Mánudagsblaðið - 30.09.1968, Síða 2

Mánudagsblaðið - 30.09.1968, Síða 2
/ I 2 Mánudagsblaðið Mámidagur 30. september 1968 IEIKHU ÞJÚÐLEIKHÚSIÐ FYRIRHEITIÐ Höiundur: Aleksei Arbuzov. Leikstjóri: Eyvindur Erlendsson. Frumsýning án „fyrirheits64. Það verður aldrei sagt, að fyrsta verkefni Þjóðleikhússins á þessu leikári gefi sérstakt „fyrirheit". Þessi langdregni harmleikur spann- ar allt frá umsátrinu við Len- ingrad og endar ekki fyrr en um 1960. Hinsvegar gerist hann allur í sama herberginu, en það, í hönd um sviðsmálarans tekur álíka ó- merkilegum breytingum og verkið sjálft í höndum illa æfðra og ó- reyndra leikara. I Söguþráðurinn er einfaldur, ein stúlka húkir í rústum sambýlishúss í borginni umsetinni af Þjóðverj- um, kynnist síðan ungum pilti, sem búið hafði þar og svo kemur sá þtjðji, skáld, í heimsókn og dvelst áfram unz báðir fara undir vopn. Fjögur ár, ástir, gifting, piltarnir skilja, igöfugmennskan hefnir sín, uppgjör. Þeir eru vissulega enn margir serri telja ógnþfungnar sögur úr styrjöldinni, allgóðan bakhjarl að leikverki. Vera má að svo sé, en það er of mikill og hrottalegur bak- hjarl, til þess að vera inngangur að jafn hversdagslegum og rislág- um atburðum og henda líf þessara þriggja einstaklinga að hildarleikn um loknum. Að sönnu má segja, að atburðarásin skipti ekki megin máli og það er rétt. Á hitt er og að líta, að verkið er hvorki tiltakanlega list rænt, né heldur „literatur" a.m.k. virðast þýð. hafa víða sniðið af allt slíkt, því þýðing er ósköp lágreist, og oft beinlínis neðar virðingu Þjóðleikhússins. Um væl höfundar um hversu fólki í heiminum liði eftir stríð og í stríði, er það að segja, að fleiri urðu að líða en rúss- neskir og betri bókmenntir en þess ar hafa verið ritaðar um þá hörm- ungartíma og eftirköst þeirra. Það sem aðallega bjargar verki eins og þessu er tvennt og er reynd ar frumnauðsyn fyrir sviðssetningu þess, er að eiga Ieikendur í hlut- verkin og svo hitt að nýta til fulln- ustu sveiflur verksins. Hlutverkin krefjast mikilla sveifla, sem aðeins reyndir og þrosk aðir leikarar kunna að túlka og yrði þó sumum erfitt. Nýliðum er þetta ofurefli og af Ieikstjóra, sem leggur ekki aðeins blessun sína heldur og teflir fram listrænu mann orði sínu, er hér um að ræða dirfsku sem jaðrar við ókurteisi gagnvart leikhús'gestum. Leonidik er í höndum Arnars Jónssonar, reyndasta leikarans. Arnar sýnir nokkuð þokkalega tilburði á köfl- um en skortir alla dýpt, nær einna minnstu í Iokin, en þar krefst lilut- verkið þess þroska og hæfileika í túlkun, scm leikarinn hvorki hefur náð né býr yfir. Þegar eins stórt hlutverk og þetta er fært upp verð- ur ekki látið duga að noíckrir sprett ir í túlkun þess séu góðir eða fram bærilegir. Hlutverkið krefst full- kominnar túlkunar ella fellur það, eins og hin tvö hlutverkin, um sjálft sig. Ung stúlka, Þórunn Magn úsdóttir, Lika, gerði mun betri skil hlutverkinu, en það er bæði betur unnið og ögn þjálara í meðferð. Þórunn gætir mjög hófs, reyndi ekki að knýja um of á dyr hæfileik- anna til þess að rekast ekki of harka Iega á takmarkanirnar. Er sýnilega efni í Ieikkonunni ef því er leyft að þróast á réttum brautum. Marat er frumraun Hákonar Jens Waage og tókst heldur l^klega. Marat er ekki verulega erfiður meðferðar og Hákoni tókst snuðrulítið í fyrri hluta, meðan stríðið geysar. En ár- unum sem á eftir koma skilar hann ekki, og vissulega skortir hann alla útrás tilfininganna, sem hljóta að verða að vera hárnákvæm túlk- un og innri átök. Má vera, að þarna sé efnismaður á ferð, en hann er alveg óbeizlaður, taumlaus, ytra borðið sjétt en innri geisli lítill og flöktandi. Leikstjórinn, Eyvindur Erlends- son, er ungur maður, útlærður í þjóðleikhúsinu og Moskvuborg, og hefur nokkra reynslu hér heima. Ætla mætti að hann bæri gott skyn á þetta verk þar sem hann gemr sennilega lesið það á frummálinu og notið því betur hins næstum Ijóðræna blæs er skín í gegn þrátt fyrir þýðinguna. En hvað verður, jafnvel endurtekningarnar, einn af mjög ljósum og eftirtektarverðum atriðum Ieiksins duttu niður dauð- ar. Þá ætti leikstjóra einnig að vera Ijóst, að þessi átök og þessar kröf- ur eiga ekkert erindi í hendur ung linga eins og þessara. Enn síðri er sú vinsæla afsökun, að unga fólkið þurfi líka reynslu. Reynslan fæst á annan og áhættuminni hátt en þarna og gæti jafnvel orðið hættu- leg 'sumum unglingum, sem héldu sig fullnuma. Þá hafði maður oft þá tilfiningu að verkið væri lítið æft, hnökrar og hik voru einum of áberandi til að kenna það byrj- endum. Það er sjálfsagt að menn geri kröfur til þeirra sem fást við leik- stjórn. Og engu síður ættu leik- stjórar sjálfir að gera slíkar kröfur til sín. Þessu virðist því miður ekki svo farið að þessu sinni. í heild var deyfð og þróttleysi yfir sýning- Framhald á 7. síðii. SsSjl 8flpa[ ' - i 1 1 ■ Þórunn Magn'úsdóttir, Arnar Jónsson. ÞOTUFLUG ER FÍRimMáTI NÚTf MÁNS: Þótt flest hækki lækka fargjöldin. Notið hin hagstæðu haustfargjöld milli landa, sem gilda til 31. október. Fjölskyldufargjöld allt árið á innanlandsleiðum og á millilandaleiðum 1. nóv. til 31. marz. INNAN LANDS MILLI LANDA FLUGFÉLAG ÍSLAMDS —» Með litprentuðu sniðörkinni og hárnákvæmu sniðunum! — Útbreiddasta tízku- og handvinnublað Evrópu! — Með notkun „Burda-moden“ er leikur að sníða og saiíma sjálfar. Þórum % UúÁon J_cus Waaze.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.