Morgunblaðið - 05.11.2005, Side 8
8 lifun
munaður
Á fullkomnu dekurkvöldi er skylda að láta
renna í heitt freyðibað og láta þreytuna líða
úr sér. Vanillulínan frá L’Occitane, Laugavegi,
er ávísun á kærkomið dekur. Freyðibað, 2.170
kr., Body cream, 2.975 kr., Eau de Toilette,
3.590 kr., varagloss, 995 kr.
Eftir unaðslegt kvöld er ekkert betra en að
sofna undir æðardúnssæng og leggja höfuðið
á lavender-ilmandi kodda. Sængin er frá
Quilts of Denmark og er úr finnskum eðalæð-
ardúni með batist-bómullaráklæði. Koddinn er
frá Aroma Living og er hægt að velja um ilm-
jurtir til þess að setja inn í koddann, eftir ósk-
um. Rúmfötin eru úr satínofinni egypskri bóm-
ull og hita- og klórþolnum pólýesterþræði.
Sæng, 221.000 kr., koddi, 8.900 kr., sæng-
urverasett, 9.900 kr. Allt þetta fæst í versl-
uninni Gæðum og mýkt, Grensásvegi.
Það dugar ekkert yngra en 30 ára
Glenfiddich-viskí þegar líða tekur á kvöldið.
Vínbúðin Kringlunni, 14.990 kr. Glösin eru
frá LSA og fást í Mirale, Grensásvegi,
fjögur saman á 5.900 kr.
Til að gera jarðarberjunum rétt skil eru þau
framreidd í sérhannaðri Alessi jarðarberjaskál
með síu. Mirale, Grensásvegi, 15.900 kr.
Karlmenn þurfa líka að hugsa vel
um húðina og Shisheido hefur þró-
að húðlínu sérsniðna fyrir þá. Sig-
urboginn , Laugavegi. Cleansing
foam, 2.080 kr., Deep cleaning
scrub, 2.080 kr., Moisturizing
emulsion, 3.320 kr., Total revitali-
zer, 5.670 kr., Eye soothing gel,
3.480 kr.
Konunglegir silkipúðar. GK, Laugavegi, 6.900 kr.