Mánudagsblaðið - 01.04.1968, Page 1
BlaÓfyrir alla
Mánudagnr 1. apríl 1968
20. árgangur
5. tölublað
Stórundarleg íbúðakaup út-
gerðarmanna / Reykjavík
Eitt tapár og allir í vandræðum — Furðulegt ástand víða — Hvert
fer allur gróðinn? — Óþolandi ástand
Eins og alkunna er, þá hafa undanfarin sex ár verið einstök
uppgripaár á Austfjörðum og víðar á landinu, þar sem útgerð
er stunduð, hvort heldur síldveiði eða önnur veiði. Nú hefur
veiði brugðizt í rösklega ár, markaðir lækkað og yfirleitt, orðið
almenn veðrabrigði til hins verra fyrir alla þá, sem þennan at-
vinnuveg stunda, bæði eigendur og starfsfólk. En á hinum
árunum hafa útgerðarmenn og félög rakað saman tugmilljón-
um og sett mikið fé í auknar framkvæmdir. Hefur t.d. uppbygg-
ing á Austfjörðum síðustu ár verið meiri en öll uppbygging á
öllu landinu varðandi sjávarútveg árin þar á undan.
Hvað varð af auðnum?
Nú, eftir rösklega ár, af afla-
leysi og markaðsbresti, er samt
svo komiS, að mikill fjöldi útgerð
armanna og eignamanna eystra
og víðar telja sig komna á von-
arvöl og örbirgð eina og vesal-
dóm framundan. Margir standa
nú ekki lengur í skilum, en aðrir
eyða mestum tíma sínum á bið-
stofum bankanna. Almenningur
er orðinn ókvæða yfir þessu ein-
dæma ástandi, þótt svo jafnvel,
að aflabrestur hafi orðið. Flestir
spyrja hvað eiginlega hafi orðið
af öllu því fé, sem upp var gripið
og mörgum finnst að aukin upp-
bygging sé langt frá því að vera
skýring á ástandinu eins og það
er hjá mjög mörgum síldarspek-
úlanti.
Fjöldi ibúða
En til eru ýmsar skýringar,
sem þess eru verðar að hið opin-
bera skyggnist dálítið í hag út-
gerðarmanna, sem hér hafa geng-
ið um eins og friðaðir fuglar
vegna þess eins, að atvinna
þeirra aflar þjóðinni gjaldeyris.
Það er staðreynd, að margir, fjöl
margir útgerðarmenn, sem nú
berja sér mest á brjóst, hafa
keypt og komizt yfir fjölda íbúða
hér í Reykjavík, ibúða, sem þeir
fá með góðum kjörum, enda
greitt út í hönd. Kveður svo
rammt að, að sumir menn, tiltölu
lega nýbyrjaðir í útgerð, hafa
náð sér í fjórar fimm íbúðir hér,
þótt, eftir ársvandræði, fyrirtæki
þeirra séu ýmist á hausnum eða
byggi allt á bankafyrirgreiðslum.
I Dr. Eldjárn og
sjónvarpsmenn
ViII helzt tapa með sæmd og halda
grúskinu áfram segja vinir
Nú er því haldið fram að dr. Kristján Eldjám, hafi nauð-
ugur viljugur farið í forsetaframboðið. Var það aðeins eftir
þráláta eftirgangsmuni að hann lét undan, en nú er ekki
aftur snúið og má hann nú sætta sig við, að verða fyrir
ýmsu aðkasti, eins og sjórnmálamennirnir, því frambjóð-
endur til forsetakjörs verða ekki heilagir fyrr en þeir flytja
til Bessastaða.
Frétzt hefur, að sjónvarpsáhugamenn. ætli að berjast ein-
dregið gegn dr. Kristjáni , vegn þess: a. hann var einn þeirra
60-menninga, sem kröfðust lokunar Keflavíkursjónvarps-
ins og — b. hélt hvassa ræðu móti öllu frjálsu vali íslend-
inga í sjónvarpsmálum á fundi sem haldinn var í Lido.
Þá er og vitað að dr. Kristján er mjög til vinstri — næst-
um kommúnisti — þótt enn teljist hann aðeins til vinstri
arms Framsóknar. Þykir það allmikill vansi fyrir forseta-
embættið ef hálf-kommi sezt í það, og lítt til að auka veg
landsins í hinum vestræna heimi. Öll munu þó þessi mál
skýrast betur, er líður á baráttuna — og vera má, þegar allt
kemur til alls — að sönn reynist sú fullyrðing vina dr.
Kristjáns, að heitasta ósk hans sé að tapa með sæmd og
| hverfa aftur til núverandi starfa sinna.
i
maaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaamaaaaaaaaaaaa
Að brjóta traust
Það er staðreynd að mikill
þorri útgerðarmanna skeytir
ekki hót um hversu illa útgerðin
gengur, og minnka á engan hátt
lifnaðarhætti sína, lúxus eða ann
að. Kúnstin er einfaldlega sú, að
gera út á ríkissjóð, enda þar um
lítið eða ekkert eftirlit að ræða.
Hér hafa útgerðarmenn brotið
ferlega traust á þjóðinni, sem til
þessa hefur ekkert látið ógert til
að hlú að þeim og stuðla í hví-
vetna. Þeir hugsa enn sem svo, að
þjóðin sé þeim skuldbundin.
skuldi þeim gott lífsviðurværi,
styður þá þegar móti blæs, en út-
gerðin sé þjóðinni algjörlega óvið
komandi þegar allt leikur í lyndi
og peningar streyma inn.
Hví hætta þeir ekki?
Þessi hugsunarháttur er neð
ar öllum hellum og óþolandi
að þjóðin búi við slíkt lengur.
