Mánudagsblaðið - 09.04.1973, Page 1
Blció fyrir alla.
25. árgangur
Mánudagur 9. apríl 1973
14. tölublað
Situr stjórnin í þrjú ár?
ðsainlyndió sýður upp iir. Iftalda Magnús og Lúóvík eið-
ana? Rússar eru uiiisvl famiklir í suiiiuui ráðuneyíuiiuni
Nú er farið að ræða það alvarlega, hvort og þá hve- ^
nær ríkisstjórnin segi af sér, vegna síaukinna vandræða
og ósamkomulags innan hennar og flokkanna, sem að
henni standa. Til stendur að senda þingmenn heim um
páskana, enda virðist þeirra vart þörf meðan ekkert til-
lit er tekið til stjórnarandstöðunnar, sem reyndar er
lítils sem einskis virði. Sveitablöðin, sem fylgja að nafn
inu til stjórninni, einkum austanblöðin, eru komin í al-
gjöra andstöðu við Hannibal, Björn og enn fleiri fyrr-
verandi samstarfsmenn stjórnarinnar, og hafa sent aðal
mönnum flokka sinna, Lúðvík Jósepssyni og Magnúsi,
harðorð mótmæli vegna þess, að þeir skuli halda sam-
starfi við brotthlaupsmennina áfram.
Bakþankar — glæpir
Ýmsir ráðamenn stjórnarflokk-
anna eru nú farnir að hafa bak-
þanka um, hvort hollt sé að
stjórna ríkimi miklu lengur. Stór-
kostleg ef ekki glæpsamleg fjár-
festing hefur riðið þjóðarbúinu
nær til heljar og flestum er ljóst,
að þessi velmegun, sem nú stend-
ur yfir, er ekki aðeins tímabundin
heldur undanfari stórfellds hruns,
ef ekki er þegar gripið í taum-
ana.
Fálm að boði komma
Það er að renna upp fyrir
mörgum, að ekki er nóg að eiga
skip og geta ekki mannað þau;
ekki nóg að friða út í fimmtíu
mílur og geta ekki varið þær .Þá
er komið í Ijós eftir milda eftir-
grennslan, að útilokað er að
hækka kaup, auka styrki og niður
greiðslur, nema hafa einhverja
sjóði til að grípa tiL Sjóðir okkar
eru að verða tómir og stjórnin
leitar nú allra bragða og fáheyrðra
til að afla sér fjár til daglegs rík-
isreksturs. Þegar á allt er litið, þá
eru það gerðir kommúnista sem
verst hafa leikið stjórnina og knú-
ið hana í aðgerðir, sem fyrirfram
voru dauðadæmdar.
Afskipti Rússa
Eiða þá, sem þeir Magnús og
Lúðvík sóru Rússunum um að
koma íslenzka lýðveldinu í nú-
verandi formi á kné, ætla þeir
ekki að svíkja. Þeir eru kvaddir
í tíma og ótíma upp í sendiráð
Rússa og daglega er það algeng-
ara að herramenn úr sendiráðinu
geri sér ferðir í ráðuneyti þess-
arra tveggja ráðherra með „ráð"
og fyrirskipanir, nákvæmlega
eins og þeir gera í dag í hinu
hamingjusnauða landi Dubcéks,
en þar ráða þeir lögum og lofum.
Situr í þrjú ár —
til að tryggja sig
Einn vinsælastl spádónuirinn
um endalok stjórnarinnar er sá, að
hún ætli sér að sitja í þrjú ár,
einkum vegna þess, að miklu þarf
að koma í lag varðandi það, að
hreiðra vel um sig, áður en stól-
unum er sleppt. Þessi stjórn veit
eins og þær fyrri, að ný stjórn
lætur sig aldrei henda það, að
ganga í berhögg við „hagræðing-
ar" fráfarandi stjórna, rétt eins og
ríki S-Ameríku passa sig að leyfa
öllum flóttamönnum annarra rík-
isistjórna að eiga vís grið í landi
sínu, ef til þarf að taka hjá þeim
sjálfum.
