Tíminn - 20.01.1970, Qupperneq 9

Tíminn - 20.01.1970, Qupperneq 9
a>S»JUDAGUR 20. janúar 1970. TIMINN '<*» <$> mmmm r Úrgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framikvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Ritstjómar- sikrifstofur i Edduhúsinu, símar 18300—18306 Skrifstofur Bankastræti 7 — Afgreiðslusími: 12323 Auglýsingasími: 19523. Aðrar slkrifstofur sími 18300. Áskrifargjald kr. 165.00 á mán- uði, innanlands — í lausasölu kr. 10.00 eint. - Prentsm. Edda hf. Bræðslufiskur Góðar horfur eru nú á því, aS loðnuveiðar muni senn hefjast og færa góðan feng í þjóðarbúið, líkt og á síðast- liðnu ári. Loðnuveiðarnar bættu þá að talsverðu leyti úr því áfalli, sem hlauzt af samdrætti síldveiðanna. Aukin hagnýting loðnunnar bendir til þess, að nýta megi fleiri tegundir bræðslufisks, sem veiðist hér við land, en þegar hefur verið gert. í tilefni af því hafa Vilhjálmur Hjálmars- son og átta aðrir þingmenn Framsóknarflokksins flutt til- lögu um það í sameinuðu þingi, að Alþingi skori á ríkis- stjómina að láta hefja skipulega leit, rannsóknir og veið- arfæratilraunir í því skyni, að auka veiðar á bræðslu- fiski með það fyrir augum að gera þær veiðar fjölþættari. í greinargerð tillögunnar er vitnað til greinar, sem Jakob Jakobsson fiskifræðingur birti fyrir nokkru í Ægi. Hann telur þar, að unnt sé að stunda loðnuveiði nokkru lengur en nú er gert og þá einnig á öðrum veiðisvæðum og á þeim árstímum, þegar loðnan er feitust og gefur mestar afurðir. Þá er rætt um þrjár aðrar fisktegundir, spærling, sandsíli og kolmunna, og komizt að þeirri -niðurstöðu, að þær megi allar nýta sem bræðslufisk, ef að líkum láti. Væri hér um fjölþætta möguleika að ræða, þar sem spærlingur og kolmunni mundu væntanlega veiðast hvor á sínu hafsvæði og á mismunandi árstímum, en sandsílið sennilega veiðanlegt á grunnsævi víðs vegar við landið. í niðurlagi greinar sinnar kemst Jakob Jakobsson svo að orði, að „til þess að vel takist til um slíka nýbreytni, þarf samstillt átak í rannsóknum, fiskileit og veiðarfæra- tilraunum.“ Ætti að mega vænta þess, að allir þeir, er hugleiða þessi mál, komist að sömu niðurstöðu. T Ef hægt væri að veiða nýjar tegundir bræðslufisks í verulegum mæli, myndi afkastageta síldarverksmiðj- anna nýtast betur að sama skapi. Þannig væri hægt í senn að veita fjölda manna atvinnu og auka útflutningsfram- leiðsluna. Flutningsmenn þessarar tillögu telja því einsýnt, að hefjast beri handa um þær aðgerðir, sem í tillögunni greinir, og þá að sjálfsögðu á vegum Hafrannsóknastofn- unarinnar, sem nú annast fiskileit íslendinga. Flutningsmennirnir leggja sérstaka áherzlu á það, að aðgerðir þær, sem þingsályktunartillagan fjallar um, verði eigi framkvæmdar á kostnað annarrar fiskileitar. Síldarrannsóknum ber, að þeirra dómi, að sinna af fullum krafti og efla rannsóknir og leita að öðrum stofnum, svo sem rækju, humar og skelfiski, svo að dæmi séu nefnd. Mun það mála sannast, sem sagt hefur verið, að lang arðbærasta fjárfestingin, sem hugsanlegt er til aukinnar fiskveiða, sé vel skipulögð fiskileit, ásamt tilheyrandi rannsóknum og veiðarfæratilraunum. Glundroðasöngur Sjálfstæðismenn í Reykjavík eru byrjaðir á hinum gamla söng sínum, að glundroði og upplausn muni skap- ast í málum Reykjavíkurborgar, ef Sjálfstæðisflokkur- inn missir þar meirihlutann. í mörgum öðrum bæjar- félögum hefur enginn flokkur haft meirihluta um langt skeið, og stjórn þeirra þó tekizt mun betur en stjóm Reykj avíkurborgar. Yfirdrottnun eins flokks er engin trygging gegn glundroða og lélegri stjórn. Þvert á móti leiðir langvar- andi stjóm sama flokks oft til kyrrstöðu, spillingar og margvíslegs glundroða. Því miður finnast slíks alltof mörg dæmi í stjórn Reykjavíkurborgar. Því verður ekki breytt, nema yfirdrottnun Sjálfstæðisflokksins verði hnekkt 1 næstu borgarstjórnarkosningum. Þ.