Morgunblaðið - 11.09.2005, Blaðsíða 4
4 | 11.9.2005
ræmunnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Barði,
broslausi, Jóhannsson mætti með fagurri dömu en hann er höf-
undur tónlistar myndarinnar ásamt Mínusmönnum. Krummi og
kó sátu einmitt framarlega í Háskólabíói en bleksvart hár Hrafns-
ins virtist greitt aftur með brilljantíni. Hann var eins og sam-
bland af ungum Elvis og Bjögga Halldórs, föður sínum. Samt
töff. Íslenska landsliðið mætti í heild sinni á frumsýninguna og
einnig sást til Einars Más Guðmundssonar, rithöfundar, ásamt
eiginkonu og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur með bónda
sinn. Meðal gesta voru einnig Stelpurnar okkar: Söngfuglarnir
Móeiður Júníusdóttir og Birgitta Haukdal en sú síðarnefnda
var í hvítum leðurjakka, hvítum leðurstígvélum og með hvít
sólgleraugu. Ekki alveg að grípa svörtu hausttískuna?
Með haustinu færist nú fjör í leikinn þar sem alls staðar er
verið að opna sýningar og hefur Flugan vart haft undan að
hlaupa á milli staða og dreypa á léttum veigum. Frábært að geta
skemmt sér svona vel í starfinu og er þá mikilvægt að vanda sig.
Í Listasafni Íslands var opnuð sýningin Íslensk myndlist 1945–
1960 og þar nutu Sigurður Pálsson, skáld, Helgi E. Helgason,
fréttamaður á RÚV, og Þorsteinn Gunnarsson, leikari, afspyrnu
fallegrar sýningar. Ljósmyndarinn vinalegi, Gunnar Andrésson, og
Svanhildur Konráðsdóttir voru líka á meðal gesta. Flugan var í fé-
lagi við tvo unglingspilta sem þóttust listhneigðir mjög og drukku
sódavatn í staupi. Þegar rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson gekk í
salinn með villt, hvítt hárið, klæddur gallabuxum og leðurjakka,
kleip annar unglingurinn þéttingsfast í væng Flugunnar og hvíslaði
aðdáunarfullri röddu: ,,Vá, rosalegur gangster er þetta! Kúl gaur,
maður.“
Tangóhátíð Kramhússins og Tangófélagsins var hleypt af stokk-
unum í hinu sjarmerandi Iðnó við Tjörnina þar sem hljómsveitin
Silencio lék snilldarlega tangótónlist og snerti við dansstrengjum
gesta. Jói Fel, bakari og ,,hönk“, var mættur með frúnni og Egill
Ólafsson, Stuðmaður, sat heillaður og hlýddi á unaðslega tónana.
Það gerði Björgólfur Guðmundsson, stórathafnamaður, líka. Lengi
lifi takturinn og tangóinn! | flugan@mbl.is
Ónærfærnislegt orðalag
Sigurður A. Magnússon, rithöfundur, og fjölskylda hans eru
beðin velvirðingar á ónærfærnislegu orðalagi í Flugu-pistli um
síðustu helgi. Orðalagið gat gefið tilefni til misskilnings og því
skal áréttað að á málverkasýningu Eiríks Smith og síðar á Kaffi
París var Sigurður í fylgd með eiginkonu sinni og dóttur.
Í
Borgarleikhúsinu var slegið upp veislu og boðið upp á mjög
fjölbreytt hlaðborð, hvítvín og bjór. Guðjón Pedersen, leik-
hússtjóri, bauð viðstadda velkomna en þeirra á meðal voru
leikararnir Ingvar Sigurðsson, Gunnar Hansson og Halldóra
Geirharðsdóttir. Tilefnið var upphaf leikársins og leikstjórinn
Reynir Lyngdal, í hlutverki plötusnúðar, kom fólki í stuðstemn-
ingu. Leikkonurnar Edda Björg Eyjólfsdóttir og Sigrún Edda
Björnsdóttir, ásamt Kolbrúnu Bergþórsdóttur, blaðamanni, voru í
þessu sérlega skemmtilega partíi sem færðist út í sólina á svölum
þriðju hæðarinnar. Góður forleikur að næsta viðburði sem var
frumsýning á Strákunum okkar í leikstjórn Róberts Douglas en
Gunnar Hansson, Nína Dögg Filipp-
usdóttir og Ingvar E. Sigurðsson.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Sóley Elíasdóttir og Sig-
rún Edda Björnsdóttir.
Halldór Gylfason og
Ellert A. Ingimundarson.
Þóra Gunnarsdóttir og Björn Árnason.
Stelpurnar okkar,
Krummi og kó og
Barði broslausi
… í hvítum leðurjakka, hvítum leðurstígvélum og með hvít sólgleraugu. Ekki alveg að grípa svörtu hausttískuna … ?
FLUGAN
LEIKÁRIÐ 2005/2006 var
kynnt í Borgarleikhúsinu.
ÍSLENSKA BÍÓMYNDIN Strákarnir
okkar var frumsýnd í Háskólabíói.
TÓNLEIKAR Patti Smith og
hljómsveitar voru haldnir á Nasa.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Jón Axel Björnsson, Edda Heiðrún Backman,
Pétur Einarsson og Stefán Jónsson.
Þórunn Hjartar-
dóttir og Ása
Richardsdóttir.
Ásdís Óladóttir, Anna Jóna Einarsdóttir
og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Jónas Sen og Una
Sveinbjarnardóttir.
Lísa Pálsdóttir
og Magnús R.
Einarsson.
Guðný Skúladóttir og
Dagný Skúladóttir.
L
jó
sm
yn
di
r:
Á
rn
i S
æ
be
rg
Hafdís Ósk Jónsdóttir,
Erlendur Eiríksson og
Björn Ingi Hilmarsson.