Morgunblaðið - 11.07.2005, Qupperneq 27
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Keflavíkurflugvöllur
MANNVIRKJASVEITIR banda-
ríska landhersins hófu flugvall-
argerð á Suðurnesjum haustið 1941,
voru þarna gerðir tveir flugvellir, sá
fyrri (Patterson) var tekinn í notkun
sumarið 1942 og sá seinni (Meeks)
ári síðar. Bandaríkjamenn hafa
stækkað og endurbætt Meeks-
flugvöll mikið frá upphafi. Árið 1952
hófust þeir handa við að byggja helj-
armikið flugskýli sem átti að hýsa
eldsneytisflugvélar sem áttu að vera
til taks til að fylla á sprengjuflug-
vélar með áfangastað í Sovétríkj-
unum. Þetta flugskýli var með flötu
þaki sem sogaðist upp í rokinu þann-
ig að sprungur mynduðust í tjöru-
þéttingunni og allt fór að leka. Út-
veggirnir voru nánast bara
risastórar hurðir sem láku svo miklu
lofti að hitakerfið réð ekki við sitt.
Loksins þegar þessi stærsta bygg-
ing Íslands var fullgerð var öll hern-
aðartækni breytt og sýnt að framtíð-
arstríð stórveldana yrði að miklu
leyti háð neðansjávar. Þess vegna
tók flotinn við yfirstjórn flugvall-
arins árið 1961 og varð þarna mið-
stöð kafbátaleitar við Norður-
Atlantshaf. Kjarnorkukafbátar
gengu 40 hnúta á þessum árum en
hámarkshraði tundurskeyta var 28
hnútar, til að mæta þessu voru bún-
ar til litlar kjarnorkusprengjur sem
voru kallaðar „LULU“. Verkstæði
til að hlaða þessar sprengjur var
byggt þarna nálægt gömlu flugstöð-
inni, ofan í stórri laut og bak við flug-
skýli þannig að lítið fór fyrir þessu.
Umbúðirnar utan af sprengjunum
voru seldar í Sölu varnarliðseigna og
þóttu hentugar sem brynningarker
fyrir búfé. Kjarnahleðslurnar sjálfar
komu aldrei til Íslands.
Nú eru orðnir til mótorar sem
geta knúið tundurskeyti áfram á 50
hnúta hraða svo ekki er lengur nein
þörf á að sprengja heila kjarnorku-
sprengju til að sökkva kafbát. Pat-
terson-flugvöllur var notaður sem
bækistöð orrustuflugvéla sem voru
svo öflugar að flugmenn LUFT-
WAFFE sáu fljótt að það væri betra
að halda sig fjarri þessum grjót-
hólma. Eftir að varnarlið kom til Ís-
lands 1951 hafa orrustuflugvélarnar
verið á Meeks-flugvelli og eru nú
fjórar eftir. Eftir gjaldþrot komm-
únismans hafa tilgangslaus stríð
færst í aðra heimshluta og ekki þörf
á öflugum vörnum hér lengur.
Gestur Gunnarsson,
Flókagötu 8, Rvík.
Trommukjuði týndist
TROMMUKJUÐI týndist á leið úr
Salahverfi í Seljahverfi. Kjuðanna er
sárt saknað af eiganda. Finnandi
vinsamlega hringið í síma 692 1572
eða 699 3483.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 27
DAGBÓK
ÁSögusetrinu er sýningin Á Njáluslóð,þar sem gestir eru leiddir um heim vík-ingaaldar og geta rakið sig eftir sögu-þræði Brennu-Njálssögu. Í sumar er
boðið upp á fyrirlestraröðina „Njála með sunnu-
dagskaffinu“.
– Um hvað er að ræða?
„Klukkan hálffjögur á sunnudögum getur fólk
komið til okkar og hlýtt á fyrirlestra um Njálu.
Við höfum fengið fræðimenn, stjórnmálamenn og
fjölmiðlamenn til að fjalla hver um sig um ein-
hverja þætti í Njálu. Næsta sunnudag mun Njörð-
ur P. Njarðvík til dæmis flytja fyrirlesturinn Sag-
an hefst á einni lygi.