Þ. Stefán Jónsson, fyrrv. skrifstofustjóri Gjaldeyrisnefndar: Vöruskiptajöfnuður - viðskipta- jöfnuður - greiðslujijfnuður... Um nokkurt skeið hafa stjóm arblöðin, einkiun Vísir og Al- þýðublaðið, flutt þann boðskap, a3 blómið, sem dó, sé nú endur fætt. Er hér átt við hinn svo- kallaða varasjóð í erlendum gjaldeyri. Þessi boðskapm- nefndra blaða um endurlffgun varasjóðsins hefur verið á þá leið, að þjóðin hafi safnað gjald eyri í varasjóð á s.l. ári er nemi milli 1.500 og 2.000 millj. króna. í sambandi við þennan gleðiboðskap hafa blöðin lítið minnzt á erlendar skuldir eða þá smámuni, hvort varasjóður- inn sé myndaður með erlendu lánsfé eða til kominn fyrir þá ráðdeild, að þjóðin hafi notað minni gjaldeyri en hún hefur aflað. Til staðfestingar á þessum jólaboðskap smærri stjómar- blaðanna, snýr Morgunblaðið sér til dr. Jóhannesar Norðdal, seðlabankastjóra 10. þ.m. og biður um álit hans á boðskapn- um, en fær fremur neikvætt svar. Dr. Jóhannes seðlabanka- stjóri segir: Reiknað er með að viðskiptajöfnuður hafi náðst á s.l. ári, og er það í fyrsta skipti síðan 1965. Sá bati, sem hér um ræðir, er því ekki þess eðl- is, að þjóðin hafi safnað gjald- eyri að ráði umfram það sem hún hefur notað, heldur hefur raunveraleg skuldasöfnun við útlönd ekki vaxið umfram gjald eyriseignina. Um framtíðina vill bankastjórinn ekkert full- yrða, en telur það eftir atvik- um góðan árangur, að viðskipta jöfnuður skyldi nást á s.l. ári, og munu flestir sammála hon um um það. Varasjóð forðast hann að nefna í þessu sam- bandi, enda minnist ég ekki, að hann né Jónas Haralz banka- stjóri, hafi nokkm sinni notað varasjóðsnafnið í sambandi við gjaldeyrisstöðuna á tímum við- skiptahalla, eða við þær að- stæður, að gjaldeyrissjóður eykst án þess að jákvæður við skiptajöfnuðw fylgi. Varasjóðs nafnið á lánsgjaldeyri tilheyrir öðram, og mun vikið að því síðar. I. Sérfræðingar okkar í efna- hagsmálum hafa sJ. 10 ár verið sparir á að skilgreina og skýra opinberlega fyrir almenningi hugtak oröanna: VÖRUSKIPTA JÖFNUÐUR, VTÐSKIPTA- JÖFNUÐUR OG GREIÐSLU- JÖFNUÐUR. Ilefur þó margt bent til að full þörf væri á slíku. Vafalítið mun ástæðan sú, að slíkt hefw ekki þótt hagstætt fyrir þá já já stefnu, sem felst í viðreisninni. — Viðreisnin hefur alltaf boðað já já aukna gjaldeyriseign i varasjóð og nei nei erlenda skuldasöfnun, hvað sem stað- reyndum hefur liðið, og því ekki þótt hagstætt að ræð» þessi mál á raunhæfan bátt. Á þessu hefur nú orðið breyting, og ber að viðurkenna þá endur bót svo langt sem hún nær. Nú fyrir skömmu, éða V4. og 15. þ.m. skrifar viðskiptamála- ráðherra um þessi mál af Stefán Jónsson. prentsmiðjustj óri meiri hreinskilni en áður fyrr. Ætla ég að því valdi nefnt blaðaviðtal við dr. Jóhannes Nordal bankastjóra og grein sú, er Þórarinn Þórarinsson ritstj. skrifaði í Tímann fyrir skömmu um vöruskiptajöfnuðinn á s.l. ári og hvaða ályktanir mætti í bili draga af vöruskiptajöfn- uðinum um hina raunverulegu gjaldeyrisafkomu þar til frek- ari upplýsingar lægju fyrir um viðskiptajöfnuðinn á s.l. ári, en slíkar upplýsingar reynast oft nokkuð síðbúnar. Viðskiptamálaráðherra reit, að í hugum