Morgunblaðið - 10.07.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.07.2005, Blaðsíða 22
22 | 10.7.2005 ára og býr í Washington-borg. „Mamma kom hingað heim í fyrra, eftir töluvert hlé, og hitti þá alla gömlu vini sína og var í endalausum kaffiboðum. Hún hefur komið hingað nokkrum sinnum frá því við fluttum og finnst í hvert sinn að mik- ið hafi breyst.“ Og hvað fannst henni um þá ákvörðun þína að flytja allt í einu til Íslands? „Hún varaði mig við, sagði að það gæti tekið svolítið á taugarnar fyrir mig, til dæmis að bíða eftir að hjólin í bransanum færu að snúast. Og hún hafði að vissu leyti rétt fyrir sér. En hún dró samt alls ekki úr mér, þvert á móti.“ Þegar færi gefst ekur Chuck um þjóðvegi Íslands og finnst það eftirsókn- arverð upplifun. „Hér eru margir stórbrotnir staðir. Ég fór nýlega um Borg- arfjörð, keyrði upp í Skorradal og til baka um Hvalfjörð- inn. En ég á alveg eftir að fara um Vestfirðina og Austfirði, til dæmis, og hlakka til að láta verða af því. Ég bíð eftir því að dóttir mín sjái sér fært að koma í heim- sókn, til þess að geta farið með hana í almennilegan bíl- túr.“ Í Grafarvoginum býr Chuck með Guðrúnu Birgisdóttur, alþjóða- og kynning- arfulltrúa hugvísindadeildar Háskóla Íslands, og dóttur hennar Unni Helgu Briem. Varlega er spurt hvernig þau Guðrún hafi kynnst og svarið er alls ekki flókið. „Á dansleik í Iðnó. Þegar ég kom hingað til þess að eyða áramótunum, fyrir nokkrum árum, kynntist ég Guðrúnu. Við fórum að hittast, kynntumst bet- ur og skrifuðumst svo á. Það var ekki síst fyrir hennar tilstuðlan að ég ákvað að flytja hingað.“ Chuck segir að Guðrún hafi frá fyrstu stundu hvatt sig til þess að koma sér á framfæri, enda kunnug mikilvægi kynningarmála. „Þetta snýst samt ekki um frægðardrauma, heldur að koma hlutunum til notenda. Ytra vann ég mest að klæðskerasniðinni hönnun, ef svo má segja, að sértækum lausnum. Og geri reyndar enn, ef fólk vill,“ segir hann og bendir á vefsíðu sína www.chuck- mackdesign.com. „En iðnhönnun til fjöldaframleiðslu höfðar líka til mín því þannig getur maður talað til stórs hóps fólks. Það felst ákveðin umbun í því að koma á ókunnan stað og ganga þar fram á sína eigin hönnun, sem einhverjum hefur þótt ástæða til að eignast. Síðan ég flutti til Íslands hef ég eytt meira fé í vinnu mína en ég hef grætt, en það hlýtur að fara að snúast við.“ Hann kveður vinnubrögð sín ólík sumum öðrum hönnuðum að því leyti að hann geri ávallt módel í fullri stærð af hlutunum. „Sumir gera þrívíddarlíkan í tölvu, eða teikna tvívíðar myndir, en ég verð alltaf að sjá hlutinn sjálfan í þrívídd, hið sjónræna jafnvægi. Þannig er líka auðveldara að útskýra notkun hans fyrir öðrum.“ Vestra vann hann lengi í byggingariðnaði og vandist því þá að þurfa að leysa úr ýmsum smíðaverkefnum með hugmyndaauðgi og verksviti. Og eins og hann lýsir því á heimasíðu sinni fara gjarnan saman verksvit og ástríða, þegar verk er í undirbúningi: „Ég ráfa um eins og annars hugar prófessor á meðan vandamál þarfnast lausnar. Um leið og ég dett niður á lausnina æði ég af stað eins og brjálaður vísindamaður til að prófa hana.“ Hvar birtist helsti munurinn á daglegu lífi íslensku og bandarísku? „Menningarmunurinn er talsverður, og ég er smám saman að stilla mig inn á hann. Íslenskt samfélag er sér- stakt að ýmsu leyti og margt er hér hressandi – eins og til dæmis viðhorf til trúarinnar. Streitustuðullinn finnst mér hins vegar hærri í Bandaríkjunum,“ segir Chuck, sem hlýtur að vekja athygli þeirra sem telja Íslendinga stressinu ofurselda. „Jú, jú, hér er margt fólk afar virkt og framtakssamt, en þið takið til dæmis mun lengri frí og sumarleyfi. Í Bandaríkjunum er aldrei neinu lokað, allt er nánast opið allan sólarhringinn. Hér fara hins vegar allir út úr bænum um helgar til þess að komast í sum- arbústað, þeir hætta jafnvel fyrr á föstudögum. Í New York kemst fólk hvorki lönd né strönd – því það er að vinna frameftir.“ Chuck brosir, tekur þó fram að Íslendingar hafi hert sig í hinni svokölluðu neyslumenningu á síðustu misserum, hvort sem það sé nú kostur eða skaði. „Þeir eru líka að verða tengdari umheim- inum á margslungnari hátt, ein birtingarmynd þess eru fjárfestingar á al- þjóðavettvangi, sem mikið eru í fréttum.