Tíminn - 21.03.1970, Síða 5
LAUGARDAGUR 21. marz 1970.
5
MEÐ MORGUN
KAFFINU
Maður einn hafði verið 'beð-
irm um að hafa ræðu þá, sem
hann átti að halda að kvöld-
verði loknum, eins stutta og
mögulegt væri. Hann reis því
á fætur á réttum tíma og sagði:
„Ég hef verið beðinn um að
mæla fyrir minni herra McCart-
hys. Mér hefur verið sagt, að
því niinna sem um hann er sagt,
þcim mun befcra ac það í alla
staðií"
Því er líkt farið með hamingj
una og skuggann þinn: þú getur
ekki komizt nær henni með því
að elta hana.
Táningsstelpa í símann: ,,Ef
þessi smeliur í millisamband-
inu ert þú, mamma, minnztu
þess þá. að vitnisburður er ekki
tekinn gildur, sé hann fenginn
með símahlerunum.“
rr
ætluðu allir að
Fannst þér ekkert grunsamlegt, að þeir
sækja boltann?
Þú skalt aldrei reyna að
viruia bug á hleypidómum
manns með hjálp rökvísinnar.
Það var ekki með hennar hjálp
að hann fyfltist þessum hleypi-
dómum, og því er ekki hægt að
viana bug á þeim með hennar
hjáip.
Forstjórinn segir vi@ nýja,
stórglæsilega einkaritarann:
„Þér gerið yður vonandi grein
fyrir því, að hér er aðeins um
bráðabirgðastarf að ræða?
Strax og eiginkonan mín sér
yður, er úti um yður.“
Maður, sem var að koma úr
fyrstu utanlandisferð sinni,
dæsti af feginleik og sagði: „Ó,
hvað það er dásamlegt að vera
kominn heim, þar sem maður
getur látið féfietta sig í mynt,
sem maður botnar eitthvað í!“
Forstjórinn segir vi@ einka-
ritarann: „Setjið fyrirsögnina
„Algert einkamál” á plagg þetta
ungfrú Darrow. Ég vil, a@ allir
á skrifstofunni lesi þetta.“
Nýi faðirinn við kunningja
sinn: „Eiginkonan mín var að
eignast tvíbura. Viltu kaupa
vindi'l?“
DENNI
D/íMALAUSI
. . . Svo nú verðum við að
borða af pappadisloim!
TÍMINN
í ár munu 2000 manns í Dan-
mörku fá lungnakrabba. Sú
tala er fjórum til fimm sinn-
um hærri en krabbatilfel'li
voru fyrir 20 árum.
Þrátt fyrir aukna baráttu
gegn sígarettureykingum, og
útbreiðslu staðreynda um skað-
semi reyksins, er stöðug stíg-
andi í sjúkdómstilfellunum og
æ fleiri byrja að reykja á unga
aldri.
Liz Taylor er nú orðin
þrjátiu og sjö ára, og
þótt árunurn fjölgi, svo
og kílóunum, sem hún dragn-
ast með utan á sér, þá hefur
fólk ætíð jafngaman af að
frétta eitthvað af kynbomb-
unni gömlu, og hér fcemur nýj
asta sagan af henni: Taylor fór
í heimsókn til hárigreiðslu-
meistarans Alexandre í París
ti'l þess að fá sér nýja llagn-
ingu. Þar sem greiðslumeistar-
imn kannast aðeins við Taylor,
leyfði harnn sér að stinga upp
á því við hana, að hann litaði
eða hyldd á annan hátt gráu
hárin, sem orðán eru nokkuð
áberandi í vöngum hennar. En
það vildi 'hún ekki. — Nei! Ég
vii 'halda hverju einasta af
þekn, sagði Tayior, — þau hafa
nefniilega ö'lil eitt nafn, hvert
einasta grátt hár á mínu höfði
heitár Ricbard Burton . . . en
svo sem kunnugt er, þá eru
þau Burton-Taylor sögð ákaf-
Lega hamingjusöm. Hins veg-
ar miun friðsemdinni ekki ætíð
wra fyrir að fara á þeirra bæ.
Þótt íslendimgum kunni að
finnast það ótrúlegt, þá gerist
það stundum, að útlendir framá
menn í þjóðfélagi, láta það
eftir sér að brosa eða jafnvel
hlæja hjartanlega opinberlega.
