Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DÖNSK HÚSGAGNAHÖNNUN Ef þú hefur áhuga á danskri húsgagnahönnun í hæsta gæðaflokki, skoðaðu þá heimasíðu okkar á www.soeborg-moebler.dk og fáðu nánari upplýsingar eða bæklinga og tilboð frá fyrirtæki okkar. Næst þegar þú ert í Kaupmannahöfn, ertu velkomin/n að heimsækja okkur í sýningarsal okkar (800 m2), sem er í aðeins 6 km fjarlægð frá miðbænum. A/S Søborg Møbelfabrik, Gladsaxevej 400, 2860 Søborg, sími +45 39 69 42 22, www.soeborg-moebler.dk Opnunartímar: mánudag-þriðjudag 8.30-16.30, föstudag 8.30-15 FJÖLMENNI var við útför Bessa Bjarnasonar leikara, sem gerð var frá Hallgrímskirkju í gær. Sr. Hjálmar Jónsson jarðsöng, org- anisti var Marteinn H. Frið- riksson og Gunnar Kvaran lék forspil á selló. Gísli Alfreðsson las ljóð og Signý Sæmundsdóttir söng einsöng með karlakórnum Voces Masculorum. Signý söng einnig dúett með Jóhanni Sigurð- arsyni og Ragnar Bjarnason söng við undirleik Þorgeirs Ástvalds- sonar. Líkmenn úr kirkju voru leik- ararnir Stefán Jónsson, Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason, Jó- hann Sigurðarson, Pálmi Gests- son, Ingvar E. Sigurðsson, Rand- ver Þorláksson og Þórhallur Sigurðsson. Morgunblaðið/Árni Torfason Útför Bessa Bjarnasonar leikara BRYNJAR Níelsson, lögmaður Þingvallaleiðar, segir mikla ágalla vera á útboði Ríkiskaupa fyrir Vegagerðina á nokkrum sérleyfum fólksflutninga. Samkvæmt útboðs- gögnum hafi ekki verið gert ráð fyrir að fyrirtæki skiluðu inn mín- ustilboðum, þ.e. að þau myndu greiða Vegagerðinni fyrir að fá sér- leyfin. Ekki hafi verið reiknað með að verkið yrði tekjuöflun fyrir rík- issjóð. Því telji Þingvallaleið að mínustilboð séu ómarktæk tilboð. Þingvallaleið bauð 0 krónur í sér- leyfi á Suðurnesjum, m.a. í flugrút- una svonefndu, en önnur tilboð hljóðuðu upp á allt að 470 milljóna króna meðgjöf. Brynjar segir fyr- irtækið hafa reiknað með að Vega- gerðin hafi viljað greiða sem minnst fyrir sérleyfin. Þingvallaleið hafi reiknað með að lækka fargjöldin, frekar en að fá greitt úr ríkissjóði fyrir aksturinn. Lagði fram kæru Áður en tilboð voru opnuð hjá Ríkiskaupum í síðustu viku hafði Þingvallaleið lagt inn kæru hjá kærunefnd útboðsmála. Var þess krafist að nýtt útboð færi fram, vegna stöðu Kynnisferða í útboðinu, sem fengi greitt frá ríkissjóði fyrir að reka miðasölu á BSÍ og væri í allt annarri og betri stöðu en keppi- nautar fyrirtækisins í sérleyfis- akstri. Lögmaður Þingvallaleiðar Segir mínus- tilboð vera ómarktæk ♦♦♦ TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunn- ar sótti eldri sjómann sem fengið hafði botnlangakast á skipinu Ósk KE-5, sem gert er út frá Keflavík, rétt utan við Faxaflóa um klukkan hálf sex í gær. Þyrlan lenti með manninn við flugskýlið á Reykjavík- urflugvelli klukkan hálf níu í gær- kvöldi og var hann fluttur á Land- spítala – háskólasjúkrahús. Sótti veikan sjómann út af Faxaflóa HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr gildi frávísunar- úrskurð héraðsdóms í máli Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni en Auður höfðaði mál á hendur Hannesi og sakaði hann um að hafa brotið gegn höfundalögum í bók sinni Halldór. Mál- ið fer því aftur fyrir héraðsdóm, sem mun taka efn- islega afstöðu til málsins. Héraðsdómur vísaði málinu í heild sinni frá með úrskurði sínum 9. júní sl. með þeim forsendum að málshöfðunin og stefnan væri ekki nægileg skýr og aðgengileg. Í stefnunni voru talin upp þau 120 atriði úr fyrsta bindi ævisögu Halldórs þar sem Hannes var sakaður um að hafa brotið gegn höfundalögum. Þar var meintum brotum Hannesar lýst þannig að hann hefði notað texta Halldórs Laxness án að- greiningar frá eigin texta, ekki getið heimilda, getið heimilda með villandi og ófullnægjandi hætti, breytt frumtexta höfundar og birt áður óbirtan texta án heimildar. Minni kröfur í einkamáli Í forsendum héraðsdóms kom fram að í stefnunni væri hvergi gerð grein fyrir því til hvaða laga- ákvæðis bæri að heimfæra brotin, eða hvert heiti ætlaðs brots Hannesar að lögum hefði verið. Sam- hengi málsástæðna þótti ekki skýrt og lýsing máls- ástæðna ágripskennd og með öllu ófullnægjandi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að enda þótt fallist yrði á með héraðsdómara að lýsing málsástæðna hefði verið ágripskennd yrði að gæta þess að krafan væri einkarefsikrafa. Hæstiréttur vísaði þannig til þess að um einkamál er að ræða, en ekki opinbert mál, sem ákæruvaldið höfðar. Einstaklingar geta hins vegar höfðað mál á grundvelli höfundalaga. „Hafa verður í huga að ekki verða gerðar sömu kröfur um framsetningu stefnu í einkarefsimáli og gerðar verða til ákæru í opinberu máli samkvæmt 116. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.“ Dómurinn taldi því að sóknaraðili hefði sett kröf- ur sínar fram með nægilega skýrum hætti og að ekki væri ástæða til að vísa þeim frá dómi enda væru kröfurnar ekki svo óskýrar að varnaraðili fengi ekki tekið til varna með eðlilegum hætti. Hæstiréttur fjallaði einnig um miskabótakröfu Auðar á hendur Hannesi. Vísað var frá kröfu um bótaskyldu byggðri á gáleysi, skv. 3. mgr. 56. gr. höfundalaga en kröfu um bótaskyldu á grundvelli ásetnings eða stórfellds gáleysis, skv. 2. mgr. 56. gr. höfundalaga var ekki vísað frá og mun héraðsdóm- ur taka efnislega afstöðu til hennar. Það voru hæstaréttardómararnir Garðar Gísla- son, Guðrún Erlendsdóttir og Ingibjörg Benedikts- dóttir sem dæmdu málið. Mál Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni Hæstiréttur fellir frá- vísunarúrskurð úr gildi Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is MIÐAÐ við markaðsverð má gera ráð fyrir því að andvirði byggingarréttar á því svæði sem hugmyndasamkeppni Reykjavíkurborgar mun ná til í Vatnsmýrinni sé ekki undir 30 millj- örðum króna, þrátt fyrir að fyrirtæki sem þangað sæki greiði ekki hátt verð fyrir lóðir, segir Dagur B. Eggerts- son, formaður skipulagsráðs. „Ef við er bætt þeim afleiddu verð- mætum sem til verða margfaldast þessi tala. Það er að segja annars veg- ar uppbyggingu blómlegs íbúðar- svæðis og hins vegar þeim atvinnu- tækifærum sem myndu skapast í þekkingariðnaði í tengslum við há- skólana og þá miðborgarstarfsemi sem þarna myndi vera.“ Þessar tölur miðast við frekar þétta byggð, og geta því breyst eftir því hversu þétt verður byggt í Vatnsmýrinni, en Dagur tekur fram að ekki liggi fyrir ný rannsókn á verðmæti Vatnsmýrarinnar. Athygli hefur vakið að hvorki Há- skólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands né Landspítali – háskólasjúkrahús hafa þurft að greiða fyrir lóðir í Vatns- mýrinni, fyrir utan gatnagerðargjöld, og hefur það verið skýrt með því að skólarnir og LSH laði að sér starfsemi æskilegra fyrirtækja í Vatnsmýrina. Aðspurður segir Dagur að almennt greiði fyrirtæki ekki háar upphæðir fyrir lóðir undir atvinnustarfsemi, og ólíklegt sé að það breytist þótt landið í Vatnsmýrinni sé verðmætt. Þannig hafi t.d. Íslensk erfðagrein- ing aðeins greitt sem samsvarar tvö- földum gatnagerðargjöldum fyrir sína lóð, en helmingur þeirrar upphæðar hafi runnið til Háskóla Íslands þar sem féð var notað til að þróa frekar hugmynd um vísindagarða skólans í Vatnsmýrinni. Hluti samnings sem gerður var við HR gerir einmitt ráð fyrir því að bún- ar verði til leikreglur um þau kjör sem fyrirtæki sem háskólinn laði að svæð- inu njóti. „Hugsunin er sú að fyrir- tækin greiði fyrir land, en að það fé nýtist svæðinu til frekari uppbygging- ar, því við teljum að stóru peningarnir liggi í því að gera þessi svæði aðlað- andi fyrir fyrirtæki í þekkingariðnaði sem leiða af sér hálaunastörf fyrir ungt fólk. Ekki bara það sem er að læra hér heldur einnig fyrir þá sem bíða eftir tækifæri til þess að koma heim úr námi,“ segir Dagur. „Við er- um þannig að nota háskólana og há- tæknisjúkrahúsið sem segul á þessa starfsemi.“ Augun beinast að Vatnsmýrinni „Við hjá Reykjavíkurborg verðum mjög vör við það að augu manna bein- ast að Vatnsmýrinni, og til þess er jú leikurinn gerður,“ segir Dagur. Hann segir einhver fyrirtæki hafa sett sig í samband við Reykjavíkurborg og ósk- að eftir lóð í mýrinni, en vildi ekki nefna hvaða fyrirtæki þar er um að ræða að svo komnu máli. Invent Farma hefur þegar ákveðið að flytja rannsóknar- og þróunarstarfsemi á svæðið, eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu. Verðmæti Vatnsmýrar ekki undir 30 milljörðum segir formaður skipulagsráðs Fyrirtæki munu fá ódýrar lóðir undir atvinnustarfsemi Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.