“ Hann á hér að sjálfsögðu ættingja úr móðurætt, sem hann hittir þegar færi gefast, en slær þó ekki slöku við í bílskúrnum. „Að útfæra hugmynd krefst mik- illar einbeitingar og hluti af öllu ferlinu er að lenda stundum í öngstræti. Auðvit- að er heimurinn fullur af hlutum en ég hef þá trú að ef maður skynjar þörf og mætir henni með sniðugu verki, þá sé alltaf pláss fyrir nýja hönnun.“ | sith@mbl.is Tölvuteikning af tillögu Chuck um minnisvarða um Tvíburaturnana, hringur á sjö steinsúlum. HUGMYNDIN KVIKNAÐI Í BÍLALEST C huck Mack var eini fulltrúi Íslandsí samkeppni um minnisvarða um árásirnar á Tvíburaturnana í New York 11. september 2001 og 26. febrúar 1993, en auglýst var eftir tillögum á al- þjóðavettvangi og úrslit kynnt í fyrra. Um þessar mundir er verið að vinna að út- færslu sigurtillögunnar, sem skiptar skoð- anir hafa verið um, en þátttakan í sam- keppninni er Chuck ofarlega í huga, enda lærdómsríkt ferli. „Eiginlega var algjör tilviljun að ég sog- aðist að þessu verkefni. Það hafði verið orðað við mig snemma að hugsa upp verk í þessa keppni, en mér fannst það einum of stórt og umfangsmikið. Svo var það einn daginn að ég sat fastur í umferð- aröngþveiti í New York, eftir að hafa slysast til þess að aka inn í borgina en ekki fram hjá henni, á leið minni til Bost- on. Þar sem ég sat í bílnum hafði ég næg- an tíma til að hugsa og sá fyrir mér þenn- an upphafna hring. Þegar auglýst var formlega eftir tillögum hvatti dóttir mín mig til þess að taka þátt,“ segir Chuck en bætir við að tillögurnar hafi þurft að mæta flóknum og ströngum reglum keppnishaldara. „Þetta var heilmikið mál og kostaði nokkurt fé. En ég fékk góða menn í lið með mér, reyndar fékk ég mjög góðan íslenskan stuðning. Kjartan Guð- jónsson listmálari teiknaði tillöguna, Ragnar Th. Sigurðsson útfærði myndir, Egill R. Sveinbjörnsson hjá Onno gerði mjög flottar grafískar útfærslur. Þetta var ómetanlegur stuðningur og hvatning. Ég komst auðvitað ekki í úrslit, enda gerði ég mér aldrei í hugarlund að ég myndi sigra í þessari keppni, en þó fékk ég dálitla vísbendingu um það frá keppn- ishöldurum að tillaga mín hefði enn verið til skoðunar á síðari stigum. Hvað sem því líður er ég kátur með að hafa tekið þátt í svo stórri keppni, mitt eina mark- mið var að senda inn tillögu sem ég gæti verið stoltur af.“ Í minnismerki Chucks býr töluverð tákn- fræði, það byggist á 9 metra háum steins- úlum sem halda uppi hring með 11 metra radíus. Tölurnar níu og ellefu vísa í dag- setningu hryðjuverkaárásarinnar, 11.9. eða 9/11 eins og Bandaríkjamenn segja. Þá eru súlurnar sjö talsins. „Flugvélarnar voru fjórar og flugu á þrjár byggingar; turnana tvo og Pentagon,“ útskýrir Chuck, 4+3=7. Þá skýrir hann merkingu hringsins. „Mér sýnist sem dómnefndin hafi verið mjög með hugann við hinn harmræna þátt atburðanna, fjörtjónið sem árásirnar ollu. Ég einbeitti mér hins vegar að því að túlka samhug fólks eftir árásirnar, hvernig fólk kom saman og hjálpaðist að. Hringurinn táknar þetta bandalag fólks, ásamt því að lýsa hvernig atburðirnir tengdust í eina keðju.“ Í texta með tillögu sinni lýsir Chuck því hvernig fólk lagði handleggi á axlir hvert annars og stóð hljóðlega í litlum hringjum við minningarathafnir á svæðinu, meðan nöfn hinna látnu voru lesin upp. Þá segir hann ennfremur að fólk um alla heims- byggðina hafi tekið höndum saman um að sýna íbúum New York stuðning. „Ég er sjálfur fæddur í New York. Reyndar lít ég ekki á mig sem New York búa, því ég hef ekki dvalið þar að staðaldri, en ég kem þangað reglulega.“ Sigurvegari samkeppninnar var Ísraeli, búsettur í New York, og er tillaga hans sögð endurspegla tóm og fjarveru hinna horfnu turna. „Mikill styr hefur staðið um þessa framkvæmd alla og enn er þarna gapandi sár í jörðinni. Fjölskyldur fórnarlambanna eru meðal þeirra sem ekki hafa verið alls kostar ánægðar með ráðstöfun svæðisins, en yfirvöld virðast ætla að halda sínu striki. Landsvæðið er í eigu hafnaryfirvalda á Manhattan, en verkefnið er styrkt með alríkisfjármunum. Mér finnst spennandi að fylgjast með þessu, bæði vegna þátttöku minnar en ekki síður vegna þess að þetta voru stórir atburðir og áhrifamiklir á líf margra.“ Á heimasíðu keppninnar, www.wtcsiteme- morial.com, má skoða allar innsendar til- lögur, frá 63 þjóðlöndum. Tillaga að minnisvarða um hryðjuverkaárásirnar í New York En ég á alveg eftir að fara um Vestfirðina og Austfirði, til dæmis, og hlakka til. MAMMA VARAÐI MIG VIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.