fólksins táknar vara sjóðsnafnið og aukning vara- sjóðs eignaaukningu, en ekki breytingar til hækkunar á erlendum lánsfjárupphæðum. Vegna fyrri blekkinga heldur hann þó dauðahaldi í blómið sem dó, og kallar gjaldeyris- sjóðinn sem nú er fyrir hendi varasjóð, þótt hann sé til kom- inn vegna stöðvunar á viðskipta halla og innflutts erlends fiár- magns, bæði innborgun erl. lána og annars erlends fjármagns, aðallega í sambandi við álið. Virðist nefnt blóm svo kært ráðherranum, að hann nefnir það milli 40 og 50 sinn- um í nefndum greinum sínum. Vekur þetta nokkra furðu þar sem liann er eini sérfræðingur- inn, sem hampar þessu blómi. Hann hlýtw þó að vita, að stjórnarandstaöan notar «ara- sjóðsnafnið á lánsgjaldeyri sem háðsyrði á sama hátt og við- reisnarnafnið. Ekki nefnir ráð herrann upphæð erlendu skuld anna í nefndum greinum sín- um, hins vegar telur hann að greiðslubyrði skuldanna hafi lít ið farið yfir 15% af gjaldeyris tekjunum á s.l. ári, og þykir flestum nóg. Þegar frá eru tekin þessi tvö atriði, að gleyma skuldttnum og halda fast í blómið, sem dó, eru nefndar greinar viðskiptamála ráðherra upplýsandi og gagnleg ar fyrir hinn almenna borgara, og mættu gjarnan hafa birzt fyrr. n. Fyrir rúmu ári skrifaði ég nokkrar greinar um gjaldeyris- málin, viðskip t aj öfnuðinn og aukningu erlendra skulda á við- reisnartímabilinu. Tilgangw minn með þeim skrifum var fyrst og fremst sá, að rjúfa fwðulega þögn og vekja um- ræðu um málið. Einkum vænti ég þess, að viðskiptamálaráð- herra eða sérfræðingar hans skrifuðu efnislega um málið, og segðu sannleikann um skuldasöfnunina og orsakir hennar á þeim mestu góðær- um sem þjóðin hefur lifað. Þessi tilraun míri bar ekki ár- angur. Viðskiptamálaráðherra vildi ekki, eins og þá stóðu sakir, ræða málið efnislega. f stað þess skrifaði hann tvær stuttar blaðagreinar í tilefni af nefndri tilraun minni. Var önn- w eins konar úrskurður hans um að gjaldeyrissjóðw sem yrði til á tímum viðskiptahalla vegna aukinna erlendra skulda, ætti með réttu að kallast vara- sjóður þjóðarinnar í erlendum gjaldeyri. En hin grein ráðherr- ans fjallaði um eina augljósa prentvillu, sem þó var svo aug- ljós hverjum manni að tæpast þurfti ráðherra að fórna tíma í að Ieiðrétta hana, enda gerði ég það sjálfur. Þannig fór um nefnda tilraun mína fyrir rúmu ári til að framkalla efnislegar umræður um gjaldeyrismál þjóðarinnar. Af þessum sökum vil ég, sem almennur borgari, láta í Ijós ánægjn mína yfir því, að nú skuli viðskiptamála- ráðherra vera farinn að ræða umrætt mál efnislega. Um með ferð hans á ýmsum hinum smærri atriðum og gleymsku hinna stærri, mætti margt segja, en verður ekki gert að þessu sinni. Það er öllum nauðsyn, sem vilja fylgjast með efnahags- stöðu þjóðarinnar út á við, að gera sér Ijóst, hvað felst í orð um eins og: Vöruskiptajöfnuð- ur, viðskiptajöfnuður og greiðslu j öf nuður. V ÖRUSKIPTA JÖFNUÐUR segir til um mismun á inn- fluttum og útfluttum vörum, miðað við verð þeirra. Sé mið- að við verð hinna innfluttu vara í erlendri höfn og hinna út- fluttu vara í innlendri höfn, getur slíkw jöfnuður gefið fwðu glögga vísbendingu um raunverulega gjaldeyrisafkomu, og stafar það af því, að þjón- ustuviðskiptin breytast oftast minna en vöruviðskiptin frá ári til árs. Yfirlit um það, sem kallast þjónustuviðskipti upplýsir mis- mun annara almennra og ár- legra viðskipta en þeirra sem falla inn í vöruviðskiptin. "-amliar a b's 14 ÞRIÐJUDAGSGREININ m!

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.