Morgunblaðið - 11.09.2005, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 11.09.2005, Qupperneq 18
18 | 11.9.2005 létta á erfiðum aðstæðum, takast á við óbærilegar upplif- anir og sjá starfið sitt í broslegu ljósi á köflum. Þetta eru sálrænar aðferðir til þess að ekki byrgist inni sorg, spenna eða streita. Eru þá gerð skýr skil á milli heilbrigðrar notk- unar húmors og hins vegar hótfyndni sem notuð er sem skammvinn ábreiða yfir erfiðar tilfinningar, og gerir þannig ógagn. Þá þurfa allir að sjálfsögðu að fara varlega í að gera að gamni sínu við skjólstæðinga sína, þá sem eiga erfitt eða eru fórnarlömb. Húmor getur hjálpað, jafnvel líknað, en hann getur líka skaðað, móðgað og sært. Hér er þjóðráð … Maður fer með aldraða og veika eiginkonu sína til læknis. Eftir skoðun segir læknirinn að tvennt komi til greina: „Þetta er annaðhvort Alzheimer eða alnæmi.“ „Hvað meinarðu,“ segir maðurinn, „geturðu ekki greint muninn?!“ Læknir: „Uh, sjúkdómarnir eru svipaðir á fyrstu stigum… en hér er þjóðráð: Brunaðu með konuna þína út úr bænum og sparkaðu henni út úr bílnum. Ef hún ratar aftur heim – skaltu aldrei sofa hjá henni aftur!“ Þessi brandari er kannski samnefnari fyrir margar þær tegundir brandara sem tæpt hefur verið á. Hann er upp- lýsandi (HIV getur smitast með kynmökum, Alzheimer skaðar minnið), það vottar fyrir kvenfyrirlitningu (konan er viðfang), hann er absúrd (svona kemur aldrei fyrir mig) og tekur á kvíðvænlegri staðreynd (allir geta fengið Alzheimer, lítið lát er á eyðnifaraldrinum). Brandarar geta þannig verið af margvíslegum toga, sumir segja flóknar sögur í ein- feldni sinni, sumir taka tíðarandann í bakaríið og eru einungis skiljanlegir sam- tímafólki: Hvað kallast ljóska sem litar á sér hárið? Gervigreind. Síðasta tilvitnunin er í Joseph P. Goodwin, um eðli hins fyndna: „Húmor er ótrúlega flókinn og virkar á marga vegu. Hann getur verið til í sjálfum sér, til skemmtunar, til þess að fanga athygli, sýna hnyttni einhvers, greind og yfir- burði, eða undirgefni og eigið gengisfall. Hann getur tjáð andúð, reiði, árásarhneigð, hann getur nýst til að kljást við eða endurspegla átök, ótta eða kvíða, hann hefur hlut- verk í samskiptum, samsömun og hópamyndun, hann má nota til að kenna og upp- lýsa, til að reka áróður. Húmor getur vakið kvíða, hann getur vakið máls á óþægileg- um umfjöllunarefnum (...), hann getur nýst í lækningaskyni, hann getur fært einstaklinga nær öðrum, nýst til að afla samþykkis þeirra eða móðga þá, getur hjálpað manni að falla í hópinn – hann getur verið flótti frá veruleikanum. Kímnigáfa er í öllu falli snörp og áhrifarík leið til þess að miðla gildum einstaklingsins, oft ómeðvitað.“ | sith@mbl.is Og Árni Johnsen Fleiri ljótir atburðir en fall Tvíburaturnanna hafa orðið Bandaríkjamönnum aðhlátursefni – ef svo ónotalega má að orði komast – með tímanum; fjöldamorðin í Waco, Challenger-slysið og þannig má áfram telja. Eftir að sjö manna áhöfn fórst með geimskutlunni Challenger frá Geimferðastofnun Bandaríkjanna árið 1986 spurðu gár- ungar: Hvað merkir NASA? Svar: Need Another Seven Astronauts (Vantar sjö nýja geimfara). Hér á landi virðist okkur síður vera hlátur í hug eftir að ógæfa dynur yfir, í fljótu bragði koma ekki í hugann „brandarar“ um snjóflóð, sjóslys eða morðmál, svo dæmi séu nefnd. Hins vegar eru stjórnmálamenn hér, eins og