Morgunblaðið - 21.09.2005, Page 23

Morgunblaðið - 21.09.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 23 UMRÆÐAN Yfirtökutilbo› til hluthafa í Landssíma Íslands hf. Tilbo›i› er sett fram í kjölfar fless a› Skipti ehf. keyptu 98,7677% hlut íslenska ríkisins í Landssíma Íslands hf. flann 5. ágúst sl. fiann 30. ágúst sl. féllst Samkeppniseftirliti› á kaupin. Af 37. gr. laga nr. 33/2003 um ver›bréfavi›skipti lei›ir a› a›ili sem hefur eignast 40% atkvæ›isréttar í hlutafélagi sem skrá› er á skipulegum ver›bréfamarka›i er skylt a› gera ö›rum hluthöfum yfirtökutilbo›. Tilbo›sgjafi Tilbo›sgjafi er Skipti ehf., kt. 530705-1450, Tjarnargötu 35, Reykjavík. Félag og hlutir sem tilbo›i› tekur til Tilbo›i› tekur til allra hluta í Landssíma Íslands hf., kt. 500269-6779, Ármúla 25, Reykjavík, sem ekki eru í eigu Skipta ehf. Gildistími tilbo›s Tilbo› fletta gildir frá kl. 10 árdegis flri›judaginn 27. september nk. til kl. 4 sí›degis flri›judaginn 25. október nk. Til fless a› samflykkja tilbo›i› ber hluthöfum anna›hvort a› fylla út framsalsey›ubla› og senda Rá›gjöf Kaupflings banka hf., Austurstræti 5, 101 Reykjavík, e›a hafa samband vi› ver›bréfará›gjafa bankans í síma 444 7000. Ver›ur samflykki a› hafa borist umsjónara›ila fyrir lok gildistímans. Til a› eiga ver›bréfavi›skipti hjá bankanum er nau›synlegt a› eiga vörslureikning hjá Kaupflingi banka hf. Tilbo›sver› Ver› samkvæmt tilbo›i flessu er 9,6 krónur fyrir hvern hlut, sem er fla› sama og vi›mi›unargengi í kaupum Skipta ehf. á hlut ríkisins í Landssíma Íslands flann 6. september sl. Ver›ur kaupver›i› greitt í peningum. Afskráning Stjórn Landssíma Íslands hf. mun óska eftir flví a› hlutabréf Landssíma Íslands hf. ver›i afskrá› úr Kauphöll Íslands hf. í kjölfar yfirtökutilbo›sins. Umsjónara›ili Fyrirtækjará›gjöf Kaupflings banka hf. hefur umsjón me› ger› tilbo›sins fyrir hönd tilbo›sgjafa. Nánari uppl‡singar veita ver›bréfará›gjafar bankans í síma 444 7000. Nálgast má tilbo›syfirlit og framsalsey›ublö› hjá Fyrirtækjará›gjöf bankans í Borgartúni 19 í Reykjavík, á heimasí›u bankans, www.kbbanki.is og í fréttakerfi Kauphallar Íslands hf. á heimasí›u hennar, www.icex.is. Skipti ehf. bjó›a hluthöfum Landssíma Íslands hf. a› kaupa hlutabréf fleirra í félaginu. MIKIL samkeppni á sér nú stað um hylli kjósenda enda styttist í sveit- arstjórnarkosn- ingar og fram- bjóðendur að vakna til lífsins, ekki síst í Reykjavík. Nú virðist af fréttum að dæma sem helsta fjöregg og framtíð Reykja- víkur liggi í Vatnsmýrinni og á sér stað mikið kapphlaup um skipulagningu svæð- isins. Í ritstjórnargrein Morgunblaðsins laugardaginn 17. september sl. er fullyrt að víðtæk málefnaleg sam- staða sé um að Reykjavíkurflug- völlur eigi að víkja og innanlandsflug að færast til Keflavíkur. Þessu er ég algerlega ósammála því flug til Reykjavíkur snýst ekki einungis um upplyftingu í höfuðborginni fyrir þá íbúa landsins sem búa í meira en klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni og hafa nægan tíma til að komast inn í miðborgina. Flug- völlurinn þjónar ekki síst öryggis- hlutverki vegna nálægðar við Land- spítalann. Þá eru opinberar stjórnsýslustofnanir flestar í nálægð