Morgunblaðið - 10.07.2005, Qupperneq 6
6 | 10.7.2005
Æ
i, eruð þið ekki orðin þreytt á miðnætursólinni? Partíflugan
ykkar er allavega orðin pirruð á að staulast út af börum borg-
arinnar á Manolo Blahnik hælunum og fá miskunnarlaust sól-
skinið í andlitið um hánótt. Þá getur reynst erfitt að fela bauga og bros-
hrukkur við augun og dugar skammt að púðra nefbroddinn, þótt Kanebo
förðunardósin geti oft virkað eins og „instant“ andlitslyfting. Hljómsveit-
argæjarnir og DJ-arnir, sem eru svo töff inni í myrkri skemmtistaðanna,
verða eins og draugar í dagsbirtu þegar þeir skreiðast út í nóttina. Bara
hallærislegir. Það var hins vegar svo ljúft og rómantískt andrúmsloft á Öl-
stofunni að Flugustelpa hætti að hafa áhyggjur af bévítans birtunni og ein-
beitti sér þess í stað að því að njóta kvöldsins. Alltaf er hægt að stóla á að
Stofan sé fengsæl til veiða en á meðal þeirra sem skemmtu sér þar við glað-
legar samræður voru hinn kokhrausti rithöfundur og ástríðubloggari
Ágúst Borgþór Sverrisson og næturgalinn fagri, Móa (Júníusdóttir), auk þess
sem Kormákur og Skjöldur, flottustu herramenn landsins, ráku inn nefið og
tóku púlsinn á liðinu. Flugan uppveðraðist öll og baðaði út
vængjunum af aðdáun þegar hún rak öll augun sín í norska
fornaldarfyrirbrigðið og stórlistamanninn Odd Nerdrum.
Þvílíkur „hönk“ – þvílíkir hæfileikar. Árni Snævarr tón-
leikahaldari lét sig heldur ekki muna um að bruna á Ölstof-
una að loknum velheppnuðum „Átta líf“-tónleikum í
Hljómskálagarðinum fyrr um kvöldið. Maður verður jú að
eiga eitthvert líf ...
Í hinni „hipp“ herrafataverslun, Indriða, var opnun á
sýningu listamannsins Þórodds Bjarnasonar. Stór-
sniðug hugmynd að vera með sýningarrými í fataversl-
un og Indriði er stælí fatabúlla sem þarf örugglega
ekki á því að halda að kaupa sig inn í samkeppni tíma-
ritsins Mannlífs um bestu herrafataverslunina ...
Margir listamenn voru mættir en þeir munu einmitt
hafa næmt auga fyrir straumum og stefnum í tísku-
fatnaði, sem og öðru. Frú listamannsins, Íris Stef-
ánsdóttir, sem vinnur í i8, var að sjálfsögðu viðstödd
og það var líka Hrafnhildur Arnardóttir, a.k.a. Shop-
lifter, myndlistarkona og hönnuður í New York. Ein-
ar Garibaldi, myndlistarmaður og prófessor við Listaháskóla Íslands lét
sig ekki vanta né heldur Hlynur Helgason, myndlistarmaður og kennari í
Borgarholtsskóla. Eyrún Magnúsdóttir, þáttastjórnandi í Kastljósinu,
skoðaði sig um með mann sinn upp á arminn. Myndlistarmennirnir
Hrafnkell Sigurðsson og Þórunn Hjartardóttir og Gunnar Hersveinn
blaðamaður heiðruðu líka listamanninn með nærveru sinni.
Flugan er alveg til í að upplifa ekki útilegufíling og lætur öðrum eftir að
liggja í tjöldum um þessa miklu ferðahelgi. Hún er þó svo mikið lista-
snobb að hún lagði á sig það þrekvirki fara úr bænum til þess að vera við-
stödd afhjúpun listaverka í Vatnsfellsvirkjun, annars vegar eftir
Finnboga Pétursson (sem er einn af þátttakendunum í Carnegie-
sýningunni sem hingað kemur eftir áramót) og hins vegar eftir
skvísurnar í Gjörningaklúbbnum, eða The Icelandic Love Cor-
poration. Þrátt fyrir úrhellisrigningu og strekkingsvind mættu
um 50 manns á viðburðinn og þáðu veitingar í boði Hálend-
ismiðstöðvarinnar í Hrauneyjum. Hressandi listviðburður í
mergjuðu umhverfi.
Það yljaði svo hálfkaldar hjartaræturnar að hitta Hrafn
Gunnlaugsson, leikstjóra og sjálfmenntaðan landslagsarki-
tekt, á Búllunni hans Tomma. Þar snæddi Hrafninn sunnu-
dagshamborgarasteikina, spariklæddur í svörtum jakkaföt-
um og með sólgleraugu í brjóstvasanum, með vandlega
snyrt hár og skegg. Maður að mínu margbreytilega skapi ...
| flugan@mbl.is
Hrafnhildur Ingunn Thoroddsen
og Ragnhildur Jónsdóttir.
Helga Jóna Þórunnardóttir
og Sigríður Ríta Ragnarsdóttir.
... sunnudagssteik Hrafns Gunnlaugssonar og listasnobb borgarflugu ...
FLUGAN
Ásta María
Benónýsdóttir og
Jón Rósmann Mýrdal.
SÝNINGIN
SÖGUR AF LANDI
var opnuð í sal
Handverks og
hönnunar.
Helga Þórarinsdóttir
og Guðrún Þórsdóttir.
WIG WAM, glysrokksveitin
norska, hélt tónleika á Gauknum.
Dóra Björk Guð-
jónsdóttir, Andrés
Lárusson og Tinna
Kristinsdóttir.
Rikki G. og DJ.
Andri Frændi.
Kristín Bergsdóttir
og Samúel Jón
Samúelsson.
Anna Hjörleifsdóttir, Ingibjörg Ósk Ólafsdóttir,
Unnur Arna Eiríksdóttir og Tinna Karen Árnadóttir.
... Hin mörgu líf Árna Snævarrs
og lífskúnstnerinn Odd Nerdrum ...
Jenný Rut Arnþórsdóttir og
Berglind Ósk Ásmundsdóttir.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Bóas Hallgrímsson
og Inga María
Brynjarsdóttir.
Charlotte Bøving
og Benedikt
Erlingsson.
Margrét Kristín
Blöndal og Auður
Eggertsdóttir.
LEIKVERKIÐ
ÖRLAGAEGGIN var frumsýnt
í Borgarleikhúsinu.
Páll Rósinkrans og
Hrefna Jónsdóttir.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Gunnlaugur Egilsson og
Tinna Gunnlaugsdóttir.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t