Tíminn - 21.03.1970, Síða 3
LAUGARDAGUR 21. marz 1970.
TIMINN
3
Boða göngu
og útifund
10. maí
EJ-Rcykjavík, föstudag.
í fréttatilkynningu frá Alþýðu-
bandalaginu segir, aS það muni
gangast fyrir því, að efnt verði
til fjöldagöngu og útifundar snnnu
daginn 10. maí n.k., en þann dag
verða liðin 30 ár síðan erlendur
her steig hér fyrst á land.
Segir að tilgangurinn sé einkum
að hvetja ungu kynslóðina til bar-
áttu gegn hersetu Bandaríkja-
manna og aðild íslands að NATO.
Hefur verið mynduð fimm
manna framkvæmdanefnd, sem
þegar mun hefja undirbúnings-
störf. Er áætlunin að fá einnig í
nefndina stuðningSmenn annarra
flokka og utanflokkamenn, en si'3
ar verður efnt til ráðstefnu, sem
verður öllum opin, og verður þar
nánar rætt um tilhögun og frekari
framkvæmd þessara aðgerða, segir
í tilikynningunni.
Starfsfólkið í Neðri-Bæ. Frá vinstri: Sólveig Jónsdóttir, Valgerður Jóhannsdóttir, Guðmundur V. Sigurjónsson,
Jón V. Sigurjónsson, Halldóra Guðmundsdóttir og Guð rún Ágústsdóttir. (Tímamynd: GE)
Neðri-bær - nýr veitingastaður
SB-Reykjavík, föstudag. i Veitingastofan heitir NEÐRI-
f húsi Grænmetisverzlunar land BÆR og eigendur hennar eru
búnaðarins við Síðumúla, var opn Sigudður Söebeck og Guðmundur
uð ný veitingastofa í s.l. mánuði.' V. Sigurjónsson. Guðmundur sér
HLUTUR RlKIS TIL ÁFENGIS-
ER ALLT OF LÍTILL
VARNA
AK, Rjvík, föstudag. — Á fundi
borgarstjómar Reykjavíkur í gær
urðU nokkrar umræður um áfeng-
isvamir í tilefni af tillögu Sigur-
jóns Björnssonar tim „að fela fé-
teigsmálaráði að leita samvinou við
þá aðila, sem vinna að áfengis-
vörnum, í því sikyni að gera heild-
artillögur um eflingu og endur-
skipulagningu áfengisvarna í borg
inni“ Sú tillaga var samþykkt
samhljóða.
Einar Ágústsson borgarfutltrúi
FramsóknarflokikBÍns ræddi þessi
mál stuttlega og kvaðst samþykk-
ur því, að reynt væri að samræma
Kosin yfirkjörstiórn
í Reykjavík
AK, Rvík, föstudag. — Fundur
borgarstjómar Reykjavífeur í gær
fevöldi varð óvenjulega stuttur,
stóð aðeins rúman hálftíma. Fá
mál voru á dagsferá og einu þeirra
frestað. Virtuist borgarfulltrúar
efefei í kappræSuskapi. Á fundin-
um var fcosið í yfirkjörstjóm og
hlutu feoisningu sem aðalmenn:
Torfi Hjartarson, Einar B. Guð-
mundsson og Ingi R. Helgason,
en varamenn: Guðmundur Vignir
Jósefsson, Helgi V. Jónsson og
Jón Abraham Ólafíson.
sem bezt s’tarf og átök þeiri/! að-
ila, sem vinna að áfengisvörnum
í borginni, en þeir eru nofekrir,
og '‘ Starfið gaeti' -vafalaust orðið
márkvissára, ef þeir ynnu meira
saman. Það væri einnig við hæfi,
að félagsmálaráð beitti sér fyrir
þessu samstarfi og síðan endur-
skipulagningu áfengisvarna og
eflingu þeirra í samráði við þessa
aðila.
Einar sagði, að menn mættu þó
ekfei halda, að samstarf vleri nóg
í þessum erfiðu málum. Til þess
að ná árangri þyrfti verulegt fjár
magn. Réttm'ætt væri, að borgin
legði fram nobfeurn skerf til þess,
en enn sjálfsagðara, að rífcið léti
ekki sinn hlut eftir liggja. Menn
mundu reka sig á það, þegar taka
skyldi á í þessum málum, að hlut-
ur ríkisins væri allt of lítill, og
borgin ætti að knýja ríkið til þess
að leggja fram sinn eðlilega skerf.