við flugvöllinn sem landsbyggð- arfólk þarf að sækja þjónustu til. Eins og umræðan um flugvöllinn hefur verið virðist sem Reykvík- ingar hafi gefið það frá sér að Reykjavík verði áfram höfuðborg landsins þar sem nálægð flugvall- arins við opinberar þjónustustofn- anir landsmanna veitir nauðsynlegt öryggi og sparar dýrmætan tíma og orku fólks sem þarf þar um. Flutningur flugvallarins úr Vatns- mýrinni er ekki einangrað mál held- ur órjúfanlegt umræðu um hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar landsins og opinbera stjórnsýslu þess sem nánast öll er í Reykjavík. En vissulega má hugsa sér breyt- ingar á því. ELÍN MARGRÉT HALLGRÍMSDÓTTIR, íbúi á Akureyri. Uppgjöf Reykjavíkur sem höfuðborgar landsins Frá Elínu Margréti Hallgrímsdóttur Elín Margrét Hallgrímsdóttir BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is SÚ SKOÐUN virðist almennari nú en áður að Reykjavíkurflug- völlur verði að fara. Ég hef lengi búið við að horfa á flugvöllinn frá tveimur mismunandi sjón- arhornum. Annars vegar sem íbúi í Reykjavík þaðan sem ég hef saknað þess að sjá enga borgarbyggð rísa á Vatnsmýr- arsvæðinu á meðan borgin hefur teygt anga sína inn með sjó og upp til heiða. Hins vegar hef ég horft til flugvallarins frá sjón- arhorni landsbyggð- arinnar og skynjað frá þeirri hlið þægindi við að hafa flugvöllinn í hlaðvarpanum. Frá þessu sama sjónarhorni geri ég ráð fyrir að margt landsbyggð- arfólk horfi til hans. Einkum það fólk sem starfa vegna þarf eða tel- ur sig þurfa að vera mikið á ferð- inni á milli höfuðstaðar og heima- byggðar. Umræðan snýst nú einkum um hvort færa eigi innanlandsflugið til Keflavíkurflugvallar eða hvort ráð- ast eigi í byggingu nýs flugvallar fyrir það. Í því efni hefur verið gripið til hugmyndar sem Trausti Valsson, arkitekt og skipulagsfræð- ingur, setti fram fyrir einum þrem- ur áratugum. Að byggja flugvöllinn úti á Lönguskerjum en einnig er rætt um að byggja flugvöll á Álfta- nesi jafn fjarstæðukennt og það er nú þótt það hafi e.t.v. ekki verið jafn óraunhæft á sínum tíma. Allt önnur viðmið Þegar Trausti setti hugmynd sína fram voru allt önnur viðmið ríkjandi í samgöngumálum. Þá gerðu menn ekki ráð fyrir að byggt yrði vetrarfært og varanlegt þjóðvegakerfi með þeim hætti sem varð. Megin áherslan var lögð á flutninga á sjó og í lofti. Stjórnvöld og sveitarstjórnir stóðu fyrir hafn- arframkvæmdum víðs vegar og einnig var verið að byggja og laga flugvelli á ótrúlegustu stöðum. Á áttunda áratugnum og fram á þann níunda var flogið áætlunarflug til um 20 flugvalla víðs vegar um landið. Í dag er aðeins flogið á stórum flugvélum til þriggja áætl- unarstaða en nokkurra á minni vél- um. Krónur í vegtengingu Gjörbreyting í samgöngumálum kallar á nýja hugsun í flugvall- armálinu ekkert síður en nauðsyn þess að taka flugvall- arsvæðið til bygginga. Með tvöföldun Reykjanesbrautar eru samgöngur við flug- vallarsvæðið á Reykjanesi að batna til muna. Eflaust yrði að leggja nokkra fjár- muni í að greiða og styrkja vegatengingu frá BSÍ í Vatnsmýr- inni suður fyrir Hafn- arfjörð verði innan- landsflugið flutt út á Reykjanes. Slíkar framkvæmdir ættu þó aðeins að kosta brot af byggingarkostnaði