Mánudagsblaðið - 29.01.1973, Side 1
MIKIL OG YAXANDI
ÓÁNÆGJA MEÐ MBL.
- Gísli Ástþórsson fencsmn til bjargar blaðinu
Mikil og vaxandi óánægja
ríkir meðal kaupcnda Morgun-
blaðsins vegna þess hve iéleg
stjorn virðist vera á blaðinu. Á
það jalnt við um almcnnar
fréttir og pólitískar greinar.
Gera ráðamcnn blaðsins sér þó
von unt að ráðning Gísla Ást-
þórssonar að blaðinu verði til
að bæta blaðið og er ckki óiík-
Iegt að sú von rætist. En hins
vegar mun cinn af beztu blaða-
mönnunt Morgunblaðsins hætta
þar störfum innan skamms og
flytjast yfir á Álþýðublaðið í
stól Gísla Ástþórssonar.
Fréttaflutningur blaðsins er
ntjög handahófskenndur og þótj:
það komi fyrir að blaðið nái I
góða frétt, virðist það hafa ein-
stakt lag á að gera hana út-
þynnta og leiðinlega. Þá er sá
háttur hafður á að birta orðrétt
fréttabrcf úr hinum og þessum
hrcppum landsins, án þess að
laga þau til á nokkurn hátt. T.
d. eyddi Mbl. talsverðu rúmi á
baksíðu um daginn undir eitt
tilskrifiö frá krummaskuði vest-
ur á fjörðum. Þar er kvartað
undan slæmum póstsamgöngum
þar sem ekki er hægt að
iijúga á staðinn daglega sökum
veðurs! Svona þvættingur er
birtur án nokkurra athuga-
semda. Þá velti blaðið dögum
saman vöngum yfir því, hvort
söfnunarfé til ákveðins manns
væri skattskylt eöa ekki. Loks
fann þó einn blaðamanna uppá
því snjallræði að hringja til rík-
isskattstjóra og spyrjast fyrir
um þetta atriöi og átti skatt-
stjóri að sjálfsögðu ekki í nein-
um erfiðleikum með að svara
spurningunni.
DREIFBÝLIS-
REIKNINGUR
Fyrir austan fjall hafði verið
úthlutað 20 einbýlishúsalóðum
í einu þorpinu. Þetta jtykir Mbl.
firn mikil og segja að jtar sem
íbúar staðarins séu aðeins 400
talsins, jafngildi þetta að úlhlut-
að sé 4.000 lóðum í Reykjavík.
Ekki fyrir alllcingu var byggt
eitt einbýlishús í Grímsey þar
sem eru um 80 hræður. Geta
reiknimeistarar. blaðsins nú sezt
niður og reiknað út hvað það
jafngildi mörgum þúsundum
húsa í borginni..
ULBRICHT OG FRANCO
Fyrir nokkrum dögum sagði
bíaö allra landsmanna frá því
að Spánn og Austur-Þýzkaland
hefðu ákveðiö náriari' samskipti.
Með fréttinni voru birtar mynd-
ir af núverandi einræðisherrunt
landanna þcim Franco og Ul-
bricht! Allir lesendur voru orðn-
ir drepleiðir á ótrúlega löngunt
greinum Matthíasar frá Þýzka-
landi í sumar og haust. Er það
hulin ráðgáta hverjum þessar
langlokur voru ætlaðar og nú
virðist sami leikurinn ætla að
endurtaka sig í skrifum ritstjór-
ans frá Kaupmannahöfn.
STOÐUGT I VÖRN
Um pólitísk skrif Morgun-
blaösins þarf ekki að fara
mörgum orðum. Þar virðist
blaðið alltaf vcra í vörn .og er
það reyndar í fullu samræmi
við getuleysi Sjálfstæðisflokks-
ins í stjórnarandstöðunni. Þá
bartir það ekki úr skák að enn
hefur ekki reynzt uniit að
prcnla blaðið í þeim rándýru
offsetvélum sem fest var kaup
á og þarinig virðist allt ganga
á afturfótunum hjá Mogga
þessa stundina.
Afbrotalýður borgarinnar
getur nú fengiö velþegna að-
stoð þegar á þarf að halda.
Unglingar á upptökuheimil-
inu í Kópavogi cru sóttir uni
niiönætti og eru þcir iusir
til að veita hjálp við innhrot
og önnur nauðsynleg verk.
