Mánudagsblaðið - 20.12.1978, Qupperneq 14

Mánudagsblaðið - 20.12.1978, Qupperneq 14
14 Mánudagsblaðið Miðvikudagur 20. desember 1978 Á alþingi spjölluðu þingmenn saman og bar margt á góma. Ekki voru þó stjórnmál rædd heldur aðrir yfirnáttúrulegir hlutir t.d. annað líf, endurholdgun ofl. Vilmundur Gylfason var með þingmanna og segir allt í einu: Mig dreymdi undarlegan draum í nótt. Migdreymdi að hann ólafur Ragnar Grímsson væri dauður og var ég viðsíaddur við útförina, fylgdi honum suður í kirkju- garð og sá þegar honum var holað niður. — Skömmu seinna átti ég leið í kirkjugarðinn með Lúðvík samþingsmanni og er viö geng- um fram hjá leiði ólafs brá okkur heldur því þar var hið mesta jarðrask og umbrot uns upp úr moldinni kom sjálfur andskotinn og stundi upp: Ég krefst hér hælis sem pólitískur flóttamaöurl! ★ Það var einu sinni sagt að Islendingar væru svo heiðarlegir, að ekki væru hér á landi nein fangelsi. Breyttir timar, aukin velmegun hafa breytt öllu því enda eru borgarar hér manna hnuplsamastir. Sem dæmi um það má nef na að ekki er óhætt að skilja nokkurn hlut eftir á borði ef menn fara út á hótel. öllu er stolið, drykkjum, tóbaki og kveikjurum, auk taskna dömu. En landinn lætur það ekki duga. Á Borginni eru lanpar á borðum, allsnotrir. Gestir hafa þegar stolið nokkrum — auk þess sem þeir snyrtilegustu hafa þaö sér til dundurs að kafa með handleggnum niður i klósett- skálar, vatnskassa, og nema á brott alls- kyns hluti, flotholt, ofl. Sú var tíðin að þessar hetjur létu sér nægja hlandsteinana. Þeir heldu aö þeir væru sápustykki ★ Það er sagt að óvenjulega litið hafi verið um búðahnupl á þessari jólainnkaupatíð — það sem af er. Sannleikurinn er sá, að kaupmenn hafa vakandi auga með þeim sem virðast koma erindislausir inn í búðir Vilmundur og útför Ólafs — Þjófóttír gestir - Klósettæfintýri Klúbbar 79, sex-mad Gleðileg Jól þeirra og eru jafnfljótir að þekkja þetta fólk út. Þo má segja að þeir séu óvenju seinir til að kæra búðarþjófa, hika við það af einhverri misskildri góðsemi. Þetta er afar hættulegt fordæmi f stað þess að kæra þá þegar í stað. Og talandi um vísindalegan þjófnað. Kona ein fór á toilette i einu af hótelum borgarinnar. Hún skildi veski sitt eftir á vaski meðan hún athaf naði sig og þegar hún gætti að því var það horfið. Þetta var síðla kvölds og fór konan heim veskislaus. Daginn eftir hringdi i hana maður, kynnti sig og kvað sig vita hvar veskið væri. ,, Konan mín" sagði maðurinn" er nefnilega með stelsýki og tók veskið. Nú vil ég hitta yður klukkan fjögur í dag (og tiltók hótelið), og við fáum okkur kaffisopa og ræðum málið". Konan varð himinlifandi, þakkaði kærlega fyrir greiðvikina og var mætt á tilteknum stað klukkan f jögur. Hún beiðog beið til klukkan 5:30 en gafst þá upp og fór heim. Þið getið ímyndað ykkur undrun hennar er hún kom inn í íbúð sína og sá, að þar var búið að „hreinsa" ailt verð- mætt út. Semsagt, þjófarnir höfðu valið hana úr, þekkt ástæöur hennar og hirt eigur hennar meðan hún beið þeirra. ★ Fyrir nokkrum vikum var lítillega minnst hér á Klúbb 68. Það var reyndar vitlaust númer því klúbburinn er númer sjötíu og átta, en réttilega var skýrt frá starfi hans. Nú vorum við að frétta, að starf þessa klúbbs færist mikið í aukanna og kunna dömu—meðlimir sér varla hófs sökum hins vilta kynlífs sem þarna á sér stað. Aldurinn virðistekki skipta máli, kariarnirneru hinir f jörugustu og konurnar ganga uppi að láta sitt ekki eftir liggja. Hvað á ég að Þannig spyr margur þessa dagana gefa lóní og Gunnu Við bendum á gagnlegar og vandaðar gjafir: Samanlagðir sfólar sem allsstaðar henta, í stofunni, eldhúsinu, sumarbústaðnum eða í garðinum. Smíðaðir úr völdu brenni. Margir litir. Verðið aðeins kr. 5.000.- Nudd- púðinn frá Sviss VIBRAMED nuddpúði með hita. Eykur blóðrás og hressir ótrúlega. 3 mismunandi nudd- hraðar. Vinnur á við sex hend- ur. 5 ára ábyrgð. Tísku- stóllinn frá Thonet Nudd tækið VIBROSAN nuddtækið með 5 munnstykkjum og mismunahraða, nuddar einnig með titr- ingi og vinnur á sama hátt og nuddpúðinn. Með tækinu er hægt að fá brjóstaklukku til þess að styrkja brjóst- in. 2ja ára ábyrgð. brothe, iiol ■i □ a m |§| gjjp {gg jg|| |g| ETU DIÐITS .......:..: Yasa- tölvur Eigum fyrirliggjandi 6 gerðir af hinum frá- bæru BROTHER vasatölvum. Allt frá einföldustu gerð upp i vísindatölvu. I árs ábyrgð. Prjóna- vélar BROTHER 830 prjóna- vélin er lang-fullkomn- asta prjónavélin á markaðnum, en er samt lang-ódýrust. Eigum ennþá örfáar vélar á hinu ótrúlega verði kr. 155.000.00. Hefir ma :ga kosti framyfir a11ár aðrar prjónavélar. Kennsla innifalin í verði - BORGARFELL Skólavörðustíg 23, sími 11372

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.