nýs flugvallar. Hvað gerðu Norðmenn? Snemma á síðasta áratug ákváðu Norðmenn að endurbyggja her- flugvöllinn á Gardemoen norður af Osló sem innanlands- og milli- landaflugvöll. Ástæður þess voru m.a. þær að þröngt var orðið um flugvöllinn á Fornebu sem var inni á Oslóarsvæðinu þar sem bygging- arland skorti tilfinnanlega. Ekki var til umræðu að viðhalda Forn- ebu fyrir innanlandsflugvöll þótt Norðmenn séu mun háðari innan- landsflugi í sínu langa landi en Ís- lendingar. Gardemoen er í sambærilegri fjarlægð frá Osló og Keflavík- urflugvöllur frá Reykjavík og Arlanda frá Stokkhólmi svo annars norræns dæmis sé getið. Bæði Gardemoen og Arlanda þjóna inn- anlandsflugi jafnt sem millilanda- flugi og því má spyrja af hverju Keflavíkurflugvöllur getur það ekki einnig. Draga myndi úr hálfsdagsferðum Hver yrðu áhrif þess að innan- landsflugið yrði flutt til Keflavík- urflugvallar? Ef til vill myndi færsla þess draga úr dags- og hálfsdagsferðum fólks af lands- byggðinni sem er að reka erindi í höfuðborginni. Trúlega myndu menn fremur gista yfir nótt en fljúga suður á morgnana og heim á kvöldin þurfi þeir að sinna erind- um í nokkra daga í röð í höf- uðborginni eins og ég veit að nokk- uð er stundað. Vissulega styrkir þessi ferðamáti tilvist innanlands- flugsins eitthvað. Ég veit ekki hversu mikið og ekki hvort til eru kannanir um hverjir nota flugið mest. Svo kann þó að vera. Telji menn þörf á að viðhalda Reykjavíkurflugvelli af þessum sökum hljótum við að vera á villi- götum. Hvernig fer bæjarráðs- maður frá Þrándheimi eða hrepps- nefndarmaður frá Lofoten að þurfi hann að fara erinda til Oslóar? Hann flýgur til Gardemoen og tek- ur lestina eða rútuna inn á Östban- an. Stundum dettur manni í hug að þeir sem stunda hálfsdagsferðir eða kvartdagsferðir til höfuðborg- arinnar hafi aldrei heyrt um Int- ernetið og Skype-forritið eða önnur tækniundur í samskiptum nú- tímans. Í einhverjum tilvikum ætti að vera hægt að nýta þessa tækni og spara skotferðirnar suður. Og hver veit nema að það verði þróun- in þótt flugvallarmál komi þar ekki við sögu. Þjóð sem ekki nær hálfri milljón og aðeins þriðjungur hennar býr utan höfuðborgarsvæðisins þarf ekki að reka flugvöll fyrir milli- landsflug og annan fyrir innan- landsflug vegna þess að innan- landsflugið verði að lenda í fimm mínútna akstursleið frá stjórn- arráðinu eða í göngufæri frá Hótel Sögu. Þótt ég hafi lengi horft með nokkrum skilningi á tilvist Reykja- víkurflugvallar frá mismunandi sjónarhornum virðist tímans rás sýna glöggt að aðeins eitt er fram- undan í þessu máli. Fimm mínútur frá stjórnarráðinu Þórður Ingimarsson fjallar um staðsetningu innanlands- flugvallar ’Þjóð sem ekki nærhálfri milljón og aðeins þriðjungur hennar býr utan höfuðborgarsvæð- isins þarf ekki að reka flugvöll fyrir millilanda- flug og annan fyrir inn- anlandsflug …‘ Þórður Ingimarsson Höfundur er blaðamaður. Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kalrifjaðan sið- blindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyr- irmunað og þau munu trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf fyrirheit um. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.