Morgunblaðið - 11.09.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.09.2005, Blaðsíða 30
30 | 11.9.2005 SMÁMUNIR… Hver kannast ekki við vesenið sem fylgir því þegar mað- ur ætlar sér að vera smart og menningarlegur og borða með kínverskum prjónum? Sé maður ekki útbúinn galdrafingrum er afraksturinn gjarnan sá að prjónarnir hlaupa langt frá hvor öðrum í höndunum á manni og maturinn endar utan á maganum, en ekki inni í honum eins og til stóð í upphafi. Nú hefur lausn verið fundin á þessu vandamáli. Til eru plastprjónar sem eru þeirrar náttúru að þeir hanga saman á endanum. Á hinum end- anum eru þeir flatir og með rifflum til að auðvelda grip- ið utan um matinn. Ekki er ósvipað að beita þessum am- boðum og flísatöng, bara auðveldara ef eitthvað er. Plastprjónunum má svo henda í uppþvottavél að notkun lokinni. Kínversku töfraprjónarnir fást í Tiger og kosta 200 krónur parið. Kínverskir prjónar … … fyrir þá sem eru lélegir í að borða með kínverskum prjónum Litaklónun er orðið sem Helena Rubinstein notar yfir virkni nýs rakakrems sem sett var á markað í sumar. Liturinn í Color Clone-kreminu ku samlagast húðlit notandans með þeim hætti að útkoman er eins og náttúruleg sólarbrúnka. Magicproof-maskarinn frá sama merki er gegnsæ hula sem sett er yfir þann maskara sem notaður er daglega. Með því verður hann vatnsheldur og förðunin helst lengur fram eftir degi. Loks setja frísklegir sumartónarnir í Lotus Leg- end-augnskuggunum punktinn yfir i-ið. Nýjungar fyrir augu og húð Nýstigin upp úr skaðræðisflensu drattaðist ég áflóamarkað og ráfaði þar um í dálitla stund. Alltum kring hjalaði fólk og handlék misgamla hluti. Kannski leyndust enn flensuleifar í líkamanum eða þá að pensilínið hafði tekið sinn toll því skyndilega svimaði mig. Bjóst hálft í hvoru við að svífa upp úr sjálfri mér og ofan í einn af öllum þessum lömpum sem verið var að selja. Og ég fann fyrir undarlegum trega, mildum og ertandi í senn; þyrsti í eitthvað sem ég vissi ekki almennilega hvað var, ekki strax. Svo þegar heim kom rann upp fyrir mér að mig langaði að hitta ömmur mínar. Hafði gamla dótið haft þessi áhrif eða kallar líkaminn ósjálfrátt á hugulsama ömmu þegar hann berst við að ná sér upp úr máttleysinu sem fylgir inflúensu? Vissi það ekki – en þörfin fyrir ömmurnar ágerðist. Brátt var hún orðin svo fyrirferðarmikil að mig langaði að hitta bara einhverja eldri mann- eskju: sitja með henni við dúkað borð, dreypa á kaffisopa og rabba um lífið og tilveruna. En hvar átti ég að finna mann- eskju um áttrætt síðdegis á sunnu- degi í ungdómshverfinu Norðurbrú í Kaupmannahöfn? Kannski séns að finna slíka manneskju – en líklega yrði hún bara hrædd ef ég ávarpaði hana úti á götu. Ég gat ekki einu sinni hringt í ömmur mínar heima á Íslandi því ég var nýflutt og símalaus næstu daga. Í örvæntingu minni rámaði mig í auglýsingapésa sem höfðu legið á víð og dreif í fyrra, en í þeim var skorað á unga nýbúa í Danmörku að gerast ,,vinir“ eldra fólks: veita því félagsskap, njóta nærveru þeirra og bæta dönskukunnáttuna í leiðinni. Nú dauðsá ég eftir að hafa ekki gripið gæsina meðan hún gafst og vingast við elsku- lega(n) konu eða karl (þá myndi ég líklega tala drottn- ingardönsku í staðinn fyrir Jónsdóttur-dönsku sem er tungumál talað af einni manneskju í heiminum). Bara ef ég hefði stungið á mig bæklingi – þá hefði verið auðvelt að seðja skyndilegt hungrið í eldri borgara. En maður tryggir ekki eftir á. Aftur á móti reif þetta klúður mig eitt augnablik upp úr eigin fýsnum og minnti mig á hvað eldri manneskjur eru mikið einar og hve oft þær hljóta að sakna fé- lagsskapar sér yngra fólks, oft á tíðum barna og barna- barna. Þessar einmana manneskjur hljóta að vera margar hér í Danmörku fyrst auglýsingapésarnir voru prentaðir í tugþúsundatali – og eflaust er ekki vanþörf á að prenta svipaða pésa heima á Íslandi: skora á ungt fólk að njóta félagsskapar eldra fólks. Það er synd og skömm hve margar eldri manneskjur sitja einar á öllum sínum ágæt- um, meira en reiðubúnar að deila þeim með öðrum – en því miður búa ófáar ungar manneskjur í öðrum löndum eða hafa alltof þéttskipaðan hvunndag til að heimsækja ömmur sínar og afa sína. Tilhugsunin gerði mig sorgmædda, já nú var ég bæði meyr og leið yfir þessu öllu saman. Kannski var ég sjálf dálítið gömul þennan dag. Maður verður það þegar skrokkurinn gefur sig sisona. En daginn eftir hringdi tæplega sjötug tengdamamma mín, sem dvelur hér tímabundið og var nýkomin heim úr stuttri ferð. Við hittumst á kaffihúsi og það lifnaði yf- ir mér þegar ég sá hana með hvíta fartölvu, mjóan vindil, ískaffi og kaskeiti úr H&M. Hún var jafnung og ég hafði verið gömul deginum áður. | audur@jonsdottir.com Ömmur mínar – ég sakna ykkar! Pistill Auður Jónsdóttir Það er synd og skömm hve margar eldri mann- eskjur sitja einar á öll- um sínum ágætum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.