Einar minnti á, að um það væri
til skýr lagaákvæði, að rikið ætti
að byggja og reka hæli, sem vista
mætti á áfengissjúfclinga til bata
og endurhœfingar. í því sikyni
hefði verið stofnaður sérstakur
sjóður, gæzluvistarsjóður, og hon
um ætluð ákveðin fjárihæð af tekj
um ríkisinS af áfengissölu. Hins
vegar væri hælið óbyggt, en bygg
ingarkostnaður hefði margfaldazt
á sama tíma sem framlagið til
sjóðsins hefði staðið í stað, þótt
tekjur af áfengissölu hefðu auk-
izt mjög. Upphaflegt framlag svar
aði í fyrstu til 2,5% áfengissölu',’
en er nú áðeihs helft þess eða
svo. Gæzluvistarsjóður er ófær
um að gegna því hlutverki, sem
honum er ætlað í ltjgum, nema
fjárhagur hans verði bættur.
Einar minnti á, að hann hefði
flutt frumvarp á Alþingi um að
rétta fjárhag sjóðsins og kveða
svo á, að tekjur hans skyldu vera
2,5% af áfengissölu eins og bún
er hvert ár, en ekki ákveðin upp-
hæð. Þetta hefði ekki fengizt sam
þykkt, og stjórnin vildi um fram
Framhald á bls. 14
um daglegan rekstur stofunnar.
NEÐRI-BÆR er tæplega 300
fermetrar að stærð. Þar er 100
fermetra veizlusalur fyrir funda-
höld, fermingar- afmælis- og aðr-
ar veizlur og er þar líti'ð dans-
gólf, ef einhver skyldi vilja fá
sér snúning.
í sjálfri Grill-stofunni er sjálfs
afgreiðsluborð, öll nýjustu grill-
tæki, t.d. örbylgju- og glóðarofn,
pönnu- glóðar -og djúpsteikingar-
samstæða, mat- og súpuvermir,
kæliborð fyrir smurt brauð og
fleira.
Veitingastofan NEÐRI-BÆR
mun ávallt hafa á matseðli sín-
um fjölbreytt úrval smárétta, rétt,
dagsins, kaffi og brauð, öl og
tóbak.
Veizlusalurinn verður almennt
opinn í sambandi við veitingastof
una, og fólki gefinn kostur á að
njóta veitinga frá Grillstofunni í
þægilegu umhverfi.
Ólafur Rúnar Gunnarsson sá um
allar innréttingar, sem eru hinar
smekklegustu. Næg bílastæði eru
við NEÐRI-BÆ og veitingastofan
væntanlega opin framvegis frá
kl. 7,30 að rnorgni til 23,30 á virk-
um dögum.
Unglingameistaramót is-
lands á skíðum á Seyðisfiröi
Unglingameistaramót íslands á
skíðum verður haldið á Seyðis-
firði dagana 26. til 30. marz. —
Keppendur err sitráðir 97, frá
Akureyri eru skráðir 22, frá
Reykjavík 7, ísafirði 15, Siglu-
firði 10, Ólafsfirði 7, Húsavík 14,
Ungmenna og íþróttasambandi
ANDRÉS ÖND OG FÉLAGAR IHÁSKÓLABÍÚI
Hin sérstæða barnaskemmtun
Lionsklúbbsins Þórs „Andres Önd
og félagar“ verður endurtekin i
Háskólabíói á sunnudaginn kemur
22. marz.
i
Fjölmargir urðu frá áð hverfa
er við héldum þessa barna.skemmt
un fyrst hinn 8. marz s.l. og til
hægðarauka verður nú forsala á
aðgöngumiðum á laugardag kl.
9—12 í bókabúðum Lárusar
Blöndal á Skólavörðustíg og í Vest
urveri og fyrir Árbæjarhverfi í
bókabúð Jónasar, Rofabæ 7, og svo
í Háskólabíói eftir kl. 4 á laug-
ardag og það sem þá verður eftir
verður selt í Háskólahíói kl. 1 é.h.
á sunnudag.
Eins og síðast verða fyrst sýnd-
ar fevikmyndir af Andrési Önd,
Mifeka mús o.fl. vinum barnanna
og svo munu Ómar Ragnarsson
og Svavar Gests Skemmta börnun-
um, Ómar með gamanvísnasöng
og öðru efni við barnanna hæfi,
og Svavar Gests verður kynnir
og stjórnar spurningakeppni og
söng barnanna. Myndir af Andrési
Önd og félögum, upplímdar á
plast, verða veittar í verðlaun í
spurningakeppninni.
Þegar svo börnin fara út af
skemmtuninni fá þau öll afhentan
séretakan gjafapakka frá Andrési
Önd, en : þeim pakka, eru m.a.
húfa, Smella, sólskyggni, merki
o.fl. o.fl. (margar nýjar gerðir).
Til þess að þessi afhending gangi
greiðlega fyrir sig verður mikill
hópur Lionstnanna á staðnum til
leiðheiningar og aðstoðar eftir
þörfum.
Allur ágáði af skemmtuninni
rennur til Barnaheimilisins að
Tjaldanesi í Mosfellssveit og lí'kn-
arsjóðs Þórs, en sem kunnugt er
hefur LionskLúbburinn Þór lagt
starfi því er unnið er í Tjaldanesi
niikið og gott lið á undanförnum
árum.
