Tíminn - 30.01.1970, Page 4
4
TILKYNNING
frá Stofnlánadeild
landbúnaðarins
Umsóíknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1970
skulu hafa borizt bankanum fyrir 28. febr. n.k.
Umsókn skal fylgja nákvæm lýsing á framkvæmd-
inni, þar sem meðal annars er tilgreind stærð og
byggingarefni. Ennfremur skal fylgja umsögn
héraðsráðunautar, skýrsla um búrekstur og fram-
kvæmdaþörf, svo og veðbókarvottorð.
Lánsloforð, sem veitt voru á síðastliðnu ári, falla
úr gildi 28. febrúar, hafi bankanum eigi borizt
skrifleg beiðni um að fá lánið á þessu ári. Engin
ný skýrslugerð þarf að fylgja slíkum endumýjun-
arbeiðnum.
Skjöl, sem borizt hafa vegna framkvæmda á árinu
1969 og ekki voru veitt lánsloforð um á því ári,
verður litið á sem lánsumsóknir 1970.
Frá og með árinu 1971 mun Stofnlánadeild land-
búnaðarins gera kröfu um, að teikningar, sam-
þykktar af Teiknistofu landbúnaðarins, fylgi með
lánsumsókn.
Reykjavik, 28. janúar 1970
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS
Válritunarstúlka óskast
til starfa við sendinefnd fslands hjá Sameinuðu
J þjóðunnm í New York. Góð vélritunarkunnátta
nauðsynleg og hraðritunarkunnátta æskileg.
Skriflegar umsðknir ásamt meðmælabréfum og
upplýsingum um fyrri störf, sendist utanríkis-
i ráðuneytinu fyrir 5. febrúar.
i
Utanríkisráðuneytið.
FYRIRLESTUR UM
MÁLMTÆRINGU
heldur Civ.ing. Hans Arup forstjóri Korrosions-
centralen í Köbenhavn, í Norræna húsinu, föstu-
daginn 30. janúar kl. 20.30. Verður einkum rætt
um málmtæringu 1 vatnsveitukerfum og fyrir-
spumum svarað. Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Rannsóknastofnun iðnaðarins.
Útgerðarmenn - Skipstjórar
Framleiði 3 og 4 kg. netasteina. Merktur ef
óskað er.
HELLUSTEYPAN, símar 52050 og 51551.
TIMINN
FÖSTUDAGUK 30. janúar 1970
Kennsl
undandrætti
f sjónvarpinu í fyrrakvöld
var fróðlegur þáttur um skatta
mál. M. a. upplýsti skattrann-
sóknarstjóri almenning um það,
hvemig þeir, sem aðstöðu hafa
til, fara að því að draga raun-
verulegar tekjur sínar undan
skatti með löglegum hætti.
Þetta mun vafalaust hafa tals-
verð áhrif og má búast við því
að fleiri hátekjumenn með eig-
ið bókhald komist í hóp þeirra,
sem vinnukonuútsvar bera, þeg
ar næsta skattskrá kemur út.
Þá var einnig upplýst um
furðulegan þverbrest í skatta-
löggjöfinni, sem ástæða er til að
vekja sérstaka athygli á í von
um að rétt yfirvöld taki málið
til athugunar. Nemandi í skóla,
sem einhverjar tekjur hefur
fær námsfrádrátt. Nemandi
sem hins vegar hefur enga
vinnu getað fengið og er á
framfæri foreldra, fær í raun-
inni engan frádrátt, þ. e. að
foreldrar frá engan frádrátt við
álagningu skatta og útsvars
þótt þau þurfi að öllu leyti að
framfæra og kosta eitt eða
fleiri börm sín eldri en 16 ára
til náms. Þetta er ranglæti og
í hróplegri missögn við þann
áhuga ,sem yfirvöld hafa á orði,
að þau hafi á því, að sem flest-
ir unglingar geti stundað fram-
haldsnám.
Endurskoðandinn og
forstjóri Sements-
verksmiðjunnar
Svavar Pálsson, endurskoð-
andi, og settur forstjóri Sem-
entsverksmiðjunnar hringdi í
undirritaðan í gær og kvartaði
undan missögnum í frétt blaðs-
ins í gær, þar sem sagt var frá
því, að Jóhann Hafstein, iðnað-
armálaráðherra, hefði greint
frá því á Alþingi, að til um-
ræðu hefði komið að breyta
lögunum um Sementsverk-
smiðjuna og fella niður ákvæði
um skilyrði þess að forstjóri
skuli hafa verkfræðimenntim.
