Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 5

Mánudagsblaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 5
Mánudagur L apríl 1968 Mánudagsblaðið 5 Sjónvarp Reykjavík KVIKMYNDIR Framhald af 8. síðu. verður kjarkur og dirfska að mæta framm fyrir sjónvarpsvél- amar búin jafn fátæklega og ör- iggisútvörður okkar var nú. Blaðamennirnir stóðu sig vel, enda sáu þeir skjótt, að „fórnar- dýrið“ var með öllu varnarlaust og mátti píska það á ýmsa lund. Annar þeirra, þekktur andstöðu- maður NATO og sjálfskipaður hugsuður, reyndi og tókst að ota ár sinni fyrir borð og hlaut af þakkir draugaliðsins sem arkar á Keflavíkurvöll í mótmælaskyni, almenningi til skemmtunar ár hvert. En með hitt verður ekki aftur snúið. Hvað gera yfirvöldin eftir að alþjóð sannfærðist um þetta kák, sem kostar milljónir en gerir engum gott? o—o Ef einhver hefur grætt á verk- Grein Jónasar Frmhld f 2. síðu. í stjórn fyrri stríðsáranna. Vorið 1917 var togarafloti Reykjavíkur orðinn öflugur og gróðasæll, en þá vildu eigendur skipanna sitja einir að gróðanum en hásetar vissu hvað klukkan sló, mynduðu mannsterkt sjómannafélag, settu á verkfall og heimtuðu kaupupp- bót svo að kaup þeirra væri hækk að um helming. Sjómenn voru bæði fjölmennir og áttu gáfaða ráðamenn á sveitamanna visu. Þeir tóku í félag sitt tvo land- menn, okkur Ólaf Friðriksson. Verkfallsdagana höfðum við Ólafur full réttindi á félagsfund um eins og við værum sjómenn. Framhald af 2. síðu. Útgerðarmenn höfðu illan bifur á fundasetu okkar Ólafs og létu þá alla verkfallsdagana birta um okkur fremur ókristilegt orð- bragð í Vísi og Mbl., en ekki var var það átalið. Sjómenn unnu verkfallið og fengu þá kauphækkun sem þeir fóru fram á. Hitt var þeim mest virði að nú kunnu þeir að vinna saman og gera félagsleg átök. Mikill góðhugur ríkti í liði verkamanna um þessar mundir. Þeir fundu að nú var byrj að nýtt tímabil í ævi þeirra. Þeir höfðu lært að gera verkfall og stýra því þegar mikið lá við. Atburðir þessir gerðust í sam- bandi við heimsstríðið 1916—17. Þá vann Dagsbrún og hásetafé- lagið pólitíska sigra, eignuðust fulltrúa í bæjarstjórn og á þingi. • Þá mynduðu þeir hina miklu fylk ingu, Alþýðusambandið, sem stóð nú fyrir liðsdrætti 23 þúsund kaupkröfumanna. En nokkrum missirum síðar kom ný baráttubylgja frá Þýzka landi og Rússlandi. Þá var ekki lengur enska hagspekin höfð til fyrirmyndar. í báðum stórveldun um var bylting, blóð, eldur og kúgun. Blóðheitir íslenzkir bylt- ingarmenn heimsóttu byltingar- löndin. Þeir hafa unnið með trú- arlegum áhuga við að útbreiða sína trú hér á landi. Er nú tími til kominn að þeir leggi á borðið rétt rök um þjóðnýta starfsemi und- angenginna ára. fallinu þá er það útvarp og sjón varp. Útvarpið stórjók auglýsing- ar eins og vænta mátti og mætti nota þann óvænta tekjuauka til að bæta útsendingarkerfið fyrir úfcvarp og sjónvarp svo allt sé ekki sambandslaust ef veður ger- ast válynd. Hætt er við að ef sjónvarpið hafi ekki verið komið til skjal- anna, hefðu menn saknað blað- anna meir en þeir gerðu meðan á verkfallinu stóð. Fréttaflutning ur sjónvarpsins og reyndar út- varpsins var mjög góður á meðan á verkföllunum stóð — deiluað- ilar komu nær daglega fram í útvarpi og sjónvarpi, og verk- fallsverðir fengu nær hálftíma prógramm í útvarpinu og hefði einhverjum blöskrað slikt ábyrgð arleysi fyrir tveim þrem árum. En nú er öldin önnur, við erum liklega að mannast. Það var eiginlega týpisk þjófé. lagslýsing, sem kom fram á þess- um þætti um verkfallsmennina. Stefán Jónsson, fréttamaður, spyr eitthvað á þessa leið: En ef bílarn ir (hugsanlegir verkfallsbrjótar) stanza ekki heldur aka framhjá ykkur, hvað gerið þið þá? — O, þeir komast ekki langt, við erum nefnilega á MERCE- DES BENZ! Hugsið ykkur hvað Þjóðverjar yrðu undrandi ef þeir sæju heil- síðu auglýsingu frá Mercedes Benz verksmiðjunum með yfir- skriftinni: íslenzkir verkamenn aka á Mereedes Benz. Erlendir fastaþættir sjónvarps- ins njóta yfirleitt vinsælda. Lík- lega er Harðjaxlinn sá þáttur er fæstir vilja missa af, sá þáttur er yfirleitt meir spenandi en Dýr- lingurinn, höfuðpersónan svalari týpa og notar meir ýmis tækni- brögð, sem menn hafa gaman af að fylgjast með. í byrjun voru menn að rifna af kátinu yfir Steinaldarmönnunum, en líklega er áhuginn tekinn að dofna hjá flestum og ekki lengur sáluhjálp- aratriði að fylgjast með hverjum þætti. Þáttur Krisjáns Eldjárns, Mun- ir og minjar, hefur notið mikilla vinsælda, en trúlega má ekki flytja hann undir umsjá Krist- jáns fyrr en forsetakosningum er lokið — ef sama gildir og um menn sem eru í neðstu sætum á framboðslistum til alþingiskosn- inga. Talsvert hefur borið á tækni- göllum í sjónvarpinu að undan- förnu, og má stundum sjá að það þykknar í þulinum, ef hann hefur grun um að tæknimennirn- ir séu að hugsa um eithvað annað en sitt starf — en ábyrgðarleysi er undarlegt nokk alltof áberandi hjá tæknimenntuðum íslending- um. Eiginlega er það þversögn, en iðnaðarmenn af ýmsu tagi eru undarlega „ligeglad“. Eiginlega er það kostur að sjón varpið skuli sýna gamlar kvik- myndir en ekki nýjar. Stór kost- ur fyrir bíóin, en fróðlegt fyrir ungu kynslóðina að geta séð leik- ara, sem nú eru komnir á elliár, eða látnir, í fullu fjöri á tjaldinu. Það var td. gaman að sjá Boyer í myndinni Tavarich — hann hef. ur verið skrambi flínkur leikari á sinni tið, en hálfleiðinlegur nú til dags þegar hann enn reynir að vera gamli góði sjarmörinn. Þannig var ömurlegur einn þátt- ur hjá Bragðarefunum um dag- Frmhld f 2. síðu. LokiS bardaga En er Egill heyrir óp það og sá að merki Þórólfs fór á hæl, þá þóttist hann vita að Þórólfur myndu eigi sjálfur fylgja. Varð hann skjótt var þeirra tíðinda er hann fann menn sína, og eggjaði liðið mjög til framgöngu. Egill gekk fram, þar til hann mæti Aðils jarli. Áttust þeir fá högg við áður en Aðils jarl féll og margt manna um hann, en lið hans flýði. Egill og lið hans elti flóttann og drápu margt manna því ekki þurfti griða að biðja. Síðan snéru þeir að liði Ólafs konungs og tók þá fylking hans að riðlast. Er Aðalsteinn sá, að rofna tók lið Ólafs, lét hann bera fram merki sitt og gerði svo harða atlögu að Ólafi, að Ólafur féll og mikill hluti liðs hans. Voru allir drepir sem náð var, og fékk þar Aðalsteinn konungur mikinn sigur. Þórólfur jarðsettur Þeir Egill ráku lengi flóttann og drápu hvem mann, en síðan snéru þeir aftur þar sem orustan hafði verið, og hitti þar Þórólf bróður sinn, látinn. Tók hann upp Húsakaup Framhald af 8. síðu. Þess vegna ættu þeir að geta hætt, því fást munu menn til að taka við. Persónulegur varasjóður Það er sannarlega ekki ný. næmi, að útgerðarmenn hirði gróðann en láti tapið bitna á al- menningi. Vissulega byggja þeir upp, kaupa ný skip o. s. frv. enda furðar engan, því slík kaup auka getu útgerðarinnar og eru sjálfsögð. En hinn mikli auður er ekki allur látinn ganga í fyrir- tækin, því sannreynt er, að hon- um er eytt í húsakaup og íbúða, gerður að einskonar persónuleg- um varasjóði útgerðarmannsins. Það er með öllu óþolandi, að þetta ástand líðist. Við erum ekki skyldug að halda uppi miklum hluta stéttar, sem svo grimmilega fer að ráði sínu. Útgerðarmönn- um hefur