Mánudagsblaðið - 20.12.1978, Side 1
VERÐ
KR
200.-
30. árgangur
Miðvikudagur 20. desembeit 1978/
19. tbl.
Mánudagsbladid birtir bréf frá
íslenskum óaldarlýð:
„Rauðir Khmerar”
valda íkveikjum
í höfuðborginni!
í næsta blaði birtum við greinargerð um
„glæp aldarinnar” hér á landi, frá glæpa
mönnunum sjálfum. — Von er á kröf um
frá óaldaflokknum bráðlega!
Það hlaut að koma að þvi. Eins og marga hefur
grunað er hér starfandi eins konar óaldaflokkur,
sem kallar sig þvi óliklega nafni Rauðu Khmerarn-
ir, og stendur hann fyrir óliklegustu óþrifaverkum
m.a. húsbrunum, ikveikjum og öðru álika. Þessir
flokkur hefur skrifað blaðinu bréf og telur hann sig
vera ábyrgan m.a. fyrir ikveikjum og alls kyns
skemmdarverkum sem hann telur hafa átt sér stað
hér i höfuðborginni, en ekki alltaf verið getið i blöð-
unum eða verið haldið að þessir brunar eða óhöpp
væru af eðlilegum orsökum.
Blaðinu hafa borist tvö bréf, undirrituð af þessum
Kherum, og birtum við sýnishorn af öðru þeirra,
þar sem hótað er frekari skemmdarverkum á
mannvirkjum og það sem verra er hefndarverkum
gagnvart ýmsum einstaklingum, sem ekkert virð-
ast hafa til unnið annað en að vera sjálfbjarga
businessmenn og leiðtogar á ýmsum sviðum i þjóð-
félaginu.
Hirtu Vesturgötuhúsið og
rifðu kattaróféfið, Þorkell
Keli og kötturinn
Hvernig er eiginlega með viðskipti hins ágæta
Þorkells Valdimarssonar og hins opinbera? Þau eru
í augum aimennings að verða dálítið skemmtileg,
annarsvegar borgaryf irvöldin og Kötturinn og hins-
vegar núna Alþingi og Kötturinn. Borgin bannar
eigandanum að byggja á Kattarloðinni og bannar
honum einnig að rífa þennan kumbalda, sem nefnd-
ur er Fjalakötturinn. Það er vitað að Þorkeil stór-
tapar á Kettinum, opinber gjöld eru miklu meiri en
gróðinn af húsinu. Borgin vill halda þessarri byggin-
gu uppistandandi en hefur hinsvegar ekki efni á að
kaupa hana. Húsnæðislaus ræknislýður efnir til mót-
mæla og leggst fyrir vinnuvélar sem voru að ryðja
lóðir eigandans.
Af meðfæddu örlæti gaf Þorkell Alþýðusambandi-
nu húseign sína. sögulega, við Vesturgötu, og hún
var þegin af kvenmanni sem ekkert umboð hafði til
þess og Alþýðusambandið komst, og er í, mestu
vandræðum út af öllu þessu.
Spurningin er: hve lengi á þessi skripaleikur af
hálfu hins opinbera að ganga? Annaðhvort gerir
borgin eða hið háa Alþingi hreint fyrir sínum dyrum
ella við stingum því að Þorkelli, að hann taki hús sitt
við Vesturgötu til baka og rífi kattarsvikindið.
Your move, Þorkell.
,,Hingaö til höfum við ekki gert
annaO en aö koma af stað smá-
brunum og litlum skemmdar-
verkum, sem ekki koma að sök.
Dagblaöið Visir minntist á, að
hópur brennuvarga væri hér
starfandi en gerði ekki frekar i
málinu, svo við ákváðum að
skrifa ykkur. Enn sem komið er
leggjum við ekki fram kröfur
okkar en þið komið til að fá þær
bráðlega. Til umhugsunar send-
um við ykkur hér með dáiitla
greinargerö um alvarlegt efni,
sem vonandi veröur ykkur, sem
og öðrum kapitalistum til um-
hugsunar.”
Efni þessa bréf birtum viö ekki
Framhald á 20. isiðu.
Jóla- og
afmælis-
blað
Þetta blað er í
rauninni bæði jólablað
okkar og afmælisblað.
Til stóð að það væri
stærra og f jölbreyttara
en kringumstæður
höguðu því, að svo
gat ekki orðið. Þann 4.
október s.l. voru liðin 30
ár síðan fyrsta tölublað
Manudagsblaðsins kom
út I þá tíð kostaði blaðið
eina krónu og var upp-
lagið milli 11 og 13 þús-
und. Allt blaðið prentun
og pappír, í þá daga
kostaði innan við 2000
krónur. I dag kostar
blaðið á viku röskar 220
þúsund krónur og hvert
eintak kr. 200.- og þó
upplagið minna en á
fyrri árum.
Um leið og við
þökkum öllum kaupend-
um og velunnurum
blaðsins trygga fylgd,
og óskum þeim árs og
friðar, þá vonum við að
þeir kaupi áfram blaðið
og þykjumst vissir um,
að okkur auðnist að
halda áfram á sömu
braut.
Þótt myndin sU arna sé fremur sumarleg og gæri þvl flokkast
undir tfmaskekkju, ætlum við samt að nota hana hér og nú. Þessi
stúlka heitir Birgit Stefansen og vann sér það tii frægðar að
verða feguröardrottning Danmerkur fyrir árið 1978. Hún er
semsé baunsk, — en þrátt fyrir það notum við þessa mynd til að
senda unnendum Mánudagsblaösins um land allt ósk um
GLEÐILEG JÓL
OG FARSÆLD A KOMANDI ÁRI