Austurlands 18 og úr Skíðafélagi
Fljótamanna 4.
Dagskrá mótsins verður þannig
hagað, að á. skírdaa 26. marz, verð
ur keppt í stökki og flokkasvigi,
á föstudaginn langa verður ekki
keppt, en þá verður hátíðamessa
á Seyðisfirði og prestur verður
séra Rögnvaldur Finnbogason; —
á laugardag 28. niarz verður keppt
í stórsvigi 02 göngu, og á .sunnu-
dag 29. marz verður keppt í svigi
og boðgönga. Mótsslit fara síðán
fram í Félagsheimili Herðubreið-
ar. og þar verða afhent verðlaun.
Margt verður til skemmtunar i
saim'bandi við mótið. Haldnar verða
kvöldvökur og unglingadanSleikir
og til Seyðisf.jarðar verður fengið
Þjóðlagatríóið Fiðrildi. Verður
það þar um alla páskana og
skemmtir.
Brautarlagnir í Alpagreinum
annast Ásgeir Eyjólfsson úr
Reykjavík, gönguhrautir leggur
Haraldur Pálsson úr Reykjavík.
Um gerð stökkbrautar sér Guð-
mundur Gíslason frá Seyðisfirði,
og mótstjóri verður Pétur Blöndal
Seyðisfirði.
Forustuna í atvinnu-
málum vantar
Fyrir 10 árum var atvinnu-
leysi ekki vandamál á íslandi,
heldur mannekla og varð að
flytja inn erlent vinnuafl. Þá
var afkoma atvinnufyrirtækja
yfirleitt betri en nú. Rekstrar-
fé ríflegra úr bankakerfinu,
vextir lægri, margir sérskattar,
sem nú ganga nærri atvinnu-
vegunum, voru þá óþckktir.
fslenzk fyrirtæki sátu fyrir við-
skiptum og vinnu í þágu þjóð-
ariimar. Þá var kaupmáttur
tímakaupsins meiri en hann er
nú.
Eru umskiptin aðeins „verð-
falli og aflabresti“ og kenna?
Þegar núverandi ríkisstjórn
tók við fyrir 10 árum, var
þorskafli góður eins og síðustu
vertíð, en sfld hafði þá brugð-
izt í samfleytt 10 ár í sta'ðinn
fyrir 3 ár nú og verðlag í utan
ríklsskiptum hefur verið miklu
hagstæðara undanfarin 10 ár
en það var 10 árin þar á undan.
Hvað er að?
Hér hefur því eitthvað meira
en litið áfall orðið til viðbótar
„verðfalli og aflabresti“. En
hvað?
Svarið er stefnuleysi og
stjórnleysi í efnahagsmálum.
Áður var fylgt forystustefnu
ríkisvaldsins í atvinnumálum.
Þá var fylgt framleiðslustefnu.
Þá var allt miðað við það að
láta hjólin snúast, hvemig sem
á móti blcs, og halda fram-
leiðslunni í hámarki og þar
með kaupgetu almennings. fs-
lenzkt þjóðfélag er Iítið og þáð
er skrýtið. Reynslan hefur og
kennt okkur, að það er óhugs-
andi að halda uppi blómlegum
þjóðarbúskap á íslandi án for-
ystu ríkisvaldsins í atvinnumál-
um. Ekki með ríkisrekstri eða
ríkiseinokun, heldur með for-
ystu ríkisvaldsins um samstarf
við einstaklinga, félög, laun-
þega og samtök þeirra um átök
í atvinnumálum og markvissa
framlei'ðslu- og framleiðni-
stefnu.
Það er forystuleysið í at-
vinnuniálunum á síðustu 10 ár-
um, sem orðið hefur mesta
efnahagsáfall þessarar þjóðar.
Staðreyndirnar blasa líka við
öllum þeim. sem sjá vilja. Það
hefur orðið Iítil sem engin
“ramleiðniaukning í íslcnzkum
atvinnurekstri á þessu 10 ára
tímabiii, þegar undan eru skil-
in sfldaruppgrfpin á metaflaár-
unum, og kaupmáttur tima-
kaups Iaunþega hefur farið
þverrandi. öfugt við það, sem
gerzt hefur meðal nágranna-
þjóðanna. Þessi ömurlega þró-
un hefur orðið á ísiandi, þrátt
fyrir meiri möguleika til stór-
átaka á efnahagssviðinu á þess-
um 10 árum, en nokkru sinni
fyrr í sögi þjóðarinnar.
Þetta er mergurinn málsins
og framhaldið fer eftir því, hve
fljóa þjóðin áttar sig tii fulls
á þessum staðreyndum og beit-
ir áhrifum sínum til að knyja
fram stefnubreytingu f átt til
skynsamlegri vinnubragða og
Framhald á bls. 14