nógu lengi verið hamp- að, að nú er það skylda ráðherra, að rannsaka allan þeirra útveg og sjá, hvort þessi misbrestur, sem hér er lýst fari ekki talsvert í aukana. inn er Boyer, hálfhrumur, átti að kveikja ástarbál í hjarta kommastelpu. Slíkur trúðleikur er líklega jafnvel of mikið af því góða fyrir Bandarikjamenn, sem hafa ekki sýnt þessum þætti nægilega eftirtekt að því er frétt. ir herma. lík hans og bjó um, grófu þéir gröf og settu Þórólf þar í með vopnum sínum öllum og klæðum. Egill spennti gullhring um hvora hönd honum, en síðan var grjóti að hlaðið. Síðan gekk Egill með sveit sína á fund Aðalsteins kon. ungs, og settist í hið óæðra önd- vegi. Lýsing Egils Egill séttist í öndvégi og skaut skildinum fyrir fætur sér. Hann hafði hjálm á höfði og lagði sverð ið um kné sér og dró annað skeið til hálfs, en þá skellti hann aftur í slíðrin. Hann sat uppréttur og var gneypur mjög. Egill var mik- illeitur, ennisbreiður, brúnamik- ill, nefið ekki langt en ákaflega digurt, granstæði vitt og langt, hakan breið furðulega og svo allt um kjálkana, hálsdigur og herða mikill, svo að það bar af því, sem aðrir menn voru, harðleitur og grimmilegur þegar hann var reið ur. En er hann sat, sem fyrr er ritað, þá hleypti hann annarri brúninni niður á kinnina, en ann- arri upp í hársrætur. Egill var svarteygur og skolbrúnn. Eigi vildi hann drekka þótt honum væri borinn drykkur. Gjöld Aðalsteins Aðalstein konungur sat í há- sæti og lagði sverð um kné sér. Hann dró sverðið úr slíðrum og tók gullhring af hendi sér og dró á blóðrefilinn og rétti yfir eldinn til Egils. Egill brá sverði sínu gekk á gólfið og stakk sverðinu í bug hringsins og dró að sér, og gekk aftur til sætis, og þá fóru brýr hans í lag. Lagði hann frá sér sverðið og tók við dýrshorni og drakk og mælti við aðra menn. Aðalsteinn konungur lét bera inn kistur tvær fullar af silfri og bað Egil færa þær heim til ís- lands og færa föður sínum í son- argjöld. „En sumu þessu fé skaltu skipta með frændum ykkar Þór- ólfs sem ykkur þykja ágætastir. En þú skalt hér af mér bróður- gjöld taka, lönd eða lausa aura, hvort er þú heldur villt, og ef þú vilt með mér dveljast til lengdar þá skal ég fá þér sæmd og virð- ingu, þá er þú kannt mér sjálfur til segja.“ Egill tók við fénu og þakkaði konungi gjafir og vinmæli. Mun hann dvelja með Aðalsteini í vet- Framhald af 8. síðu. skýrt á einhvern hátt, en er mér ofar, nema þá það, að það líkist óhugnanlega ófullburða fóstri. Sjálf hefur stúlkan óbeit á rak- dóti friðilsins, nærskyrtu hans o. s. frv., sem hún þó, er á mynd- ina líður, fær eipkennilega til- finningu gagnvart. Eftir langdreg in ferðalög milli snyrtistofunnar og heimilis, klunnaleg viðskipti við unga piltinn, þá kemur að því að Helen og Michael, friðill- inn, leggja af stað og nú er Carol ein eftir í íbúðinni. Þá taka við draumar og deleríur, vitanlega sálfræðilegs efnis, fantatiskir og óhugnanlegir, fjalla ýmist um, að henni er nauðgað eða hún sér allskyns ofsjónir. Þetta er og verð ur sennilega rakið til þess, að áð- ur en Helen fer í ferð sína, þá hlustar Carol nótt eftir nótt á kynferðismök systur sinnar og Michaels, og ekki verður því neitað, að mikill afbragðsmaður er Michael í ástum, ef dæma má eftir hinum ofboðslegu nautna- stunum Helenar. Úr þessu ske svo tvö morð í lokin, óskýranleg og óskiljanleg. Kvikmyndin er dágóð, alls ekki meira og leikur í meðallagi. Myndin er á sinn hátt spenn- andi, en þó ekki svo að hver með almaður þoli ekki þau „ósköp“, sem þarna eru sýnd. A.B. o—o Það er ekkert torskilið við Vík- inginn, (The Buccaneer). Mynd- in er