Morgunblaðið - 10.07.2005, Qupperneq 5
10.7.2005 | 5
6 Flugan
sú snuðrandi partískvísa, lét sig ekki vanta á
myndlistarviðburði í sveit og borg og snobb-
ar fyrir Odd Nerdrum, ásamt öðrum ...
8 Með fjallamennskuna
í blóðinu
Jökull Bergmann er með
ævintýrapróf upp á vas-
ann og stefnir nú á al-
þjóðlegt fjallaleiðsögu-
próf. Hann heitir eftir
Gljúfurárjökli á Trölla-
skaga.
10 Hjartað slær í takt við höggborinn
Auður Haralds ræðir um hugsanlega olíuleit
í 101, hinar drekkandi stéttir og fleira.
12 Mannkynið er stórkostlega skrýtið
Þórunn Lárusdóttir ætlaði að verða læknir
og viðurkenndi ekki leiklistaráhuga sinn fyrr
en um síðir. Hún æfir nú burðarhlutverkið
Sally Bowles í söngleiknum Kabarett, sem
bráðum fer á fjalirnar í hinu sögufræga
Gamla bíói í Reykjavík.
20 Mamma varaði mig við
Chuck Mack er fluttur aftur til
Íslands, eftir 50 ára fjarveru,
með líflega hönnun eftir sjálf-
an sig.
24 Stuttar nætur, langir
dagar
Þótt hreyfing virki auð-
veld, s.s. ganga og golf,
er nauðsynlegt að hita
upp og hafa meðferðis
orkuríkt nesti.
25 Lítið og nett og öflugt
Coolpix myndavél, kóreskur spilastokkur
og fleira úr frumskógi tækninnar.
26 Einsleitni eða fjölbreytni?
Togstreitan eykst milli nýja vínheimsins og
hins gamla. Nýverið var sýningin Vinexpo
haldin í Bordaux í Frakklandi.
28 Krossgáta
Kona rakka Sama lendir í snjókomu...?
Skilafrestur úrlausna rennur út á föstudag.
30 Pistill
Steinunn Ólína segir sára sögu heimilis-
hjálpar sinnar, sem komin er til Kaliforníu
frá El Salvador.
Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Valgerður Þ. Jónsdóttir, vjon@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins ISSN 1670-4428
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Þórunni
Lárusdóttur við Sundin í Reykjavík, 5. júlí 2005.
12
„Við erum alltaf
úti í ystu vegarbrún
með allt,“ segir
Auður Haralds.
L
jó
sm
yn
d:
K
ri
st
in
n
In
gv
ar
ss
on
„Sjáðu, hvað ég er kynþokkafull svona blóðlöt / en ekki
spennt upp í forsíðukennt ástand,“ segir í 27. erindi ljóða-
bókarinnar Vængjahurðin eftir Elísabetu Jökulsdóttur, þvert
á þá þjóðtrú að fólk sé þokkafyllst þegar það fettir sig og set-
ur upp förðunargrímu, ákveðinn svip, spennt bros, útpælt augnaráð. Ýmist til þess að fela persónuleik-
ann eða ýkja hann. Þórunn Lárusdóttir spennti sig ekki upp í neitt forsíðukennt ástand fyrir Tímaritið í
vikunni heldur fór hún bara í sína úlpu, skellti sér á sjávarklett og spjallaði við Kristin ljósmyndara með
hafið blátt í baksýn. Hún hefur alltaf hrifist af hafinu og af þeim sökum var umhverfið valið. Hún
greiddi sér sjálf og málaði, var ekki hrukkustraujuð eftir á og brosti bara þegar einhver benti á að hún
sæti nú eiginlega í keng. Einmitt af þessum sökum, hinu afslappaða viðhorfi, ljómar myndin af persónu-
leika og má því teljast vel heppnuð. Það er annars eitt að mæta í forsíðumyndatöku með fyrirvara og
fullu samþykki. Annað er að lenda þar án þess að vera gert viðvart. Það hafa Þórunn og margir aðrir úr
stétt sviðslistafólks fengið að reyna, t.a.m. vegna þess að eitthvað er talið fréttnæmt við sambönd þeirra,
húsakaup, sambandsslit, árshátíðir, sumarfrí og sundferðir. Oft er útkoman ekki annað en krydd í til-
veruna og að mati Þórunnar einungis fyndið að einhver skuli sjá fréttir í ekki-fréttum. En stundum er
gengið of langt. „Sjálf forðast ég eins og heitan eldinn að lesa þessi blöð enda hafa vinir mínir lent illa í
þeim. Ég hef ekki kviðið umfjöllun þeirra en þetta nýja blað veldur pínulitlum áhyggjum því það svífst
greinilega einskis,“ segir hún í tilefni umræðu síðustu vikna. Við þetta verður ekki bætt hér. Gamalt
húsráð er að hafa áfram trú á mennsku fólks, kvíða engu og vitna meira í Elísabetu Jökulsdóttur: „Og
þessi nótt sem við dveljum í / hún er björt, þingvallabjört.“ | sith@mbl.is
10.07.05
Íslenska þjóðarblómið holtasóley vex úti í móa en Ólöf Erla Bjarna-
dóttir leirlistarkona býr til Þjóðarblómin – í fleirtölu – og það úr
postulíni. Þjóðarblóm Ólafar Erlu eru þar að auki notuð til að raspa
hvítlauk og engifer. „Mér hefur alltaf fundist skemmtilegt að hafa
handgerða muni í eldhúsinu. Hugmyndin að Þjóðarblómunum fæddist
í umræðunni um „þjóðar-hitt og þetta“. Það var pínulítill rembingur í kringum þjóð-
arblómið, þessa hugmynd að velja eitt blóm úr. Mér fannst því upplagt að búa til mörg
og mismunandi þjóðarblóm til að undirstrika hvað þau eru mörg og að þau eiga öll
sama rétt á að vera þjóðarblóm. Ég vildi hafa þau fjölbreytt og að engin tvö væru al-
veg eins. Þau eiga líka að endurspegla þá fjölbreyttu mannlífsflóru sem þessi þjóð
samanstendur af,“ segir Ólöf Erla. Aftan á Þjóðarblómunum er hengi og því má festa
þau á vegginn milli þess sem þau eru í notkun. Blómin fást í Kirsuberjatrénu.
Þjóðarblómin | Ólöf Erla Bjarnadóttir
Ís
le
ns
k
hö
nn
un