Svavar er nefnilega ekki verk-
fræðimenntaður. Taldi Svavar
það ranghermi, að um misferli
hafi verið að ræða í reiknings-
færslum verksmiðjunnar í .for-
stjóratíð Jóns Vestdal, er hann,
Svavar Pálsson, hafði með
höndum svokallaða daglega end
urskoðun fyrirtækisins og bók-
haldslegt rekstrareftirlit. Mis-
ferlið hefði eingöngu átt sér
stað í útskriftum á launamið-
um verksmiðjunnar til skattyfir
valda.
„Reikningsfærslur"
í lagi!
„Reikningsfærslur“ verk-
smiðjunnar voru hins vegar í
Iagi!
Svavar taldi það hins vegar
rétt, að hann hefði haft með
endurskoðun hjá fyrirtækinu
að gera á þeim tíma, þegar mis
ferlið í verksmiðjunni átti sér
stað. Misferlið reyndist gróft
og hefur ríkissaksóknari nú
höfðað sakamál á hendur fyrr.
verandi forstjóra og fl. Kjöm-
ir endurskoðendur vora tveir.
Þegar grunur kom upp um
misferli í verksmiðjunni var
Svavar Pálsson endurskoðandi
ráðinn til þess að raimsaka
málið og gefa um það skýrslu
tU verksmiðjustjómar. Var
kjaminn úr þeirri skýrslu birt-
ur hér í Tímanum á sínum
tíma. Þar komu meðal annars
fram nokkrir dálítið vafasamir
Iaunaliðir Jóns Vestdal, for-
stjóra, svo sem tekjur fyrir
leigu á bílskúr forstjórans í
Reykjavík til verksmiðjunnar,
en Jón mun hafa geymt lúxus-
bifreið þá, sem verksmiðjan
lagði honum til, einstaka sinn-
um í bílskúmum, þegar hann
dvaldist í Reykjavik. Slíkt heyr
ir sjálfsagt ekki undir „reiku-
ingsfærslur“ eða daglega ead-
urskoðun.
Síðan var sami endurskoð-
andi, Svavar Pálsson, settur for
stjóri verksmiðjunnar ©g situr
í þvf embætti enn, en embætti
forstjóra er ekki auglýst laust
til umsóknar lögum samkvæmt.
Ekki veit, blaðið fyrir víst,
hver hefur nú með höndum
hina „daglegu endurskoðun*'
hjá Sementsverksmiðjunni,
hvort það er endurskoðunar-
fyrirtæki Svavars Pálssonar,
setts forstjóra, eða einhver ann
ar aðili. Það skýrist væntan-
lega fljótlega, því að það er von
á línu frá SvavarL TK.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiniiiiiiniiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiniiiiniRiii:
COCURA 4
STEINEFNA VÖGGLAR
Eru bragðgóðir og étast
vel í húsi og með beit.
★
Eru fosfórauðugir með rétt
magníum kalíum hlutfall
Eru viðurkenndir
af fóðurfræðingum
★
Viðbótarsteinefni eru
nauðsynleg til þess að búféð
þrífist eðlilega og
skili hámarksafurðum.
★
Gefið COCURA og tryggið
hraustan og arðsaman
búfénað
Loftpressur — gröfur — gangstétfasfeypa
Tökum að okkur allt múrbrot, gröft og sprenging-
ar í húsgrunnum og holræsum, leggjum skolp-
leiðslur. Steypum gangstéttir og innkeyrslnr. —
Vélaleiga Símonar Símonarsonar,
Álfheimum 28. Sími 33544.
OMEGA
Nivada
©
roamer
PIERPOIU
Jtlpina.
Magnús E. Baldvlnsson
Laugavegi 12 - Sími 22804
COCURA fæst hjá
kaupfélögunum og
Fóðursölu SÍS í Örfirisey
sími 26765.
1
1
i
u
■
e
IBIÍNAÐARBANKIMN
ev imnlii fúlksins
SÓLNING H.F.
S í M I 8 43 20
BIFREIÐASTJÓRAR
FYRIRTÆKI — KAUPFÉLÖG
Látið okkur gera hjólbarðana yðar aS
úrvals SNJÓHJÓLBÖRÐUM.
Sólum allar tegundir vörubifreiða-hjólbarða.
Einnig MICHELIN virhjólbarða.
SÚLNING H.F.
SÍMl 84320 — Pósthólf 741.
Baldurshaga
v/Suðurlandsbraut.