Mánudagsblaðið - 17.06.1968, Qupperneq 5
Mánudagur 17. júní 1968.
Mánudagsblaðið
Werzlunarfulltrúar
Framhald af 1. síðu.
möguleika, sem fyrir hendi eru, en
hafa ekki verið notaðir til þessa.
Þessvegna er það meðal fyrstu
nauðsynja okkar að hafa verzlun-
arfulltnía, sem skyn bera á viðskipti
og króka og beygjur í alþjóða við-
skiptum, kunna vel til markaðsöfl-
unar og kanfia þar alla möguleika.
Markaðsleit — prósentur
Það ætti og að fylgja, að þessum
mönnum, sem við myndum allir
njóta góðs af yrði veitt sú umbun
verka sinna, að þeir hefðu prósent-
ur ríflegar af viðskiptum, sem þeir
öfluðu okkur og bæru þannig síst
skarðan skjöld frá borði. Vissulega
mætti leyfa sendiherrum okkar og
ambassadorum að leika sér í veizlu-
sölum borganna ytra, en hjá verzl-
unarfulltrúunum lægi alvaran og
þar yrði okkar málum bezt borgið.
Okkar eru miklir möguleikar ef
vilji er fyrir hendi að nýta þá. Úti-
lokað er, að hinn almenni sendi-
herra í utanríkisþjónustunni kunni
nokkur þrifleg skil á viðskiptum og
til þessa hefur verið vandað — eft-
ir því — í utanríkisþjónustuna.
Gullið tækifæri
Nú hefur ríkisstjórnin það ein-
stæða tækifæri að koma á framfæri
nýrri og heilbrigðari stefnu x'utan-
ríkisviðskiptum okkar. Ráða þang-
að unga, dugmikla og þekkingar-
mikla menn, sem vilja vinna þjóð-
inni gagn og hafa jafnframt nokk-
uð fyrir sinn snúð. Þarna liggur ein
gullkista, sem eflaust myndi þykja
girnileg, ef einhvcer hefði kjark og
vilja til að opna hana.
I
Kommúnistar
Framhald af 1. síðu.
vart NATO-skipunum, sem ný-
lega voru hér í heimsókn sýn-
ir glögigit hvað getur skeð. Nú
eru það ekki þröngar bryggjur
iheldur háskólinn, sem orðið get-
ur vettvangur óeirða og það er
skylda hins' opinbera að koma
í veg fyrir slíkt. — J.M.Á.
Hryijuverk Viet Cong manna
Mörg eru þau vcðaverkin sem unnin eru I Viet N am-styrjöldinni, en hryðjuverk á óbreyttum borjf-
urum hafa jafnan þótt árangursrík til að brjóta niður þrek andstæðinganna. Hryðjuverkamenn Viet
Cong köstuðu sprengju inn á almennan Veitingastað í Saigon, en þar sátu þessarungu stúlkur að
snæðingi. Þegar xeykurinn var á burt gat að líta þessa þokkaiegu sjón, þar sem augnabliki áður
höfðu setið þrjár ungar og giæsilegar vinkonur.
Nýji Ægir kominn til landsins
Hið glæsilega nýja varðskip Landhelgisgæzlunnar Ægir kom til landsins í fyrri viku og var tekið með mik-
illi viðhöfn. Skipið er allt hið glæsilegasta, búið tíýjustu siglingartækjum og útbúnaði, plássi fyrir þyrlu
og svo skotvopni til að herja á lögbrjóta og veiðiþjófa. Myndin sýnir Ægi við „herskipalægið" í
Reykjavík, en litla skipið fyrir framan er alnafni hans, gamli Ægir, nú seldur og ætlaður til niðurrifs. Er
mikil búbót fyrir Landhelgisgæzluna að fá slíkan kost á sín snæri, einmitt nú í ár.
/s
Helga Bachman
hlaat Silfurlampann
Sl. mánudagskvöld var Helgu Bachman Ieikkonu úthlutað Silfurlamp-
anum fyrir bezta leik á afstöðnu leikári í hlutverki Heddu Gabler.
Sýndi Helga þar frábæran leik og voru meðlimir í Félagi íslenzkra
leikdómara nær á einu máli um verðlaunaafhendingu þessa. Næst
flest atkvæði hlaut Kristbjörg Kjeld. RÍ.L. skipa nú gagnrýnendur
dagblaðanna og Mánudagsblaðsins, en félagið hefur nú um árabil
úthlutað „Lampanum" á hverju ári fyrir bezta Ieikinn.
j Þeir sem þurfa að koma auglýs- |
I ingum eða öðru efni i Mánudags- \
\ blaðið _ þurfa að koma því til J
| ritstj. í síðasta lagi á miðviku-1
j dag næstan á undan útkomudegi k