Morgunblaðið - 11.09.2005, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 11.09.2005, Qupperneq 22
22 | 11.9.2005 Í góðæri síðustu ára hafa Íslendingar fengið skyndileganáhuga á hönnun. Það er kannski ekki skrýtið ef litið er áalla þá sjónvarpsþætti og þau glanstímarit sem birtast sjón- um okkar daglega. Eitt af nýjustu áhugamálum Íslendinga eru stólar. Stólar, sem gegna ekki bara því hlutverki að hvíla lúin rass, heldur eru einnig konfekt fyrir augað. Það eru lítil skil milli hönnunar og listar, en saga hönnunar spannar mun skemmri tíma. Hún nær aftur til iðnbyltingarinnar þegar fyrirtæki fóru að reyna að aðgreina sambærilegar vörur með því að höfða til fegurðarskyns fólks. Frá upphafi fór að gæta tvennra mismunandi viðhorfa meðal hönnuða. Annars vegar voru þeir sem vildu skapa nútímalegar, ódýrar, ending- argóðar og fallegar vörur. Hins vegar voru þeir sem vildu hverfa til fortíðar og búa til hágæðavörur í stað ódýrs iðnvarnings. Á 19. öld spruttu upp margar listhreyfingar sem höfðu áhrif á hönnunarsöguna. Í raun er hægt að geta sér til um sögu hvers stóls þar sem efni og aðferðir voru bundnar við ákveðna staði og lönd. T.d. var Þjóðverjinn Michael Thonet (1796–1871) fyrstur til að framleiða stóla með beygðu beyki með hjálp gufunnar undir lok 19. aldar. Í byrjun 20. aldarinnar var Ungverjinn Marcel Breuer (1902–1981) fyrstur til að beygja stál við hönnun húsgagna. Fyrsta neyslusamfélagið | Eftir seinna stríð tók við tími uppbyggingar í Evrópu. Bandaríkin, sem þurftu ekki að þola loftárásir stríðsins, tóku gríðarlegan efnahags- kipp og til varð hið fyrsta svokallaða neyslusamfélag. Þá var ekki lengur nóg fyrir fólk að eiga bíl og hús. Það var nauðsynlegt að eiga flottan bíl og fallegt heimili. Þessi nýi lífsstíll birtist Evrópubúum í bíómyndum og auglýsingum á fimmta og sjötta áratugnum. Röðin kom síðan að Íslendingum undir lok síðustu aldar og íslensk heimili verða aldrei söm. Þar sem áður var hvít eldhúsinnrétting úr panel er komin innrétting úr stáli og/eða mahóní-við. Gömlu baðherbergistækin hafa vikið fyrir stílhreinum tækjum frá Phillip Starck, hljómflutningstækj- unum hefur verið skipt út fyrir græjur frá Bang&Olufsen og þar sem áður voru fyrirferðarmikil sjónvarpstæki er kominn grilljón tommu plasma flatskjár. Í bílskúrnum hefur gamli fjölskyldubíll- inn vikið fyrir upphækkuðum Land Krúser-num. Hönnunarsnilld í íslenskum eldhúsum | Þegar rætt er um hönnun stóla hugsa margir Íslendingar fyrst til danska arkitektsins, Arne Jacobsen (1902–1971). En Jacobsen hafði „smyglað“ sér inn í flest eldhús landsmanna áður en þeir gerðu sér grein fyrir öllum þeim pælingum sem liggja að baki hönnun stóla. „Maurinn“ og „Sjöan“ eru einfaldir, fjöldaframleiddir stólar sem við fyrstu sýn virðast ekki ýkja merkilegir en teljast í dag mikil hönnunarsnilld og sér- staklega „Sjöan“ sem ein og sér hefur selst í yfir fimm milljónum ein- taka. Annar stóll sem er mjög vinsæll meðal Íslendinga í dag er Barcelona-stóllinn eftir þýska arkitektinn Ludwig Mies Van Der Rohe (1886–1969). Upphaflega var stóllinn hannaður fyrir Spánarkonung og drottningu fyrir heimsókn þeirra á heimssýninguna í Barcelona árið 1929. Þar var Van Der Rohe einnig með til sýnis hús, Barcelona Pav- ilion, sem telst vera mjög mikilvægt í sögu nútímaarkitektúrs. Einföld formin og kassalaga vöktu það mikla athygli að þrátt fyrir að húsið hafi verið rifið eftir sýn- HÖNNUN | HALLDÓR BIRGIR BERGÞÓRSSON Í MÍLANÓ Coffee Design kaffihúsið í Mílanó er óður til stólsins SESSUNAUTN Í LISTAVERKUM Aðeins það besta – meira að segja fyrir óæðri endann. Í bókinni 1000 stólar er endalaus fróðleikur fyrir áhugafólk um stóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.