Mánudagsblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 23
Mánudagsblaðið
23
Miðvtkudagur 20. aesember 1978_
Þrjár góðar
frá Helgafelli
Þessi nýja saga Halldórs Lax-
ness frá æskuárum hans á sér aö
mestu leyti staö á stuttu tímabili
milli tveggja fyrri bóka hans,
annars vegar sögunnar í túninu
heima og hins vegar tJngur ég
var:þaö er aösegjaaö hdngerist
um 1918-19. Vitaskuld gripa hug-
myndir höfuridar frá öörum
timum inn I frásögnina, þó aö
yfirleitt greini þær sig skyrt frá
þeim tima, sem hiin lysir. Fyrst
og fremst er höfundur aö tala um
Reykjavik sem eden æsku sinnar,
áöur en undrun hans snýst upp i
lifsreynslu. Þetta er auövitaö
harla einkennilegur staöur, þar
sem allt fólk, þekkt san óþekkt,
er sögupersónur i höföi upp-
rennandi skáldsagnahöfundur og
þessvegna ábyrgöarlaust gjöröa
sinna gagnvart honum, hvaö sem
ööru liöur. Sögumaöur er aö lýsa
ósviknum sagnahöfundi á æsku-
skeiöi með þvi aö láta hann s jálf-
an segja frá: ef fólkið væri alveg
raunverulegt og höfundur hvers-
dagslegur þátttakandi i ilfi þess,
hlyti hann aö krefja þaö fullrar -
sögulegrar ábyrgöar gagnvart
sér persónulega. Ég leyfi mér aö
ætla aö þessiskilsmunur sé kjarni
sögunnar.
K.K.
Draumar
karl-
manna
snúast
meira
um
kynlíf
en
draumar
kvenna
Draumar karimanna
snúast meira um kynlíf
en draumar kvenna ef
marka má könnun sem
gerð var á 100 karlkyns
námsmönnum og jafn-
mörgum námsmeyjum.
Dr. Robert Van de
Castle framkvæmdi
þessa könnun og safnaði
saman frásögnum um
1000 drauma sem þessi
tvö hundruð ungmenni
hafði dreymt. Niður-
staðan varð sú að um 4%
kvennanna dreymdi
eitthvað um kynlíf en
12% karlanna.
Einnig virtist sem
konurnar þekktu yfir-
leitt þá karlmenn sem
komu við sögu i draum-
um þeirra en karlmenn-
ina dreymdi aftur á
móti að þeir ættu í ástar-
makki við alls óþekktar
konur.
Konurnar gengu yfir-
leitt ekki lengra en að
faðma og kyssa i
draumum sinum en
karlarnir höfðu yfirleitt
samfarir við „drauma-
stúlkurnar" sínar.
Frægar smásögur þýdd-
ar af snillingum tung-
unnar á nitjandu öld
Ein höfuöprýöi blaöa og ttma-
rita á öldinni sem leiö voru þýdd-
ar smásögur. Þar lögöu margir
helztu rithöfundar og ljóöskáld
þjóöarinnar hönd aö verki, eins
og sjá má af efnisyfirliti þessa
safns: Gröndal, séra Matthias,
Þorsteinn Erlingsson, Hannes
Hafstein, Þorgils gjallandi. Menn
settu sér hátt mark og leituöust
viö aö kynna ýmislegt hiö
fremsta I smásagnagerö aldar-
innar: þvi er hér aö finna sögur
eftir Tolstoy, Turgenjef, Poe,
Kielland, nóbelsverölaunaskáldiö
Paul Heyse o.sírv. Þessar sögur
eru þdýddar á einu blómaskeiöi
tungunnar og bera þaö meö sér.
Málfariö er vandaö, en einkum
óþvingaö og eölilegt, eins og þá
þótti bezt, og þannig kemur það
fyrir enn.
Kristján Albertsson hefir valiö
sögurnar af kunnugleik og
smekkvisi eins og hans er visa:
hann skrifar ennfremur ágætan
formála þar sem hann gerir f
fáum oröum ljósa grein fyrir
hlutverki söguþýöinga 1 fram-
gangi bókmennta vorra á þeirri
tiö.
K.K.
Fyrir utan ljóöabækur slnar lét
Siguröur Sigurösson frá Arnar-
holtieftir sig ljóð og brot I biööum
oghandriti. Hér birtist nii I fyrsta
sinn heildarútgáfa á ljóöum hans.