víðast hvar annars staðar, sífelld uppspretta gamanmála, einnig ýmis hneykslismál og/eða dómsmál (þ.e. ekki morð). Skemmst er þess að minnast þegar Árni Johnsen, þá þingmaður, var ákærður fyrir að leysa til sín ýmsar gerðir byggingarefnis á kostnað Þjóðleikhússins, og spratt af mikil umræða í þjóðfélaginu. Af vefsíðunni meira.is: Vissir þú að Árna Johnsen var boðin vinna í Gripið og greitt – hann afþakkaði og sagðist frekar vilja vinna hjá Aktu taktu. Við segjum brandara um fjarstadda, eins og Clinton og Monicu Lewinsky, Michael Jackson, páfann, og, já… reyndar Hafnfirðinga. Færri nota til dæmis nöfn nafn- greindra glæpamanna í brandara hér á landi, þó hafa þeir heyrst, t.d. um dæmda kyn- ferðisafbrotamenn. Sumir segja brandara um jarðarfarir, en þá sjaldnast nafngreindra einstaklinga. Á köflum eru sagðir brandarar um misheppnaðar kynlífsathafnir, heim- færðir upp á þá sem henta þykir í hverjum hópi. Kannski er það vegna þess að Íslendingar eru of fáir og nánir, sem ekki hafa komið upp abstrakt eða afleiddir brandarar eftir, segjum, snjóflóðin á Vestfjörðum. Sem betur fer, segja flestir. Og líka til hvers? Í erlend fagtímarit á borð við The Phsychologist eru reglulega ritaðar greinar eins og Hvers vegna hlæja lögreglumenn að dauðanum? og Til varnar svörtum húmor. Inntakið er að kímni sé það sem á ensku kallast „coping device“ eða leið til að vinna sig í gegnum erfiðleika, og beri því ekki endilega vott um kæruleysi eða harðneskju. Þvert á móti. Til að mynda er talið að húmor, sem í eðli sínu leiðir saman óvæntar hliðar eða ósamrýmanlegar, geti hjálpað fólki að sjá atburði í nýju ljósi eða endurtúlka aðstæður, líkt og haft hefur verið eftir rithöfundinum Arthur Koestler. Fólk í samfélagsþjónustu víða um lönd er þjálfað í því að nota húmor til þess að „Ef sjeikinn er þver, skaltu hvergi hvika. Verðið á eldflaugunum er óumbreytanlegt og... hver djö...?!“ © Fanofunny.com / Alessio Spataro, Ítalíu. HLÁTURINN LENGIR LÍFIÐ Eru þá gerð skil á milli heil- brigðrar notkunar húmors og hins vegar hótfyndni sem not- uð er sem skammvinn ábreiða yfir erfiðar tilfinningar. M ér finnst brandarar alveg stórkostlega spennandi, þaðer hægt að skoða svo margt í gegnum þá,“ segir Krist- ín Einarsdóttir, stundakennari í þjóðfræði við Háskóla Ís- lands. Hún hefur fjallað um brandara sem tæki til samfélags- skoðunar í þjóðfræðiáföngum sem hún hefur kennt, en segist vera einungis rétt að byrja að kynna sér húmor. „Þú talar eiginlega við mig hálfu ári of snemma,“ segir hún hlæjandi. Kristín vitnar í bandaríska þjóðfræðinginn Alan Dundes, aðal- höfund bókarinnar Cracking Jokes, sem fjallar um „sjúkan húmor“ og ástæður hans. „Hann tekur fyrir ákveðna flokka brandara, eins og til dæmis svonefnda Dead Baby Jokes, sem gengu í bylgju fyrir nokkrum árum en hurfu svo,“ segir Krist- ín, en brandararnir voru yfirleitt stuttir og keimlíkir: Hvað er rautt úti í horni? Hvað er rautt og grænt úti í horni? Svarið var yfirleitt „dáið barn“ með ýmsum tilbrigðum. „Greining Dund- es er að þessir brandarar hafi farið á kreik í Bandaríkjunum þegar fóstureyðingar fóru að vera algengar, sem andsvar við þeirri frelsissviptingu kvenna sem barneignir þóttu vera. Húm- or er í raun farvegur fyrir það sem ekki má segja. Maður má ekki segja að börn séu ljót og leiðinleg, það er skylda að finn- ast þau yndisleg.