Áð loknum þessum störf-
um gcta þeir síðan haldið
heim á hælið aftur. Þetta
fyrirkomulag cr hið þægi-
legasta og væri athugandi
fyrir forstjóra Litla Hrauns
að gefa sínum niönnum slík
tækifæri til aðstoðar.
Vart leikur vafi á að þetta
frjálsræði þarna á Kópa-
vogshælinu verður afbrota-
unglingunum injög til góðs
— eða hvað segja lesendur?
Sagt er að næsta bók Thora
Vilhjálmssonar eigi að heita:
Skáldið í skugga minum!
Jónas stundar
njósnir hjá S.Þ.!
Blaéfyrir alla
25. árgangur
Mánudagur 29. janúar 1973
4. tölublað.
Aistoð
vií
innbrnt
Hér í blaðinu hefur nokkuð
verið drepið á störf sendi-
nefndar Islands hjá Samein-
uðu þjóðunum að undanförnu.
Enn halda einstakir meðlimir
sendinefndarinnar áfram að
leyfa okkur að gægjast aðeins
bak við þann leyndarhjúp sem
virðist umlykja nefndarstörf
íslenzku sendinefndarinnar.
NJÓSNARINN JÓNAS
Það síðasta sem hefur síazt
út er það, að Jónas Árnason
gegni hlutverki njósnara innan
nefndarinnar.
Hann semur nákvæmar
leyniskýrslur um menn innan
utanríkisþjónustunnar og ná
þessar skýrslur raunar til mun
fleiri en meðlima sendinefnd-
arinnar. Ekki er fullljóst hvort
Jónas skilar þessum leyniskjöl
um síðan til utanríkisráðuneyt-
isins, eða hvort hann lætur
nægja að Magnús Kjartans-
son aðstoðarutanríkisráðherra
gluggi í þær. En í þessum
skýrslum munu sumir pólitískir
andstæðingar Jónasar fá held-
ur^Hélegar errikunnir, enda er
Jónas farinn að telja sig ein-
hvern helzta sérfræðing stjórn
arinnar varðandi erlend mál-
efni.
NEITUN EÐA ANNRÍKI
Þá rífst Hannes Pálsson
stöðugt við krataforingjana um
það, hvort það sé skilsmunur
á þvi að Guðmundur í. megi
ekki vera að því að vinna á-
kveðið verk og því að hann
hafi neitað að vinna það.
Sendinefndin hjá S.Þ. bað
Guðmund, sem ambassador
í Washington um að reyna að
hafa áhrif á hugsanlega af
stöðu Bandaríkjastjórnar til til-
lögu íslands í hafsbotnsnefnd-
inni. Ambassadorinn kvaðst
ekki mega vera að því. Hann
væri að fara að jarðarför og
síðan til Texas að hitta ein-
hvem konsúl. Þetta segir
Hannes Pálsson að þýði neit-
un, en kratar segja það al-
rangt. Guðmundur hafi bara
ekki mátt vera að því að gera
þetta. Er þetta deilumál allt
hið merkilegasta eins og von
er þegar stórgáfaðir menn
deila um heimsmálin.
Varnarliðið brá við skjótt þegar eldgosið liófst í Heiinaey og sendi tvær stórar björgunarþyrlur
til Eyja, I’ær fluttu síðan sjúklinga og ganialmenni til lands. — Einu sinni enn sannaðist að fárán-
Iegt er að ætla sér að reka varnarliðið úr landi í óþökk þorra þjóðarinnar. Það var ekki ósjaldan sem
það kom til aðstoðar áliðnu ári og bjargaði mannslífum.
Aieins laun en engin vinna
Menn velta þvi fyrir sér
hvort Útvarpið hafi virkilega
efni á að hafa menn á góðum
launum án þess að þeir gegni
neinu sérstöku starfi. Má í því
sambandi t.d. nefna Stefán
Jónsson, sem ber titilinn dag-
skrárfulltrúi. Síðustu eitt til tvö
árin hefur hann sárasjaldan
komið fram í útvarpinu og þá
sjaldan að það hafi skeð, hef-
ur það orðið til að valda
hneykslun vegna hlutdrægni.
Fyrir síðustu kosningar tók
Stefán sér frí meðan hann
reyndi að komast á þing fyrir
komma. Sú ráðagerð mistókst
Framhald á 8. síðu.