eins al-amerísk og þær geta mest orðið, síðan Cecil B. de Mille breytti Biblíunni í spenn- andi gamanfrásögn, glæsileg glit atriði og annað bíógóðmeti. Nú er það Anthony Quinn, fyrrver- andi tengdasonur de Milles heit- ins, sem gerir Jean Lafitte sjó- ræningjann fræga, að bjargvætti allra Bandarikjanna gegn hinum óskaplegu Bretum. Andrew „grjótgarður" Jackson er í mestu vandræðum í New Orleans, því árið 1812 er ákveðið að til skar- ar skuli skríða milli Breta og Ameríkana og allar líkur benda til að Bretar, nær 16 þús., hljóti að sigra Jackson með sín 12 hundruð. En sjá, þessu er bjarg- að. Leikstjórinn safnar að sér hverjum vöðvahnút og leikfimi- manni, sem finna má i Holly- wood, lætur honum vaxa skegg, umkringir hann öllu því dóti, sem til er í prop-geymslum kvik- myndaversins og sezt síðan bak við kvikmyndavélina í stjórnar- stól sinn. Árangurinn er ein af þessum afburða glansmyndum, sem Hollywood er svo stolt af, ásamt og innan um úrval af lit- ríkum hetjum með Yul Brynner, vel hærðum og vasklegum, í far. arbroddi. Charlton Heston, ný- kominn úr Mosesæfintýrinu sínu er jafn virðulegur Jackson, ör- uggur og mikilleitur, ríðandi steingráu hrossi, góðu, milli manna sinna í víglínunni. En, innan um alla þessa dýrð, er svo skotið ástalífi bandittsins Jean Lafitte, en hann hugsar sér enga aðra en dóttur fylkisstjórans, sem auðvitað lítur hetju sína hírum augum. Og eftir alls kyns brask og leikfimiæfingar, reddar Yul New Orleans, trúlofun skötu hjúanna birt, en þá — þá kemur bobb í bátinn. Upp kemst, að Yul hefur verið óbeinlínis orsökin til þess, að systir konuefnisins var drepin á sjó úti þegar bandittar Yuls náðu bandarísku freigát- unni Corinthian á sitt vald og drápu alla og rændu þrátt fyrir algert bann Lafitte, sem hafði djúpa lotningu fyrir amerískum kaupskipum og bannaði mönnum sínum að ræna þau. Hinn göfugi Lafitte gefur til- vonandi tengdapabba aftur þá dóttur sem hann ætlaði að eiga, heldur sjálfur til skips, eftir að hafa naumlega sloppið við gálg- ann, í viðhafnarstofu tengda- pabba, og lætur úr höfn. En þá, og aðeins þá, skríður upp úr ká- etunni bráðlagleg stúlka (Claire Bloom), sem elskar og hatar La- fitte — vegna þess að hann hengdi pabba hennar, og Yul Brynnir, enn vel hærður, hórfir hugsi yfir hafið. Um hvað er hann að sugsa? Eftir að hafa skoð að hina fögru Clarie Bloom, þá skilur maður ekki hvað dvelur hann að hlaupa ekki með hana beina leið niður í káetu. Charles Boyer, hinn sjarmerandi heims- maður, mætir þama eins og clown, hversvegna er óskiljan- legt. Óskandi væri, ag Bandaríkja- menn hefðu einhvem Yul Brynn- er nú til að bjarga þeim úr úlfa- kreppunni í Viet Nam. A.B. trr. Þjóð, sem missti af „glæpnum" Framhald af 4. síðu. hverfunum, vaða íbúarnir skítinn í ökla áður en þeir stíga á fínu dúklögðu gólfin sín. Ytraborðs- mennskan er okkur eins töm og menningin öðrum þjóðum í þessum efnum og í vímu velmegunar nú, sýnum við ætíð hve skammt er í malarbúann, tómthúsmanninn, sem allt gerði sér að góðu, en gerði aldrei kröfur til neins. HESTAMENN Hafið þið reynt að gefa gæðingunum KFK- reiðhestablöndu? Ef svo er ekki, þá dragið það ekki lengur. í KFK-reiðhestablöndu eru 6 mismunandi bætiefni og alhliða samsett steinefnablanda. Gefið reiðhestunum aðeins það bezta eftir langa innistöðu. Gefið KFK-reiðhestablönd- una, sem er blönduð samkvæmt fyrirmæl- um færustu sérfræðinga og hestamanna. Köggluð KFK-reiðhestablanda fæst hjá: K F K - fóðurvörur Guðbjörn Guðjónsson Hólmsgötu 4 — Sími 2-46-94, Örfirisey. Valhallartiðindi

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.