Morgunblaðið - 21.09.2005, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
Lýðheilsuáætlun Evrópusambandsins
-Tækifæri til fjölþjóðlegs samstarfs
á sviði heilbrigðismála
Kynningarfundur á Grand hóteli, Reykjavík, Sigtúni 38
23. september kl. 13.00–17.00.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Evrópusambandið veitir árlega umtalsverðum fjárhæðum til
verkefna sem falla undir Lýðheilsuáætlun Evrópu-
sambandsins. Á fundinum verður áætlunin kynnt, gerð grein
fyrir helstu skilyrðum sem verkefni þurfa að uppfylla til að
teljast styrkhæf og veittar leiðbeiningar um umsóknarferlið.
Einnig verða kynntir sjóðir EFTA og rannsóknarsjóður
RANNÍS.
Dagskrá
13:00 Setning og ávarp fundarstjóra.
Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
13:10 „EU Health policy developments“.
Dr. Fernand Sauer, Director, European Commission, DG
Health and Consumer Protection.
13:30 Fyrirspurnir úr sal.
13:50 „EFTA participation in the Public Health Programme
and the future Health and Consumer Programme“.
Ms. Guri Galtung Kjaeserud, (DG SANCO).
14:10 Fyrirspurnir úr sal.
14:30 Tengsl Lýðheilsustöðvar við Lýðheilsuáætlun
Evrópusambandsins.
Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar.
14:40 Kaffihlé.
15:00 „Applying for and managing projects financed by
Public Health.
Funds and the existence of communication
networks within Europe“.
Georg Bröring, Netherlands Institute for Health
Promotion and Disease Prevention.
15:40 Fyrirspurnir úr sal.
16:00 Þróunarsjóður EFTA.
Martin Eyjólfsson, viðskiptaþjónustu
utanríkisráðuneytisins.
16:30 Fyrirspurnir úr sal.
16:40 Kynning á rannsóknasjóði RANNÍS.
Dr. Eiríkur Smári Sigurðarsson, deildarstjóri á rannsókna-
og nýsköpunarsviði RANNÍS.
17:00 Fundarslit.
ÚTFÖR Steinþórs Gestssonar, fyrrverandi alþingis-
manns, var gerð frá Skálholtskirkju í gær að viðstöddu
fjölmenni. Séra Sigfinnur Þorleifsson jarðsöng.
Kistuna báru úr kirkju: Steinþór Birgisson, Steinþór
Kári Kárason, Freyja Birgisdóttir, Sigurður Kárason,
Páll Gestsson, María Dögg Aðalsteinsdóttir, Helga
Høeg Sigurðardóttir og Dórótea Høeg Sigurðardóttir,
öll barnabörn Steinþórs.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Útför Steinþórs Gestssonar
DAVÍÐ Oddsson utanrík-
isráðherra afhenti Svían-
um Jan Eliasson, forseta
allsherjarþings Samein-
uðu þjóðanna, nýjan fund-
arhamar í þingsalnum í
gær, að gjöf frá íslensku
þjóðinni til samtakanna.
Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær týndist sá
hamar sem Íslendingar
gáfu SÞ síðast árið 1961,
eftir að fyrsta útgáfa
hamarsins hafði brotnað
árinu áður í höndum þá-
verandi forseta alls-
herjarþingsins, Írans
Fredericks Bolands. Ný
endurgerð er eftir lista-
konuna Siggu frá Grund í
Villingaholtshreppi, sem
hafði frumgerð Ásmund-
ar Sveinssonar mynd-
höggvara að leiðarljósi.
Að sögn Davíðs lýsti
Eliasson ánægju og inni-
legu þakklæti fyrir gjöf-
ina en um leið var forset-
inn upplýstur um örlög
fyrri fundarhamra. Strax
við upphaf síðari hluta
allsherjarþingsins í gær
greindi Eliasson svo þing-
heimi frá gjöf Íslendinga,
um leið og hann prófaði
nýja hamarinn.
Davíð afhenti nýjan
fundarhamar
Reuters
VILMUNDUR Guðnason, for-
stöðulæknir Hjartaverndar, og
Thor Aspelund, tölfræðingur
Hjartaverndar, kynntu nýverið
svonefndan áhættureikni Hjarta-
verndar á þingi European Society
of Cardiology.
