Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 33
Atvinnuauglýsingar
Upplýsingar
gefur Elínborg
í síma 421 3463
og 820 3463
í Vallahverfi
í Keflavík
Þarf að hefja
störf 26. sept.
Byggingaverkamenn
- kranamenn
Óskum að ráða sem fyrst byggingaverka-
menn og kranamenn til starfa í Hafnar-
firði. Upplýsingar í símum 898 2869 og
892 8144.
Starfskraftur óskast
í fullt starf við afgreiðslu í listmunaverslun í
Reykjavík. Vinnutími frá kl. 11—18 virka daga
og frá kl. 11—15 á laugardögum.
Umsóknir, með upplýsingum um fyrri störf,
sendist til auglýsingadeildar Morgunblaðsins,
merktar: „Listmunaverslun — 17694“, eða
á box@mbl.is fyrir 1. október.
Raðauglýsingar 569 1100
Félagsstarf
Félagsfundur
Félags sjálfstæðismanna í vestur- og miðbæ boðar til félagsfundar
í Valhöll þriðjudaginn 27. september og hefst hann kl. 18.00.
Fundarefni: Val landsfundarfulltrúa.
Stjórnin.
Félagsfundur
Félag sjálfstæðismanna í Austurbæ-Norður-
mýri heldur almennan félagsfund í Valhöll í
dag, miðvikudaginn 21. septem-
ber, kl. 18.00.
Dagskrá:
1. Kjör landsfundarfulltrúa.
2. Önnur mál.
Gestur fundarins verður Birgir
Ármannsson, alþingismaður.
Stjórnin.
Fundir/Mannfagnaðir
Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Garðabæ
Fundur í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna
í Garðabæ verður haldinn að Garðatorgi 7
í dag, miðvikudaginn 21. september, kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar Fulltrúaráðs-
ins um að fram skuli fara
prófkjör í Garðabæ vegna
framboðs til sveitarstjórnar-
kosninga vorið 2006.
2. Staða bæjarmála.
Frummælandi: Gunnar
Einarsson, bæjarstjóri.
Vinsamlegast athugið að fundurinn er ein-
göngu opinn þeim, er setu eiga í Fulltrúaráði
sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.
Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Garðabæ.
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri miðvikudaginn 28. september 2005 kl. 14:00:
Foldahraun 37, 010204, 218-3410, þingl. eig. Jóhann Pálmason,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vestmannaeyjabær.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
20. september 2005.
Tilkynningar
Verkalýðsfélagið Hlíf
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör fulltrúa Verkalýðs-
félagsins Hlífar á ársfund Alþýðusambands
Íslands, sem haldinn verður á Nordica hótel
dagana 20. og 21. október 2005.
Tillögum með nöfnun 7 aðalfulltrúa og 7 vara-
fulltrúa ber að skila á skrifstofu Hlífar fyrir
kl. 16.00 föstudaginn 30. september nk.
Tillögum ber að fylgja meðmæli minnst
50—60 félagsmanna.
Kjörstjórn Hlífar.
Félagslíf
HELGAFELL 6005092119 IV/V
Fjhst.
I.O.O.F. 9 1859218½
I.O.O.F. 7 18692171/2
I.O.O.F.181869217½
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Fundarboð
Til hagsmunaaðila á og við reit
milli Einholts og Þverholts.
Boðað er til kynningarfundar að
Kjarvalsstöðum, í dag, miðvikudaginn
21. september, kl. 20:00.
Til fundarins boða formaður skipulagsráðs
og skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.
Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til
að mæta á fundinn til að kynnast og hafa
áhrif á framþróun og uppbyggingu
í hverfinu.
Skipulagsfulltrúi/Skipulagsráð
Atvinnuauglýsingar
augl@mbl.is
FRÉTTIR
RUNÓLFUR Ágústsson, rektor
Viðskiptaháskólans á Bifröst, hefur
óskað eftir því við dómsmálaráð-
herra að beita sér í málefnum
Sveinbjörns Kristjánssonar fanga á
Litla-Hrauni og tryggja honum og
öðrum föngum aðstöðu til háskóla-
náms.