Það gerðist t.d. í optnberri
veizlu um daginn, haldinni í
Kaupmannahöfn, til heiðurs for
sætisráðherra landsins, Hilmari
Baunsgaard, en hann varð fimm
tugur nýlega, og var þá þessi
mynd tekin, er. Hilmar heldur
á viskíflöskum þeim sem hann
'fékk frá erlendum sendiherrum.
Aðalafmælisgjöfin kom reynd-
ar frá flokksbræðrum hans í
★
Innanríkisráðherra Breta,
James Callaghan, hefir boðað
á sinn fund þá Hill lávarð,
stjórnanda BBC, sjónvarpsins,
og Aylestone, lávarð, stjórn-
anda T.T.A., sjónvarpsstöðvar-
innar.
A fundi þeirra ætlar Callag-
han að ræða við þá fyrirætlun
sína, sem miðar að því að reyna
að skera niður ofbeldissýningar
í sjónvarpi. Hann vill að stjór-
arnir tveir komi tiil móts við sig,
og reyni að sýna færri glæpa-
og hryðjuverkamyndir. Sömu-
leiðis vili Callaghan að frétta-
myndir verði ekki eins hroða-
legar og raun hefur borið vitni
í Bretlandi að undanförnu.
Callaghan mun fyrst ætla að
benda lávörðunum báðum á að
kynna sér rækilega skýrslu sem
Dr. Milton Eisenhower tók sam
an um áhrif ofbeldissýningar í
sjónvarpi á fólk, en Eisenhow-
er þessi er Bandaríkjamaður
og gerði rannsókn sína í USA.
Eisenhower heldur því fram,
að við það að horfa stöðugt á
Óðinsvéum, reiðhjól ásamt
spjaldi, á því stóð „Mere fart
og bedre form“.
Afmæliisveizlan var haldin í
Christianis'borg, en þar tók for-
sætisráðherrami á móti gestum
árdegis, en eftir þá móttöfcu
skrapp hann í mi'ðdegisverð
með nokkrum vinum og sam-
starfsmönnum. Hilmar var að
sögn mjög kátur allan daginn,
eins og hans er reyndar vandi,
og þakkaði hann hjartanlega
fyrir aliar gjafirnar, en eftir
afmælisdaginn var hann mörg-
um reiðhjólaloftdælum og viskí
flöskum ríkari.
hvers konar ofbeldi og hroða-
verk í sjónvarpi, aukist aðeins
tilhneiging manna til að beita
ofbeldi i daglegu lifi.
Callaghan hinn brezki segir
þó að ekki muni koma til
greina neins konar ritskoðun í
sjónvarpinu, aðeins að fela sjón
varpsstjórnendum að skera nið
ur al'lan ónauðsynlegan hryll-
ing.
i ‘ +
Italska: lögreglan kom nýlega
tii bjargar sjötíu og átta ára
gamalli konu, sem hafði verið
lokuð inni i kofa einum í tutt-
ugu ár. Kofi þessi stóð í um
tuttugu km fjarlægð frá Napólí,
og var alveg gluggalaus. þannig
að konan hefur hírzt þarna í
svartamyrkrj öll þessi ár.
Þegar að henni var komið, lá
hún á stráfleti, fötin í tætlum
utan á henni og umkringd rott-
um og skorkvikindum. Bróðir
konunnar og eiginkona hans,
eru nú í stöðugum yfir-
heyrslum vegna þessa.
★
Svo sem kunnugt er, urðu
þau miklu tíðinli um daginn,
að Bítillinn frægi, John Lenn-
on, lét ásamt eiginkonu sinni,
Yoko Ono, stífa hár sitt mjög
og seldi það síðan á uppboði
hjá Southsby.
Eftir að tíðindin fréttust,
biðu menn eftirvæntingarfullir
eftir því, hvað aðrir síðhærðir
bítlar myndu gera við hár sitt,
klippa það, eður þrjóskast við
og halda sem fastast í sinn skít-
uga lúbba. Einkum voru menn
forvitnir um hvað hinir stór-
Bítlarair þrír, Ringo, Paul og
George myndu taka til bragðs.
Og nú hefur það sannazt, að
þeir fylgja í einu og öilu for-
dæmi foringja síns, Lennons,
að minnsta kosti hefir Ringo
Starr látið skera hár sitt, svo
sem sjá má af myndinni, en hún
var tekin þegar eftir að hann
hafði leyft eiginkonu sinni,
Maureen, sem er hárgreiðslu-
kona, að snyrta það. Sömuleið-
is réðist Maureen á luibba sona
þeirra beggja, Zaks og Jasons.