem tölu-
vert voru notuð í sveitum fyrir
10—15 áram, en ekki myndi
hvarfla að neinum að kaupa
þau nú.
Þá hermir sagani, að hann
hafi fyrir nokkra keypt
hingað 50 tæki frá verksmiðju
í útlandinu. Þegar tæki þessi
komu hingað, rejmdist engin
langbylgja vera á þeim, og
voru þau þvi ónothæf. Eftn*
töluvert karp, fékkst forstjór-
inn til að skila þeim aftur.
Viðtækjaverzlun rikisinis á
stóran vörulager, sem er met-
inai á annan tug milljóna. Af
þeim tækjum og hlutum, sem
þar eru, mun aðeins nokkur
hluti vera nothæfur í dag, og
því matið á eignunum alls ekki
raunhæft. Töluverður hluti af
þessu, eru varahiutir í tæki,
sem löngu eru komini úr notk-
un. eða beiniínis tæki, sem alls
ekki yrðu keypt, væru þau sett
á hinn almenna markað.
Viðtækjaverzlun ríkisins hef-
ur hér algjöra einokunarað-
aðstöðu á innflutningi og kaup
um útvarpstækja, grammófóna
og sjónvarpa. Fyrirtæki sem
vilja kaupa inn eftir eigin
smekk, verða að fá til þess
leyfi Viðtækjaverzlunarinnar,
Framhald á 6. síðu.
Bæjarrekstur
á Sauðárkróki
Á Sauðárkróki eru tvö frysti
hús, og er annað í eign bæj-
arfélagsins að 4/5. hlutum. Hef
ur reksturinm á því verið með
miklum eindæmum undanfarin
ár, og óstjórnin takarkalaus.
Nú er svo komið, að frystihús
þetta, sem nefnist Fiskiver,
skuldar helmingi meira en eig
ur þess eru metnar á.
Er það á Sauðárkróki eins
og annars staðar, að þegar póli
tísk öfl eiga að ráða í sam-
bandi við slík fyrirtæki. þá fer
allt í handaskolum. 1 þessu til-
felli hefur pólitískur flokkur
troðið í störf gæðingum sínum,
sem ekkert vit hafa á rekstrin-
um, og tapið svo komið niður
á bæjarfélaginu.
Segja kunnugir menn, að
frystihúsið skuldi yfir 20 millj-
ónir króna, cg var ástandið orð
ið svo slæmt, að ríkisstjórnin
greip til sinna ráða og skipaði
nefnd til að kanna málið og
finna ráð til úrbóta. Nefnd
þessi, eða menn úr henni, hafa
verið á Sauðárkróki, og mun
þeim hafa þótt aðkoman ljót.
Hefur sú hugmynd komið
fram, að reisa þarna síldar-
bræðslu, en tilheyrandi frysti-
húsinu er beinamjölsverk-
smiðja. Hefur verið rætt
2000 mála verksmiðju, en slíkt
fyrirtæki myndi ekki kosta und
ir 20 milljónir. Ef þetta væri
gert, eru þama komnar yfir 40
milljónir, sem emgum getur
annað dottið í hug, en að rík-
ið þyrfti að greiða.
r Islenzkar flugfreyjur - No. 8
-<t>
Á birgðastofu Loftleiða á flugvellinum Iiittum við ungfrú Ernu Haraldsdóttur. en þarna geym-
ir félagið allar þær góðu vörur, sem tollaðar eru, nema um borð í flugvélunum, og þessa*
glæsile.gu vörur bjóða flugfreyjumar farþegum upp á, meðan vélin er í loftinu. Erna er dóttir
um Haralds Gíslasonar, framkvæmdastjóra og Magneu Þórarinsdóttur konu hans, er fædd í Vest-
mannaeyjum, en orðin Reykvíkingur. Hún útskrifaðist úr Gagnfræðaskóla Austurbæjar, en
dvaldist bæði í Englandi og Danmörku um tíma, og heldur mest upp á London af öllum þeim
borgum, sem Loftleiðir fljúga til. Erna, sem er rúmlega tvitug, ljóshærð og lagleg, eins og
sjá má, hefur alltaf haft áhuga á íþróttum, var í Ármanni fyrir nokkrum árum, og stundaði
útiíþróttir t d. skautalistina. Hún hefur einnig mikinn áhuga á leiklist, sér hverja leiksýningu,
þegar annir leyfa, þótt enn liafi hún ekki fcngið leiksviðshakteríuna, eins og margar aðrar
ungar stúlkur. Erna byrjaði flugfreyjustarfið í apríl s.I., en liafði unnið áður við símavörzln
hjá félaginu. (l iósmynd: Birgir Thomsen, Ingólfsstræti 4, Reykjavílc).
4