Tíminn - 30.01.1970, Page 16
Enn um gallana á
Breiðholtsíbúðum
*
Mikið fjölmenni fylgist á hverju kvöldi með skákmótinu í Hagaskóla. Töflur eru uppi með skákunum,
og getur fólk því fylgzt með hvernig skákirnar ganga. I»essi mynd var tekin í Hagaskólanum á miðviku-
dagskvöldið, og sýnir augljóslega, hversu mikil aðsóknin var það kvöldið. (Tímamynd Gunnar). Á blað-
siðu tvö er nánar sagt frá skákunum, á miðvikudaginn.
Vegir stórskemmdir
en brýrnar heilar
Samið við
blaðamenn
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
Blaðinu barzt i dag fréttatil-
kynning frá samninganefndum
Félags blaðaútgefenda í Reykja-
vík og Blaðamannaféiags íslands,
þar sem segir að undirritaðir hafi
verið nýir kjarasamningar. sem
gilda árið 1970.
Fréttatilkynningin er svohljóð
andi:
„í dag voru undirritaðir nýir
kjiarasamningur milli Félags
blaðaútgefenda í Reykjavík og
Blaðamannafélags íslands, sem
gilda fyrir þetta ár.
Samkomulag náðist um nokkra
haekkun til þeirra, sem starfað
hafa lengur en þrjú ár í blaða-
mennsku. Hækkunin var við það
miðuð, að laun þeirra væru sam
bærileg við rauntekjur hliðstæðra
vinnustétta.
Ennfremur voru nokkrar minni
háttar breytingar gerðar á fáein
um greinum fyrri samnings. —
Frá samninganefndum Félags
blaðaútgefenda og Blaðamanna-
félags fslands."
OÓ-Reykjavík, fimmtudag.
Ekki er vitað til að verulegar
skemmdir hafi orðið á brúm á
Skaftá vegna jökulhlaupsins, en
vegaskemmdir eru aftur á móti
miklar og hleðslur við brýrnar
eru víðast horfnar.
Er um þrjár brýr áð ræða sem
vatrnið ftóði allt umhverfis. Sú
neðsta og nýjasta er á Suður
landsveginum. Engar skemmdir
urðu þar við sjálfa brúna en Suð
urlandsvegurinn varð fyrir áföll
um á löngum kafla. Er búið að
lagfæra skemmdirnar þar. En
Meðiailandsveigurinn, sem liiglg-
ur að SuðurLandsvegi rétt á
bakka árinnar að austanverðu,
lenti í ána rétt neðan við brúna.
Áin braut mikið af hraun-
inu þarna sikammt neðan við
brúna og hvarf vegurinn á nokkr
um kafla. Er búið að leggja bráða
birgðaveg fram hjá þessu svæði.
Næsta brú er á gamla Suður-
landsveginum. Þar skolaði veg-
fyllingum á brott en talið er að
brýrnar séu óskemmdar. Við
brýrnar í Skaftárdal sópuðust varn
argarður og vegfyllingar burtu og
er þar ófært en unnið er að við
gerð.
Enn hefur ekki minnkað veru
lega í Skaftá síðan í fyrradag, því
látlaus rigning er fyrir austan og
gerir það viðgerðarvianu alla erfið
ari. Ekki hefur verið gengið úr
skugga um hvort skemmdir hafa
orðið á brúnum.
Ný framhaldssaga
f blaðinu í dag hefst ný fram-
haldssaga eftir Hugh Travers.
Þetta er spennandi saga um ást
ir og morðmál, sem erfitt er að
átta sig á hver er valdur að,
fyrr en alveg undir lokin. Mun
víst fæsta gruna, hver hinn
raunverulegi sökudólgur er.
SKB—Reykjavík, fmmtudag.
Talsverðar deilur urðu um
Breiðholtsíbúðirnar í neðri deild
Alþingis í gær, milli Stefáns Val-
geirssonar og Jóns Þorsteinssonar.
