Mánudagsblaðið - 21.11.1977, Síða 2

Mánudagsblaðið - 21.11.1977, Síða 2
2 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Vegna þess hlés sem var á útgáfu blaös- ins, og sagt er frá á öðrum stað, hafa mörg bréf sem blaöinu bárust ekki gildi lengur og verða því ekki birt. Lesendur eru beðnir afsökunar á þessu og um leiö hvattir til að láta heyra frá sér og senda blaöinu bréf. Nú heldur útgáfan áfram af fullum krafti og bréf frá lesendum eru vel þegin eins og áður. Naðsyn á að fá hressilegt Mánudagsblað Hr. ritstjóri. Er ekki sumarfrí blaðsins að taka enda? Ég hef saknað þess að fá ekki Mánudagsblaðið í viku hverri og vona að þetta hlé g útgáfunni sé aðeins um stundarsakir en verði ekki langvarandi. Mánudagsblaðið er venjulega miklu hressilegar skrifað en önnur hlöð sem hér koma úl og alveg lífs- nauðsynlegl að fá það í hendur til að líl'ga upp á tilveruna. Halldór Laxness sagði fyrir skömmu að það væri mjög hlægilegl að lesa hástemmdan stil um hvers- daglega atburði og kynduga sem gerasl i okkar þjóðlífi. Hann sagði menn lesa svo mikið af dönskum vikublöðum að það ruglaði þá alla i málinu. Lesa of mikið af skrílfregn- um úr þessum hlöðum. sem eru sá mesti óþverri sem hægl er að draga upp á norðurhveli. Ég er alveg sammála skáldinu. Það er hlægilegt að lesa þennan rembings- stíl sem tröllriður dagblöðunum þar sem a111 á að vera svo ósköp mcrki- legt og hátíðlegt þótt vcrið sé að skrifa um eitthvað sem er aigjört prump. Þessi skólabókastill á fréttum um margt sem er í rauninni bráð- fyndið drepur niður öll skemmtileg- heit í dagblöðunum. Það er því hrein nauðsyn að fá hressilegl Mánudagsblað sem fyrsl i gang aftur og vona ég að ritstjórinn hafi bara verið að safna meira púðri til þess að geta sent mergjaðar breið- síður í allar áttir. H.R.J. Þjóðleikhúsið - Týnda teskeiðin: ÁGÆT HUGMYND - ILLA UNNIN Þjóðleikhúsið: Týnda teskeiðin Höf.: Kjartan Ragnarsson. Leikstj.: Briet Héðinsdóttir. Það sem háir íslenskri leikrit- un í dag, aðallega, er hin mikla og lítt afsakanlega óvandvirkni íslenskir höfundar rata oft á góðar hugmyndir en þeir slá yfirleitt slöku við í að útfæra þær hugmyndir. Eitt nýjasta dæmi slíkrar óvandvirkni er Sólarferð en spánýtt dæmi er Týnda teskeiðin eftir hinn unga og frjóa höfund Kjartan Ragn- arsson. Efnið er gott, að vísu gamalkunnugt úr heimi leik- bókmennta, tilsvörin oft góð og atburðarásin ekki fjarri góðu meðallagi en um of lang- dregin á köflum, eins og höfundur sé að reyna að teygja iopann, eitt hættulegasta og um leið algengasta bragð höfunda — þegar þeir eru komnir í vandræði einkum i seinni hluta 1. þáttar svo og eftir hlé. Það gefur auga leið að jafn afkastamikill höfundur og Kjartan, hlýtur að láta gæðin koma niður á efninu þegar svo hratt er unnið. Hugmyndirnar 1. Vélarþvottur 2. Hreinsun og feiti á geymissambönd 3. Mæling á rafgeymi 4. Mæling á rafhleðslu 7 Skipt um kerti 8. Skipt um platínur 9. Stilling á viftureim 10. Skipt um olíu og olíusíu 11. Mæling á frostlegi 12. Vélastilling 5. Hreinsun á blöndung 6. Hreinsun á bensíndælu 13. Ljósastilling Verð með söluskatti: 4 cyl. B18-B20-B21 Kr. 17.299.00 6 cyl. B30-B27 Kr. 18.299.00 InnHfalið í veröi: Ratínur; olíusía, þurrkublöð, ventlalokspakkning.kerti, vinna, vélarolía. Suðurlandsbraut 16 • Sími 35200 eru sóttar að víðsvegar, sumar góðar aðrar miðlungs. En hvar er úrvinnslan? Það er eigi að síður vandaverk að semja gamanleik um alvarlegt viðfangsefni. Margir reyna að dylja dauða punkta með óþarfa hávaða og leiklátum. Oft gera leikararnir þetta sjálfir — ef þeir skynja hortitt í replikkum eða situasjónum. En það er slæmt af báðir, bæði leikarinn og höfundur finna með sér þennan galla og reyna að breiða yfir hann eða eyða honum með ekki leik, heldur brögðum. Þá er hér að finna mikið ósamræmi í leik eða leikhætti. Til dæmis leikur Róbert Arnfinnsson yfirleitt hlutverk sitt „straight” en Sigríður Þorvaldsdóttir kona hans, yfirleitt farsa og, satt best sagt, lélegan farsa. Vitanlega má sakast um þetta við leik- stjórann, Brietu Héðinsdóttur, en þó hefi ég grun um að hún hafi séð einhver missmíði á hegðan Sigríðar, nema leikkonan sé svo góð, að eigin áliti að hún láti ekki að stjórn. Höfundur skapar ekki að ráði nokkrar frumlegar týpur. Þær eru hversdagslegar úr leiktýp- um íslenskra nútímaverka eins t.d. Begga, Guðrún Þ. Stephensen, ein af þessum al- kunnu vinnukonum sem skreyttu hvert embættismanns- heimili fyrir strið og höfundur þekkir einungis af afspurn og lestri. Bóndi hennar, Baldi, Flosi Ólafsson, er venjulegur fullur ruddi eins og til er ætlast, Nú bjóða öll umboósverkstæöi VOLVO umhverfis landið sérstaka VETRÁR SKÖÐUN VOLVO tilboð fram til 30.11. ROCKW00L Hljóðeinangrun fyrir iðnaðar, og verksmiójuhús Samband íslenzkra samvinnufélaga Innflutningsdeild Sambandshúsið Rvík sími28200

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.