Morgunblaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2005 21
MINNSTAÐUR
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Calsium eap
Kalk sem nýtist
Safnið er opið í sumar
Árleg flughelgi 25. og 26. júní
Upplýsingar á www.flugsafn.is
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Hallormsstaður | Skógardagurinn mikli
verður haldinn á Fljótsdalshéraði á morg-
un, laugardag, og þá verður haldið upp á að
35 ár eru liðin frá því bændaskógrækt hóf
innreið sína á Hérað.
Guðmundur Ólafsson, framkvæmdastjóri
Héraðs- og Austurlandsskóga, segir að
fyrstu plönturnar í svokallaðri Fljóts-
dalsáætlun hafi verið gróðursettar í Víði-
vallaskógi í Fljótsdal þann 25. júní 1970.
Síðan hafi skógræktariðnaðurinn vaxið og
dafnað á svæðinu og sé nú svo komið að þar
er ekki aðeins að finna Íslands stærsta og
þekktasta skóg, Hallormsstaðaskóg, heldur
jafnframt eitt mesta og samfelldasta skóg-
ræktarsvæði landsins sem og gróskumikla
starfsemi og iðnað sem á því byggist.
Á þessum tímamótum hefur verið ákveðið
að blása til mikillar skógarhátíðar í trjá-
safninu Hallormsstaðaskógi. Í samstarfi við
Landsbanka Íslands ætla Félag skógarbænda á
Héraði, Héraðsskógar, Austurlandsskógar og
Skógrækt ríkisins að kynna þá fjölbreyttu starf-
semi sem þessir aðilar standa fyrir á Héraði.
Boðið verður upp á skemmtidagskrá fyrir alla
fjölskylduna og skógarmenn keppa í ýmsum
greinum sem tengjast starfinu. Þá verður
keppt í skógarhlaupi sem er um 15 km
hlaup í fögru umhverfi Hallorms-
staðaskógar.
Guðmundur segir markmiðið að
Skógardagurinn verði að árvissum við-
burði, metnaður skógarmanna sé mikill og
stefnt að stórhátíð með fjölda gesta og
miklu fjöri.
Meðal hápunkta í hátíðardagskrá má
nefna sýningu Komedíuleikhússins á Gísla
sögu Súrssonar sem farið hefur sigurför
um landið og er nú flutt undir berum
himni í fögru umhverfi skógarins. Þá
verður keppt um Íslandsmeistaratitil í
skógarhöggi sem er sjónræn og fjörug
keppni þar sem keppt er í fellingu, af-
kvistun og fleira tengdu umhirðu skógar-
ins. Gestum verður jafnframt boðið að
smakka á heilgrilluðu nauti sem grillað
verður á landsins stærsta grilli. Þess má geta að
í ár á Hallormsstaðarskógur 100 ára afmæli og
verður haldið upp á það síðar á árinu.
Skógardagurinn mikli haldinn á Héraði
Skógarmenn til ýmiss vísir Eitt af uppátækjum skógræktar-
manna gæti verið að spila á keðjusagir.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Bifröst | Nemendur úr Viðskiptaháskólanum á
Bifröst munu koma að skipulagningu og fram-
kvæmd viðskiptahliðar að minnsta kosti einnar
leiksýningar nemendaleikhússins næsta vetur.
Er það ávöxtur samstarfs sem hefur verið að
þróast milli félagsvísinda- og hagfræðideildar
Viðskiptaháskólans og leiklistardeildar Listahá-
skóla Íslands og hefur nú verið útfært í sér-
stökum samstarfssamningi.
Samtöl milli stjórnenda og kennara skólanna
tveggja hófust eftir að Magnús Árni Magn-
ússon, deildarforseti félagsvísinda- og hag-
fræðideildarinnar á Bifröst, var fenginn til að
halda erindi á leiklistarþingi sem fjallaði um
viðskipti og leiklist. Sjálfur hefur hann sér-
stakan áhuga á málefninu enda stundaði hann
leiklistarnám í tvö ár, áður en hann sneri sér að
öðru, eins og hann orðar það sjálfur.
Síðastliðinn vetur kom hópur þriðja árs nema
úr leiklistardeildinni upp á Bifröst og vann að
verkefnum um eina helgi með jafn stórum hópi
nema á Bifröst. „Út úr þessu komu margar
skemmtilegar hugmyndir og ákveðin tengsl
mynduðust milli nemendanna,“ segir Magnús
Árni. Nemendahópnum á Bifröst var boðið að
taka þátt í markaðs- og rekstrarþætti uppsetn-
inga í nemendaleikhúsinu næsta vetur og hópur
leiklistarnema fer einnig upp á Bifröst eina
helgi næsta vetur.
„Þetta gefur nemendum sem hafa áhuga
tækifæri til að kynnast sviðslistageiranum,“
segir Magnús Árni. Hann segir að það sé heil-
mikið og flókið verkefni að setja upp leiksýn-
ingu og geti verið skemmtileg æfing í verk-
efnastjórnun hjá fólki sem er að læra viðskipti
og rekstur.