DV fjallaði um þetta mál í gær,
en í yfirlýsingu sem Runólfur sendi
fjölmiðlum í gær segir að fréttin sé
röng. Hann segir að það sé vinnu-
regla að gefa ekki upplýsingar um
námsframvindu, árangur eða aðrar
persónulegar upplýsingar um nem-
endur eða umsækjendur um skóla-
vist, án samráðs við þá. Eftir sam-
ráð við Sveinbjörn hafi hann hins
vegar ákveðið að birta upplýsingar
um málið.
„Sveinbjörn sótti um nám fyrir
síðustu vorönn en gat þá ekki
stundað það vegna aðstöðuleysis í
fangelsinu. Hann endurnýjaði um-
sókn sína fyrir haustmisseri sem
nýlega er hafið. Honum hefur verið
tilkynnt að hann verði tekinn í nám
samkvæmt umsókn að því gefnu að
fangelsisyfirvöld tryggi honum og
skólanum viðunandi aðstöðu til að
hann geti sinnt sínu námi.
Sveinbjörn er iðnrekstrarfræð-
ingur frá THÍ og vantar 30 ein-
ingar til að geta lokið námi í við-
skiptafræði. Þau fög sem hann þarf
að taka til að geta lokið fjarnámi
frá Bifröst eru eftirfarandi: Að-
ferðafræði viðskipta, breytinga-
stjórnun og stefnumótun, fjármál
og fjármálamarkaðir, hagnýt hag-
fræði, málstofa um íslenskt at-
vinnulíf, markaðsmál og neytenda-
hegðun, nýsköpun og frumkvöðla-
fræði, samningatækni, samtíma-
menning og viðskiptasiðfræði. Auk
þess myndi hann samhliða skrifa
BS ritgerð undir leiðsögn umsjón-
arkennara. Bókhald er ekki á meðal
þeirra kennslugreina sem Svein-
björn myndi leggja stund á, enda
gert ráð fyrir að nemendur á 3. ári í
viðskiptafræði hafi tileinkað sér
slíkar grunngreinar fyrr í sínu
námi.
Undirritaður heimsótti Svein-
björn á Litla-Hraun þann 26. ágúst
sl. til að kanna aðstæður hans til
háskólanáms og ræddi ég um leið
við Kristján Stefánsson, fangelsis-
stjóra. Gerði ég fangelsisstjóranum
grein fyrir því að í krefjandi há-
skólanámi, eins og því sem Svein-
björn vildi stunda í fjarnámi, þyrfti
hann að lágmarki netaðgang í 30
klst. á viku og að slíkt væri í raun
forsenda þess að Bifröst treysti sér
til að taka Sveinbjörn í nám. Á fjar-
námsvef skólans þyrfti hann að
hlusta á fyrirlestra, vinna verkefni,
hafa samskipti við samnemendur
sína og kennara, auk þess að afla
gagna úr alþjóðlegum gagnagrunn-
um til að geta stundað nám á Bif-
röst með fullnægjandi hætti. Í
framhaldi af þessum fundi var haft
samband við forstjóra Fangelsis-
málastofnunar og atbeina hans ósk-
að í málinu. Ljóst er að öryggismál
varðandi netnotkun fanga eru við-
kvæmt atriði en háskólinn hefur
bent fangelsisyfirvöldum á að þau
megi leysa með einföldum hætti.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst tel-
ur sig hafa samfélagslegar skyldur.
Hluti af þeim skyldum er að stuðla
að jöfnum rétti allra til náms við
skólann. Fangar eru þar ekki und-
anskildir, enda er það trú mín að
bæði sé eðlilegt og sjálfsagt að
skólakerfið, þ.m.t. háskólar, sinni
þörfum fanga til náms. Ég tel rétt
að fangar geti notað þann tíma sem
fangavist skapar til menntunar og
með slíku stuðlað að auknum
þroska sínum í þeirri viðleitni að
gera sig að betri mönnum. Í þeim
skilningi ætti hið gamla íslenska
orð betrunarhús að gilda um þær
stofnanir sem sinna refsivist fyrir
samfélagið.
Í ljósi viðræðna við fangelsisyf-
irvöld og fréttar DV hef ég í dag
sent Birni Bjarnasyni, dómsmála-
ráðherra bréf og beðið hann að
beita sér í málefnum Sveinbjörns
Kristjánssonar og tryggja honum
og öðrum föngum aðstöðu til há-
skólanáms. Viðskiptaháskólinn er
tilbúinn til samstarfs við fangels-
isyfirvöld í þeim efnum.“
Föngum verði gert kleift að stunda nám á Bifröst