Áhættureiknirinn sem er að-
gengilegur á heimasíðu Hjarta-
verndar byggist á skoðunum og
mælingum á hátt í 20.000 Íslend-
ingum sem hafa tekið þátt í vís-
indarannsókn Hjartaverndar á síð-
ustu 38 árum. Skv. upplýsingum
Hjartaverndar virðist áhættureikn-
irinn ekki eingöngu virka fyrir Ís-
lendinga heldur einnig aðrar Evr-
ópuþjóðir.
Alls sóttu um 20 þúsund manns
þingið sem haldið var í Stokkhólmi.
Fram kemur í frétt frá Hjarta-
vernd að á lokahluta þingsins fór
fram kynning á því markverðasta
sem fór fram á þinginu. „Í þetta
sinn voru rannsóknir Hjartavernd-
ar á áhættureikni Hjartaverndar
fyrir hjarta og æðasjúkdóma sér-
staklega til umfjöllunar…,“ segir
m.a. í tilkynningunni.
Áhættureiknirinn settur á
ensku og sænsku á heimasíðu
„Hóprannsókn Hjartaverndar
hefur vakið verðskuldaða athygli
og er ljóst að hún er ein merkileg-
asta faraldsfræðilega rannsókn
sem gerð hefur verið og skipar nú
sess meðal fremstu og mikilvæg-
ustu rannsókna hvað varðar aukn-
ingu á skilningi og mat á áhættu á
hjarta- og æðasjúkdómum sem og
öðrum langvinnum sjúkdómum,“
segir þar.
Í ljósi þess að áhættureiknir
Hjartaverndar gagnast öðrum
Evrópuþjóðum og áhættureiknar
eru ekki mjög aðgengilegir al-
menningi í þessum löndum þá hef-
ur Hjartavernd núna sett útgáfur á
ensku og sænsku á heimasíðu sína
svo almenningur í öðrum löndum
megi njóta þess að skoða sína
áhættu á hjarta- og æðasjúkdóm-
um.
Áhættureiknir Hjarta-
verndar vekur athygli
VEGNA fréttar um
fundarhamar Sam-
einuðu þjóðanna í
Morgunblaðinu í
gær höfðu afkom-
endur Jóns Bene-
diktssonar hús-
gagnasmiðs
samband við blaðið
og sögðu hann hafa
gert eftirlíkinguna
af hamri Ásmundar
Sveinssonar, en ekki
Guðmund, bróður
Jóns, eins og sagt
var í fréttinni. Ís-
lendingar gáfu ham-
arinn árið 1961, eftir að fyrsta útgáfa hafði brotnað á hitafundi árið áð-
ur.
Bræðurnir störfuðu mikið saman, enda ráku þeir verkstæði um árabil,
og áttu talsverð samskipti við marga af fremstu listamönnum þjóð-
arinnar. Hefur ýmsum verka þeirra verið ruglað saman en bræðurnir
eru nýlega fallnir frá á gamalsaldri.
Ólafur, sonur Jóns, segir föður sinn hafa ákveðið að hafa nýja ham-
arinn mun sterkari en þann fyrri, sem brotnaði á sínum tíma. Því hafi
hann límt saman tvær fjalir þar sem önnur þeirra lá langsum í annarri
hliðinni en þversum í hinni. Að sögn Ólafs gerði Jón þá kröfu að vinur
sinn, Ásmundur Sveinsson, fengi greidd höfundarlaun fyrir eftirgerð
hamarsins. Gerði Jón einnig aðra eftirgerð af hamrinum, sem Íslend-
ingar gáfu NATO.
Á meðfylgjandi mynd er eftirgerð Jóns Benediktssonar, en sá hamar
týndist hjá Sameinuðu þjóðunum. Þegar Ásmundur var beðinn um lýs-
ingu á verkinu sagði hann hamarinn sýna víking á bæn fyrir friði.
Jón Benediktsson gerði
eftirlíkingu af síðasta fundarhamri
Vildi að Ásmundur
fengi höfundarlaunin
Eftirgerð Jóns Benediktssonar af fundarhamri Ás-
mundar Sveinssonar. Þessi hamar týndist hjá Sam-
einuðu þjóðunum og því var nýr afhentur í gær.