Stefán Valgeirsson sagði m. a.
að hann hefði ásamt fleiri flutt
þá þingsályktunartillögu að kosin
yrði nefnd til að gera athugun á
byggingarkostnaði. Hafi þær um-
ræður beinzt að íbúðunuin í Breið
liolti. Ekki hafi komið fram í
ræðu Jóns Þorsteínssonar hvort
hann væri með cða móti þessari
tiliögu, þótt andinn í ræðu hans
hefði verið þannig að hann teldi
hana óþarfa.
Kvaðst Stefán vera á allt öðru
máli. Atþýðublaðið hefði nú fyrir
stuttu sagt að hann hefði verið
með illmælgi um íbúðirnar í Breið
hoilti, þótt raunar að hann hefði
ekki minnzt á aðrar íbúðir en
Leirubakka 18—20. En á það
mætti benda að Jón Þorsteinsson
hefði talið upp og viðurkennt
marga þá galla sem hann hefði
bent á.
Kvaðst Stefán hafa haft með
sér þrautreyndan byggingarmeist
ara er hann fór að skoða íbúðirn
ar í Breiðholti og bæði hann og
fleiri byggingarfróðir menn hafi
viðurkennt að alls engin fagvinna
sé á mörgum innréttinganna. Þess
ar íbúðir hafi sannarlega verið
það dýrar að þeim hefði átt að
skila í sómasamlegu ástandi.
Margt mætti upp telja um það
flaustur og þá hroðvirkni sem
auðsjáanlega væri á þessum fram-
kvæmdum.
Þá sagði Stefán að hann hefði
það eftir öruggum heimildum að
enginn hefði ráðlagt að byggja
þessar íbúðir U-laga. Og öruggt
sé að sú ráðstöfun hefði einnig
hækkað byggingarkostnaðinn til
mikilla muna. Og úr því enginn
hafi ráðlagt að byggja íbúðirnar
svona, hvers vegna hafi það þá
verið gert? Stefán sagði það
ekki sína meiningu að við ættum 1
að hafa eitfchvað sérstakt bygging ;
arform. Sjálfur hefði hann verið
við að byggja margar byggingar
í samvinnufélagi og hefði reynslu
fyrir því að á þeim tíma sem 1
það hefði verið gert, hefði það
komið langtum betur út heldur'
en aðrar byggingar byggðar á ;
sama tíma.
Kvaðst hann ekki geta betur;
séð, er gengið hafi verið frá þess ;
um kaupum, en ætlazt hafi verið |
til þess að þeir sem keyptu væru
aillir hátekjumenn ,ef þeir æbbu að)
geta staðið undir þeim kostnaði, •
sem af þessu leiddi. Mikið mætti
vera ef það kæmi ekki fram á
næsta ári að þetta fólk gæti eng;
an veginn staðið undir þeim
Framhald á bls. 14.
Hátt á þriðja
þúsund konur
styðja Kvenna-
skólann
TK—Reykjavík, fimmtudag.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefur aflað sér, hafa nú
hátt á þriðja þúsund konur undir
ritað áskorunarskjal til Alþingis
um að samþykkja frumvarpið um
heimild til handa Kvennaskólan
um að útskrifa stúdenta. Fjölmarg
ir undirskriftarlistar voru þó ó-
komnir og undirskriftasöfnuninni
mun verða haldið áfram næstu
BLAÐBURDARFÚLK ÚSKAST
í Efstasund, Skipasund, Hátún og Miðtún.
Upplýsingar á afgreiðslunni, Bankastræti 7,
sími 12323.
fm <&
daga.
HORFT
ANUM
OÓ—Reykjavík, fimmtudag.
Fangi strauk úr Hegningarhús-
inu við Skólavörðustíg Id. sjö á
þriðjudagskvöld og lék hann
lausum hala þar til á miðnætti
s. I. nótt. Var hann þá handtek
inn í húsi í Kópavogi og komst
upp um verustað hans af
lireinni tilviljun, en rannsóknar
lögreglan í Kópavogi var að yf-
irlieyra mann, sem bjó í húsi
þessu, vegna annars máls og
talaði hamn af sér og kom upp
um dvalarstað strokufangans.
