Morgunblaðið - 30.10.2005, Side 17

Morgunblaðið - 30.10.2005, Side 17
hættan er sú að maður einangrist og lokist af. Fólk hættir að hringja í mann, því það heldur að maður sé alltaf svo upptekinn við að gera eitthvað merkilegt. Það að vera þekktur hér skiptir engu máli, hér eru allir meira og minna þekktir. En fólk horfir vissulega dálítið mikið á mann og þó að það venjist, er mikill léttir að fara eitthvað í burtu þar sem enginn tekur eftir manni.“ Var það einhvers konar uppgjör af þinni hálfu að fara til Ítalíu með fjölskylduna? „Já, ég var orðinn dálítið tómur og brunnurinn að þorna upp. Þetta var ein besta gjöf sem Vilborg gat gefið mér og okkur, að taka svona af skarið. Við bjuggum í Flór- ens og það þjappaði fjölskyldunni mjög vel saman að takast á við nýja hluti og eiga tíma saman. Þarna var ekki hægt að hlaupa í næsta hús til félaganna. Við eignuðumst félaga í börnunum okkar og þau í okkur og kynntumst nýju fólki og nýjum siðum, sem auðvitað er mjög gefandi og nærandi. Þetta var ómetanlegt.“ Fórstu úr popparahamnum á meðan? „Já, það má segja að ég hafi klætt mig úr honum að mestu leyti þá.“ Þrátt fyrir það að þú hafir haldið áfram að vinna fyrir þér sem tónlistarmaður? „Ég skildi eftir einhverja grímu, sem var orðin til smám saman í gegnum mikla keyrslu í tíu ár eða meira sem einhver erkitöffari. Það má líkja þessu við tennis, mað- ur setur boltann út og fær hann svo aftur tilbaka og svo framvegis. Ég gef frá mér merkið ég er töffari og kúl, og fæ já tilbaka, og þarf þá að vera enn meira þannig. Þetta er nokkurs konar ping pong og svo læsist maður inni í einhverju hlutverki. Það er hættan í þessu fagi, að geta ekki brotist út úr því. Rokklestin brunar, maður er um borð og skrímslið heldur áfram.“ Einlægur eða væminn Fyrsta sólóplatan kom út haustið 1997 eftir Ítalíudvölina og var einfaldlega nefnd Helgi Björns. Hvernig var að vera einn á sjónarsviðinu? Var það erfitt? „Já. Þetta var líka mjög einlæg plata, sem sumum fannst bara væmin, held ég. Ég söng til mömmu og vögguvísur til dóttur minnar og miðlaði því sem ég var að upp- lifa. Það voru ekki allir sáttir við það. Hvar er töffarinn? Hvað er í gangi? Þú getur ekki verið einhver væludúkka. Þetta var samt rosalega gaman og mér þykir mjög vænt um þessa plötu. Hún er eins og minningaalbúm fyrir mig og okkur. Mér finnst þetta líka mjög vel heppnuð plata sem ekki hefur hlotið verðskuldaða athygli, án þess að ég sé bitur yfir því. En það voru samt ákveðin vonbrigði. Ég vann hana með Val- geiri Sigurðssyni, sem hefur unnið mikið með Björk. Lögin voru fín, sándið gott og textarnir einlægir. Ég bjóst við betri viðtökum.“ Fannst þér hún ekki metin á sínum forsendum? 0„Mér fannst gæðin meiri en ég fékk viðurkenningu fyrir. Menn eru settir í ákveðnar skúffur og þarna var ég búinn að vera það sem kallað er sveitaballapoppari, sem er niðrandi stimpill, um tíma. Það eru tvær deildir á þessum markaði, það er hljómsveitir sem gefa út og spila sína eigin tónlist og kynna með þeim hætti sem við höfum gert. Ég sé ekki mun á okkar tónlist og tónlist sem aðrir eru að spila á tón- leikum hér í bænum tvisvar á ári fyrir fámennan hóp undir ákveðnum formerkjum. Það hefur orðið til ákveðið kúltúrsnobb innan bransans. Við erum að spila íslenskt popp og rokk fyrir Íslendinga og ekkert meira um það að segja. Mér finnst eins og það hafi verið lenska um tíma að menn þyrftu að „dissa“ þá sem voru í bransanum og spiluðu á sveitaböllum, annars myndu þeir glata trúverðugleikanum. Það hefur hins vegar breyst undanfarin ár, yngri poppskríbentar nálgast tónlistina á þeirri forsendu hvað þeir eru að fíla, án þess að spá endilega í það hverjir eru að gefa hana út.“ Á annarri sólóplötu sinni syngur Helgi lög og texta Magnúsar Eiríkssonar og segist L jó sm yn d: K ri st in n Síðan skein sól, nú SSsól, eða bara Sólin hefur starfað í ein tuttugu ár. 30.10.2005 | 17 „Svo þetta er það sem kallað er undurmjúk barnshúð!“ Farði með collageni, UPPLYFTING, sem vinnur gegn ótímabærri öldrun húðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.