Eftir fyrirlestrana hafa myndast skemmtilegar
umræður. Það eru náttúrlega allir sérfræðingar í
Njálu. Menn hafa svo ólíkar skoðanir á einu og
öðru í þessari bók. Með fullri virðingu fyrir öllum
öðrum Íslendingasögum þá er Njála drottningin.
Það er ekki að ástæðulausu. Þetta er lengsta sag-
an og hún kemur inn á svo ótalmarga þætti; ástir,
örlög, vígaferli, hefnd og sæmd. Hún er líka
skemmtileg lýsing á samfélaginu eins og menn
sáu það þegar hún var skrifuð.
Ókeypis er inn á sunnudagsfyrirlestrana og
gestir borga eingöngu inn á safnið. Á undan fyr-
irlestrunum geta þeir sem vilja farið í reiðtúr um
Njáluslóð. Þetta er tilvalið fyrir fólk í sumar-
bústaðabyggðunum hér í kring og svo er kjörið að
aka hingað á góðum degi eða skella sér ef mönn-
um leiðist í bænum í rigningu. Það tekur í mesta
lagi einn og hálfan tíma að aka úr Reykjavík.
Þetta er fínn sunnudagsbíltúr og upplagt að fá sér
kaffi og Njálu með – engar fitandi kökur, heldur
Njálu.“
– Er Njála sem sé góð með kaffinu?
„Hún er fín með kaffinu, alveg ljómandi góð.
Njála er náttúrlega góð með öllu!“
– Hvað annað er á döfinni hjá ykkur?
„Við erum að koma upp sex metra löngu líkani
af Þingvöllum sem sýnir þingstörf á víkingatím-
anum. Þar er Almannagjá, menn sem sitja að Lög-
réttu og svo framvegis. Þetta verður mjög flott.
Í galleríinu hjá okkur sýna þrír listamenn í
sumar. Nú eru hér verk eftir Jón Kristjánsson,
Jónda, sem býr í Fljótshlíð.
Til viðbótar við sýninguna Á Njáluslóð er hér
kaupfélagssýning þar sem rakin er verslunarsaga
Suðurlands. Þarna er til dæmis gömul krambúð af
Eyrarbakka og gamlir búðarkassar.
Eftir að hafa skoðað sýningarnar getur fólk síð-
an sest niður og fengið sér kaffi í víkingasalnum
okkar. Hann lítur út eins og skálar hjá stór-
bændum á víkingatímanum.“
Sagnfræði | Á Sögusetrinu á Hvolsvelli er Njála borin fram með kaffinu í sumar
Njála er góð með öllu
Sigrún Ragnheiður
Ragnarsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Söguset-
ursins á Hvolsvelli. Hún
er fædd í Hafnarfirði ár-
ið 1955 og hefur lengst
af starfað sem fram-
haldsskólakennari. Sig-
rún lauk BA-prófi í bók-
menntafræði og sögu
en fór aftur í Háskólann
fyrir þremur árum. Hún
er í þann veginn að ljúka BS-prófi í ferða-
málafræði. Í vetur stundaði Sigrún einnig nám
í Leiðsöguskóla Íslands og lærði leiðsögu-
mennsku. Hún tók við starfi framkvæmda-
stjóra Sögusetursins í febrúar.
Sumarbrids.
Norður
♠–
♥ÁK74
♦D932
♣ÁD643
Vestur Austur
♠102 ♠97653
♥DG106 ♥532
♦65 ♦1084
♣KG952 ♣108
Suður
♠ÁKDG84
♥98
♦ÁKG7
♣7
Spilið að ofan er að hálfu leyti
frá sumarbrids BSÍ fyrir viku –
hendur NS eru réttar, en spilum
AV hefur verið hagrætt í nafni vís-
indanna.
Sjö tíglar er glæsilegur samn-
ingur, en ekkert par fann þann
áfangastað og yfirleitt létu menn
hálfslemmu duga. Eitt par fór þó í
sjö spaða, en spaðinn lá illa og
vörnin fékk þar slag. En segjum nú
að suður spili sjö spaða og legan sé
eins og að ofan er sýnt.