Viðskiptanemar setja upp leiksýningu
LANDIÐ
Kringlumýrarbraut | Umfangs-
miklar framkvæmdir eiga sér nú
stað á Kringlumýrarbraut og gatna-
mótum Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar. Hafa framkvæmd-
irnar valdið nokkurri röskun og
óþægindum fyrir gangandi vegfar-
endur og hjólreiðamenn. Þannig
eru skilti sem beina allri göngu- og
hjólreiðaumferð aftur yfir Miklu-
braut og gegnum undirgöng, eigi
fólk erindi á Kringlusvæðið.
Ófáir vegfarendur hafa þó hunds-
að þessar ráðleggingar og hefur
sést til hjólreiðamanna, unglinga,
fjölskyldufólks og eldri borgara
reyna að klöngrast yfir ófæruna til
að stytta sér leið. Það virðist því
greinilegt að hjáleiðin hentar ekki
öllum.Morgunblaðið/Eyþór
Óþægindi fyrir
göngu- og hjólreiðafólk
Seltjarnarnes | Iðkendur hjóla-
bretta- og línuskautaíþrótta fengu
langþráða aðstöðu til æfinga á Sel-
tjarnarnesi á dögunum þegar nýr
hjólabrettagarður var opnaður við
Suðurströnd. Jónmundur Guð-
marsson bæjarstjóri opnaði völlinn
ásamt hópi iðkenda sem vart gátu
beðið eftir að völlurinn væri tekinn
í notkun. Helstu notendur vallarins
eru unglingar og ungmenni og við
opnunina mátti heyra margar
ánægjuraddir yfir að fá aðstöðu
sem þessa í bæjarfélagið.
Á síðasta ári gengu tveir áhuga-
menn um hjólabrettaíþróttir á fund
bæjarstjórans og afhentu honum
undirskriftalista til stuðnings hjóla-
brettasvæði á Seltjarnarnesi. Bæj-
arstjóri tók vel í hugmyndina og
hefur afraksturinn nú litið dagsins
ljós.
Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri vígir nýja Hjólabrettavöllinn.
Hjólabretta-
völlur í notkun
BORGARSTJÓRN Reykjavík-
ur hélt sinn síðasta fund á
þessu sumri sl. þriðjudag en
fundir borgarstjórnar eru jafn-
an felldir niður í tvo mánuði að
sumarlagi. Næsti fundur borg-
arstjórnar verður haldinn 6.
september nk. Vikulegir fundir
borgarráðs verða áfram á
fimmtudögum í sumar.
Næsti fundur
borgarstjórnar
6. september
Laugardalur | Starfsfólk Múla-
lundar heimsótti Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn í árlegri sumar-
ferð sinni í gær. Þar grillaði starfs-
fólkið hamborgara og átti saman
góðan hádegisverð. Undanfarin ár
hefur Heiðmörkin freistað mjög,
en nú var breytt út af vananum og
litið í Laugardalinn til að stytta
ferðatímann og lengja samveruna.
Í garðinum var farið í tæki við
hæfi hvers og eins og starfsmenn
skoðuðu sig um. Sumir höfðu aldr-
ei komið áður í garðinn og velti
Helgi Kristófersson, framkvæmda-
stjóri Múlalundar, því fyrir sér
hvort mögulega væri of stutt fyrir
marga í Laugardalinn og þeim
þætti þá meira spennandi að fara
lengra. „En fyrir suma starfsmenn
Múlalundar eru stuttar ferðir á við
langar hjá öðrum,“ segir Helgi og
bætir við að ferðir sem þessar, þar
sem starfsmenn komast út á meðal
almennings, geri góða hluti fyrir
sjálfstraustið og almenna vellíðan.
Góður starfsandi
Hin árlega ferð starfsfólksins er
farin til að reka smiðshöggið á gott
vinnuár áður en framleiðslan lokar
í byrjun ágúst og farið er í frí.
„Söludeildin er þó að sjálfsögðu
opin en öll sérvinnsla liggur niðri
þar til í lok ágúst,“ segir Helgi og
bætir við að starfsfólkið vonist til
að hafa næg verkefni eftir sum-
arfrí.
Ólafur Jónas Sigurðsson, einn af
starfsmönnum Múlalundar, segir
frábært að komast með starfs-
félögum sínum í garðinn. „Það er
góð stemmning, maður er að sýna
sig og sjá aðra og skoða sig um,“
segir Ólafur, sem segir að helst
mætti gera þetta oftar yfir sum-
arið. „Þetta er alveg þrælmagnað
og góður andi í hópnum og góður
mórall á vinnustaðnum, þetta ger-
ist ekki betra.“
Sumargleði hjá Múlalundi
Morgunblaðið/Jim Smart
Þessir félagar tóku vel á því á kláfn-
um yfir litlu tjörnina í garðinum.
Þau Dagný Sverrisdóttir og
Ingvar Pétursson kunnu vel að
meta tilbreytinguna, veiting-
arnar og góða veðrið.