Jóhann Gunnar ólafsson fyrrver-
andi bæjarfógeti hefir séð um út-
gáfuna og ritaö mjög fróölegan
formála.
Siguröur frá Arnarholti stendur
1 fremstu röö islenzkra skálda frá
fyrstu áratugum aldarinnar.
Hann er i hópi þeirra, sem þá
taka aö gera hinar hæstu kröfiir
um vandaö form og um feguröar-
leit I efnisvali. Þessar kröfur upp-
fyllti Siguröur flestum betur og
hann varö einn af upphafs-
mönnum nýrrar ljóölistar, þar
sem draumhneigö, langanir og
geöhrif sitja i fyrirrúmi. En
hugsun hans er svo skýr og til-
finningin sterk, aö hann verður
aldrei daufur og þvi sföur
væminn. Hann vildi ennfremur,
aömál ljóöa færi sem næst mæltu
máli eins og þaö er bezt og eöli-
legast. Málfar hans er ákflega
hljómmikiö og ljóölinurnar heil-
steyptar. — A slðustu árum
veröur skáldskapur hans yfirleitt
mjög hlýr og nærtækur með blæ
af samtali eöa jafnvel góölátlegu
rabbi, oi alltaf bregöur lika fyrir
tilkomumiklum stil og sterkum
tilþrifum. Hann byrjaöi skáldferil
sem skáld mikils stíls, geröist at-
hafnamaður um langt skeiö
ævinnar, siöast orti hann einkum
sér og vinum sinum ti/ hugar-
hægöar og þaö hefir lika sitt gildi.
K.K.
Ægisútgáfan
í röstinni
Sagan gerist i sjávarplássi sem
má muna ,,Fifil sinn fegri”. Ljóst
er hvaöa staö höfundur gerir aö
sögusviði, ai þrátt fyrir undan-
gengna erfiöleika eru þar enn ris-
miklar persónur meö hugsjónaeld
i æöum.
Baráttan er hörö og átök mikil.
— Völd — peningar og ástir
mynda rammann um myndina.
Þótt allt viröist fremur stillt á
yfirboröinu, dylstekki undiraldan
— ástriöurnar — tilfinningahitinn
— metnaöurinn og athafnaviljinn
sem ekkert fær bugaö.
Sildarævintýriö skiptir sköpum
einsog oft hefur gerst á Islandi.
Síldarbraskarar, aflakóngar og
sildarstelpur leika sitt hlutverk
og ótal fleiri minnisstæöar
persónur koma viö sögu.
Þetta er raunsönn saga, sem
viö könnumst viö aö fornu og
nýju .Ein þeirra sem á sér rætur I
þjóðarsálinni og veröa vonandi
alltaf lesnar á Islandi.
Ægisútgáfan
Gleðileg
jólagjöf
Nú gefur Happdrætti Há-
skólans þér kost á skemmti-
legri og óvenjulegri jólagjof'
handa vinum og vanda-
mönnum. _ ,
Þú getur fengió sérstakt* .. •
gjafakort hjá næsta
umboðsmanni HHÍ. Gjáfa-v
kortiö er gefið út á nafn, en .
eigandi þess getur svQ-vá'fí§,"'
sér mióa í HHÍ ’79 stráx e '
hátíðar hjá hvaða umboðsíC
manni sem er!
Gjafakort HHÍ getur óváejit^
orðið að gleðilegri jólágþþftH/S
ef vinningur fellur á .
miöann, sem valinn er.
Vinningur er alls ekki ólík
legur — vinningshlutfall
HHÍ er það hæsta í heimi!
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS
Menntun í þágu atvinnuveganna
Tilboðið gildir í hádeginu alla daga fram
yfir þrettándann.
Gleðilega hátíð - Verið velkomin.
Fyrir a. m. k. 15 manna hópa t. d. starfs-
hópa: 10% afsláttur.
Á kalda borðinu er úrval kaldra rétta:
Roast beef, skinka, svínasteik, lambasteik
og kjúklingar. íslenskur matur; hangikjöt,
hákarl og annað súrmeti. Einnig síldar-
réttir og fjölbreytt úrval fiskrétta.
Auk þess margt fleira gómsætra rétta.
HQTEL
LOFTLEIÐIR