Látum vestur spila út hjarta-
drottningu.
Sagnhafi tekur með ás, fer heim
á tígulás, leggur niður ÁKD í spaða
og sér leguna. Nú verður að beita
trompbragði til að ráða við 97 aust-
urs í spaða. Fyrst eru þrír slagir
teknir á tígul. Þegar austur fylgir
lit er laufdrottningu svínað og lauf
trompað með fjarka. Blindum er
loks spilað inn á hjartakóng og
laufás spilað.
Og við því á austur ekkert svar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist alla
mánudaga kl. 14, Boccia kl. 10.
Vinnustofan opin alla daga. Ath.
bókabíllinn kl. 13.30–14.00.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Fé-
lagsvist kl. 13.30. Púttvöllur 10–
16.30. Grillveisla fimmtudaginn 14.
júlí kl. 12.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, fótaaðgerð, samverustund kl.
13:30.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 13–
16 brids, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Félagsvist verður spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gullsmára.
Félag eldri borgara Kópavogi,
ferðanefnd | Örfá sæti laus í ferð
FEBK á Strandir 15.–17. júlí. Brott-
för frá Gullsmára kl. 08.30 og Gjá-
bakka kl. 08.45. Leið m.a: Brú,
Hólmavík, Drangsnes, Klúka, Djúpa-
vík, Gjögur, Norðurfjörður, Ingólfs-
fjörður o.fl. Gist á Laugarbóli og
Hólmavík. Ekin Tröllatunguheiði í
Króksfjarðarnes, Dalir, Bratta-
brekka. Skráning Gjábakka s:
554 3400 eða Þráinn 554 0999 /
Bogi 560 4255.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids spilað í dag kl. 13.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og
dagblöðin. Kl. 10 fótaaðgerð, bæna-
stund. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 15
kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Jóga kl. 9–10.
Böðun virka daga fyrir hádegi. Há-
degisverður. Frjáls spilamennska kl.
13–16.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Listasmiðja og Betri
stofa kl. 9–16. Púttvöllur alla daga.
Félagsvist 13.30 í dag. Glæsilegt
kaffibrauð. Banki 18. júlí. Fótaað-
gerðarstofa 897–9801. Skráningu á
haustnámskeið lýkur 1. ágúst. Hug-
myndir vel þegnar í Hugmynda-
banka Hæðargarðs. Kíktu við! Sími
568 3132.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–12
leikfimi (júní–júlí). Kl. 11.45–12.45 há-
degisverður. Kl. 14.30–15.45 kaffi-
veitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, frjáls spil.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
ÞÝSKA leik- og söngkonan Andrea Jonasson tekur hér
við árnaðaróskum áheyrenda eftir tónleika hennar og
tríósins Jess-Trio-Wien á Spoleto-hátíðinni á Ítalíu um
helgina. Hátíðin, sem ber yfirskriftina Hátíð tveggja
heima, sameinar hin ýmsu listform, svo sem dans, óp-
eru, tónlist, leiklist og kvikmyndir.
Reuters
Listahátíð tveggja heima
Brúðkaup | Gefin voru saman 18. júní
sl. í Garðakirkju af sr. Hans Markúsi
Hafsteinssyni þau Katrín S. Einars-
dóttir og Haukur Garðarsson. Þau eru
til heimilis í Garðabæ.
Mynd, ljósmyndastofa
ARGENTÍNSKA skáldið Juan
Gelman tók á dögunum við Pablo
Neruda-bókmenntaverðlaununum
úr hendi Ricardo Lagos, forseta
Chile, í La Moneda-forsetahöllinni í
Santiago. Yfirvöld í Chile settu
verðlaunin á fót í tilefni af því að
hundrað ár eru liðin frá fæðingu
þjóðskáldsins.
Á myndinni þakkar Gelman fyrir
sig með ávarpi.
Reuters
Gelman hlýt-
ur Neruda-
verðlaunin