1 fótspor Brynka
Unnið er skipulega að því, að
koma upp embættum fyrir gasð-
inga og trausta fylgismenn, og
Framhald á 6. síðu
MartröB Tómasar skálds
Tómas Guðmundsson, skáld, varð á dögunum að bregða sér
til tannlæknis. Gekk hann á fund Þorstcins Ólafssonar, tannlækn-
is, og Ieitaði lækninga. Þorstcinn sá þegar hvað að var, en
Tómas, eins og allir mcnn, hafði nokkrar áhyggjur af pinslum
þcim, sem alltaf eru orðaðar við tannlækningar. Tómas kvaðst
hafa haft drauma þunga, næstum martröð, nóttina áður, og
taldi að óttinn við tannlækninn réði þar mestu um, cn kvað sér
þó hafa orðið Ijóð af munni. Þorsteinn bað hann scgja sér
kvæðið. — Tómas scgir:
Heyr mína bæn, ó herra minn
hlífðu mér við þvi enn um sinn
að lesa Vísi og verzla í KRON
og vera Ólafur Jóhannesson.
Ekki vitum við sannindi á þessari frétt en vonum að ekki
komi leiðrétting frá skáldinu.
Leikfang Mánudagsblaðsins
Óraunhæf að-
stoð við þróirn-
löndin
Sjá Ws. 3.
Fangana á
fiskiskipin
Sjá bls. 4.
Leikhús
5. síða.
Sjónvarpið
syðra
Sjá bls. 6.
Krossgáta —
Kynlíf og krist-
indómur —
Munkar og
nunnur o. m. fl.
Er það satt, að næst eigi aft
rannsaka rckstur sjúkrasam-
lagsins?
SKA TTCREIÐENDA FELA CIÐ
í SJÁLFSVÖRN!
MIKILL ÁHIJGI - „ALLT AÐ DREPA^
Rammagrein Mánudags-
blaðsins, sem birth.t í síðasta
tölublaði og fjallaði um
„skattgreiðendafélög“ hefur
vakið greinilega athygli. Rit-
stjórn blaðsins hefur fengið
bæði bréf og upphringingar
varöandi þessa hugmynd, rétt
eins og hún kæmi frá okkur.
Svo er þó ekld. Við aðeins
hleruðum þessa hugmynd, en
svo virðist að margir séu
hrifnir af henni og vilji
stofna einhverskonar samtök
skattgreiðenda. Ekki spillir
að danskur maður, Mogens
Glistrup, hefur fengið byr
undir báða vængi er hann
stofnaði flokk danskra
„skattafneitara“ og fer hreyf-
ing hans komin til Sviþjóð-
ar og Noregs, að sögn blaða.
Það fer ekki milli mála, að
allur almenningur er orðin
ansi þreyttur á ofsköttun og
innheimtu opinberra gjalda.
„Rukkanir“ dynja yfir í út-
varpinu, ,blöðin eru full af
allskyns tilkynningum um
„uppboð“ á cignum manna
og fyrirtækja — síminn „lok-
ar“ vegna smáskulda fyrir-
varalaust, jafnvel í miðju
símtali og svo má lengi tclja.
Svo er að sjá, að borgarinn
hafi enga vörn, ncma harð-
skeytt samtök ef til kemur.
Flokkarnir eru svo gegnsýrð-
ir af styrkja- og ölmusukerf-
inu, niðurgreiðslum og „að-
stoð“ til atvinnuveganna, að
pynda verður fé af einstak-
lingum gcgndarlaust tíl að
henda í hítína.
Það er því engin fnrða
þótt almcnningur og einstak-
lingar séu að gefast upp.
Núverandi stjórn hefur geng-
ið Iengra en nokkur önnur i
opinberri eyðslu, óþarfa
skipakaupum, niðurgreiðslum
o.s.frv. Skattgreiðcndur vilja
gjarna vita í hvað þetta fé
fer og á að fara og vilja hafa
hönd í bagga um 'hvort hin
eða þessi framkvæmd getí
ekki beðið betri tíma en öllu
sé ekki skellt á þjóðina í
cinu.
í
Islenzk börn til sölu! — Klukkurán í Eyjum — Fjandinn
um fimmtugt — Þjófar hengdir og brennimerktir — Kon
ur réttaðar. — Nýr greinaflokkur hefst í dag á bls. 2.