Lögreglan í Reykjavík hafði þá
leitað mannsins síðan bann
strauk úr fangelsinu.
Maður þessi er 22 ára gam
all, og sat í gæzluvarðhaldi
vegna síbrota. Það er að segja
að hann hefur orðið uppvís að
margs konar minni háttar af-
brotum.
Valdimar Guðmundsson, yfir
fangavörður, sagði í dag, er
Tíminn spurði hann um tildrög
stroksins, að þetta væru eigin
lega engar fréttir. Ekki líður
svo ár að ekki strjúki fleiri eða
færri fangar úr Hegningarhús
inu. en það er tæplega mann-
helt, eins og dæmin sanna. Virð
ist sem fangaverðir þurfi að
treysta á heiðarleika þeirra
manna sem þeir ' eiga að gæta
og að þeir haldi sig á mottunni
innan veggja fangelsins og forð
A EFTIR FANG-
YFIR VFGGINN
ist óþarfa ferðalög þegar þeim
fer að leiðast vistin.
Strokufanginn var að vinna
við uppþvott eftir kvöldmatinn
þegar hann skauzt á braiuit. Sagði
Valdimar að fangaverðir yrðu
að treysta því að fangar sem
fást við uppþvott og gólfþvott
hlypu ékki út því ekki væri
neitt þrekvirki að stökkva yfir
fangelsisvegginn þegar fangar
eru úti við. En sá sem hvarf
var einmitt að fara með rusl
í sorptunnu í fangelsisgarðin
uim þegar hann skauzt yfir vegg
inn og hvarf. Fangavörður var
þar nærri og horfði á eftir pilti
þar sem hann hvarf yfir vegg
inn. Lögreglunni var þegar gert
viðvart og hófst leit að mann
inum en hann fannst hvergi.
Eftir að maðurinn náðist aft
ur var hann settur í innilok
un, en í Hegningarhúsinu eru
klefa, sem hægt er að
halda mönnum inni í. Eru til
dæmis litlar líkur á að hættu
legir glæpamenn njóti bess
trausts að beim gefist færi á
að strjúka án verulegra um-
svifa.
Ingólfur Þorsteinsson, yfir
lögregluþjónn rannsóknarlög-
reglunnar, sagði, að talsverð
leit hafi verið gerð að stroku
fanganum, en ekki leitað sér
lega mikið, því reynslan er að
piltar þeir sem strjúka úr ■
fangelsi koma fljótlega í leit
imar affcur, og þegiar ekki er
um hættulega menn að ræða
er minni ástæða til að leggja
ofurkapp á að ná strokuföng
um fljótlega.
Ásmundur Gúðmundsson,
rannsóknarlögregluþjónn í
Kópavogi, sagði að komizt hafi
verið að dvalarstað strokufang
ans í Kópavogi í sambandi við
annaö málý sem verið var að
rannsaka. Var lögreglan að
yfirheyna mann í gœr sem
bjó í húsi því sem strofcu-
famginn var í. Saigði hann tll
hans ,en áður var ekki grun-
ur um að strokufanginn væri
í húsi þessu. Kom maðurinn í
húsið kl. 2 aðfaranótt miðvifcu
dags, og fór aftur um morgun
inn. Þegar iögreglan leitaði í
húsinu var fuglinn floginn og
naut frelsisins. Grunaði lög-
regluna að maðurinn mundi
koma aftur og um miðnætti /ar
aftur farið í þetta tiltekna hús
og þar var strokufanginn. Var
hann handtekinn og fluttur í
Hegningarhúsið, og settur i
traustan klefa og fær hvorki
að fést við uppþvott eða rusla
tunnur, því hann hefur algjör
lega misst það traust sem
fangaverðir höfðu á honum.