Ef útgerðarmenn eru ekki
meiri menn en það, að fyrir-
tæki þeirra þoli ekki eitt með-
alár þegar komin eru 5—7 upp
gripaár á öllum sviðum, er
eins gott að leggja útgerðina
undir hið opinbera svo milli-
liðakostnaðurinn hverfi. Vissu
lega eru til margar undantekn
ingar frá ofangreindu, en þær
eru því miður á engan hátt
nógu margar.
Ráðherra og sparnaður
Fjármálaráðherra gumar nú
mjög af sparnaðarviðleitni
sinni. Hefur hann gripið til
ýmissa ráða til að draga úr
opinberum útgjöldum. Það
væri ekki úr vegi, að allur
rekstur útvegsins væri vendi-
lega rannsakaður og komið í
veg fyrir, að styrkþegar í út-
gerð eyddu fé sínu í íbúða-
kaup eða annan kostnað með-
an fyrirtæki þeirra geta ekki
staöið i skilum. Það fer langt
frá því, að þessir menn eigi
sérstaka umbun skilið þótt
eðli reksturs þeirra skapi þjóð
inni gjaldeyri. Utgerðarmenn
liafa of lengi álitið sig stikk-
frí og sannarlega kominn tími
til að þeir ekki aðeins njóti á-
vaxtanna heldur þoli skakka-
föllin þegar þau rynja yfir.
Vettlingatök
Ríkisstjórnin hefur farið vettl-
ingahöndum um þessa „yfirstétt",
sem vaðið hefur uppi í allsnægt-
um undanfarin ár, en kveinar nú
sáran og kennir öllum um óáran
þessa, nema sjálfum sér. Afla-
leysisár hafa dunið yfir þjóð
þessa, sem aðrar, á öllum öldum,
og harmakvein útgerðarinnar
ekki*annað en fyrirsláttur einn
og undanbrögð. Ef útgerðarmenn
tapa — hví hætta þeir ekki? Það
er fráleitt að ætla, að þessir
menn séu í útgerð af tómri gæsku
og góðsemi í garð landsmanna.
Framhald á 5. síðu.
H ERBADE LJLP
Leikfélagi Mánudagsblaðsins no. 3
í stað nafns og
„númers" á þess
um leikfélögum
okkar verður í
framtíðínní leit-
ast við að birta
skrítlu með
hverri mynd:
Sextán ára skóla
stúlka eignaðist
barn. Hjúkrun-
arkonan reifaði
barníð, horfði á
það og segir síð-
an við móður-
ina: „Mikið skelf
ing finnst mé^
bamið vera gáfu
legt, nú þegar.“
„Engin furða,“
svarar móðirin,
„þegar á alt er
litið þá gekk það
í gagnfræðaskól-
an í hálft ár.“
Er Coldwater í USA
skattalögreglunni?
Það gengur fjöllunum liærra,
hér í Reykjavík, að bandaríska
skattalögreglan hafi nú bókhald
Coldwater-fyrirtækisins með
höndum. Segir sagan, að fyrst
hafi einn fultrúi frá skattalög-
reglunni unnið við þetta, en nú
séu þeir fjórir og hafi ærinn
starfa, því athugunin muni
spanna yfir nokkur undanfarin
ár. Coldwater er, eins og kunn-
ugt er, dótturfyrirtæki SH
einskonar gulli prýdd útgáfa af
dótturfyrirtækjum Sölumiðstöðv
Vitanlega er hér um enga stað
hæfingu að ræða, en staðfesting
ekki fyrir hendi, heldur fyrir-
NÝTT
BARNALEIKHÚS
Nýlega hefur verið stofnað í
Reykjavík nýtt leikfélag, er nefn
ist Barnaleikhúsið. Frumsýnir
það á sunnudaginn, 31. marz, nýtt
íslenzkt barnaleikrit, er nefnist
„Pési prakkari“. Frumsýningin
verður í Tjarnarbæ kl. 3, en
önnur sýning kl. 5 sama dag.
spurn. Sá siður, að þegja allan
orðróm í hel varð Sambandinu
dýrkeypt, en aldrei þagði fyrir-
tækið betur, en þegar við byrjuð
um fyrstir allra á Olíumálinu,
sællar minningar, og þá fór sem
fór. Vonandi hendir það ekki
Sölumiðstöðina.
Óskandi væri, að allt þetta
reyndist ósatt, en hinsvegar
mega útgerðarmenn, sem hlut
hafa í S.H., krefjast þess að for-
ráðamenn fyrirtækisins annað-
hvort neiti eða játi þessum sögu
sögnum. Það er ekkert gamanmál
að lenda í kasti við skattalögregl
una en hún varð — á sínum tíma
— t.d. Alphonse Capone, öðru
nafni A1 „scarface“ Capone að
falli, og þótti hann ekki lamb að
leika sér við.
Það væri huggulegt ef eínhver
nýr „Elliot Ness“ væri nú að
grugga í vötnum Coldwaters.
Til /esenda
í dag hefst í blaðinu ný fram
haldssaga _ CAROL REID -
auðvitað ástarsaga eins og þæ:
beztar gerast. Er þetta liður
aukinni fjölbreyttni blaðsins oj
meira á eftir að koma.
Þá má geta þess að sjónvarps
dagskráin er nú flutt á innsíði
til að gefa 8. siðunni betra útlil
en sú síða mun smátt og smát
varða eingöngu skemmtíefni.
o—o
I næsta blaði byrjar nýr stutt
ur dálkur — á 8. síðu — sen
ætlaður er fólki sem njóta vil
þeirra lystisemda sem höfuðboi'i
in býður upp á.