“ Þó finnist það ekki öllum og það brjótist fram í kolsvörtum húmor. Hið sama gildi um svonefnda fötlunarbrandara, þar birtist viðhorf sem ekki þykir pólitískt kórrétt. Dæmi: Handalausa Anna spyr mömmu sína: Má ég fá köku? Já, elskan. En mamma, hún er hátt uppi á borði, geturðu rétt mér hana? Mamman snýr sér að Önnu og svarar: Engar hendur, engin kaka. Svona brandarar komu, samkvæmt kenningum Alan Dundes, upp á yfirborðið þegar fatlaðir „tóku að mælast til þess að tekið væri tillit til þeirra, þegar þeir vildu fá skábrautir og bílastæði“ og fleira. „Enginn má segjast vera ósammála kröf- um fatlaðra,“ útskýrir Kristín. „en þær virðast samt pirra suma – svona brandarar birta undirliggjandi frústrasjónir.“ Brandarar virðast margir hverjir ferðast áreynslulaust milli landa og virka óháð menningarbundnum aðstæðum. „Já, þetta á við um brandara og margt fleira í þjóðfræðinni – það er eitthvað sammannlegt sem birtist á ólíkum stöðum á sama tíma. Í fræðunum eru pælingar um hvort slík fyrirbæri berist milli landa með fólki, eða spretti samtímis af einhverri þörf.“ Kristín er spurð um ljóskubrandara. „Ég hef á þeim mína skoðun. Mér finnst þeir ekki vera karlremba, heldur ótti okkar allra við að vera álitin heimsk. Við viljum ekki láta standa okk- ur að því að vita ekki eitthvað og reynum að hylma yfir það. Þessir brandarar eru líka óháðir kyni að því leyti að unglings- strákar kalla hver annan ljósku, ef tilefni þykir til.“ Að hennar sögn segja ís- lenskir unglingar óhikað brandara sem fela í sér kynþáttaandúð, án þess oft að gera sér grein fyrir því. Einn fjalli til dæmis um þrjá menn sem deyja, tvo hvíta og einn svartan. Hinir hvítu verði að englum en hinn svarti að leðurblöku. Kristín kenndi námskeið um flökkusagnir, húðflúr og brandara í Háskóla unga fólksins í sumar, þar sem nemendur voru 12 til 14 ára. Finnst henni mikilvægt að unglingar fái fræðslu um þau viðhorf sem svona brandarar birta? „Ég vil ekki gera það þannig að þau hætti að hlæja eða vari sig á því að segja brandara – því hláturinn lengir jú lífið,“ svar- ar Kristín. „En þau voru svakalega forvitin og mér fannst mjög skemmtilegt að sjá augu þeirra opnast fyrir þessu. Og ekki bara fyrir húmor, heldur mörgu öðru í samfélaginu – það er mikilvægt að vera alltaf vakandi.“ Krakkarnir bentu sjálfir á að blökkumenn segi gjarnan brand- ara um sjálfa sig. Kristín segir þetta að vissu leyti rétt, og svip- að gildi t.a.m. um feitt fólk, það sé gjarnan sagt hafa húmor fyrir sjálfu sér. Þetta hafi með sjálfsmynd að gera, sem mótuð sé af samfélaginu. Hvítt fólk segi til dæmis síður brandara um eigin litarhátt, hann sé ekki talinn undarlegur og því ekki efni í brandara. Þetta birti enn og aftur ósýnilega staðla, eitthvað sem annars megi ekki orða. Og enn af bók Dundes. „Ég var slegin að lesa kafla hans um gyðingabrandara. Hann vill meina að ef húmorinn í Þýska- landi hefði verið skoðaður betur í aðdragandanum, hefði kannski aldrei þurft að koma til þjóðernishreinsana gagnvart gyðingum,“ segir hún. Að mati Dundes eigum við að veita húmor á hverjum tíma meiri athygli til þess að greina undir- liggjandi strauma í samfélaginu, svo sem andúð, aðdáun og ásetning. SVARTUR HÚMOR: ÞAÐ SEM EKKI MÁ SEGJA KRISTÍN EINARSDÓTTIR ÞJÓÐFRÆÐINGUR Handalausa Anna spyr mömmu sína: Má ég fá köku? ...

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.