Morgunblaðið - 05.11.2005, Síða 12

Morgunblaðið - 05.11.2005, Síða 12
portrett af hönnuði Blómastóllinn eða Flower Chair þar sem unnið er með hugtakið „camouflage“, eða feluleik. Ekki færri en sextán hönnunar- og lífsstílstímarit víðs vegar um heiminn hafa séð ástæðu til þess að birta greinar um hönnuðinn Guðrúnu Lilju Gunnlaugsdóttur á undanförnum vikum. En ferskar og nútímalegar hug- myndir hennar hafa dregið að sér athygli gesta á sýningunni Designers- blok í Frankfurt og á Royal Auping Mornata, í Mílanó á Ítalíu á síðast- liðnu ári. Í febrúar hefur henni síðan verið boðið að halda stóra sýningu í Barcelona á Spáni og vinnur hún nú að því að undirbúa þann stóra við- burð. Lifun tók hús á Guðrúnu Lilju á Seltjarnarnesi þar sem hún er að koma sér upp vinnustofu ásamt manni sínum Jóni Ásgeiri Hreinssyni, en hann er grafískur hönnuður og þau reka saman fyrirtækið studiobility, www.bi- lity.is. „Flest sem ég geri á sér langan aðdraganda og ég hef gaman af því að segja sögur í því sem ég geri. Fyrsta hugmyndavinna að bekkjunum og stólunum nær aftur til verkefnis sem ég vann að í skólanum Design Aca- demi of Eindhoven fyrir tveimur árum síðan,“ segir Guðrún Lilja sem hannað hefur einkar skemmtilega bekki undir heitinu Innri fegurð. „Verkefnið var að hanna vöru til framleiðslu og ganga út frá orðinu flóttamaður. Ég leysti þetta verkefni með því að endurnýta gamalt. Kaupa illa farinn stól á markaði og rífa af honum bólstrun, áklæði og málningu. Ég pússaði hann svo upp, málaði í frískum litum og vafði gormana með filtaðri ull. Ég nefndi stólinn „annað líf stóls“. Með þessu vildi ég vekja athygli á því að flóttamaður þarf að byrja upp á nýtt, kasta af sér öllu því gamla sem hann flutti með sér og byggja sig upp að nýju. Ég lét prenta lítinn bækling með stólnum þar sem ég nota einungis myndir, myndmál, mál sem byggir brýr á milli menningarheima. Þessi stóll, og hugmyndin að baki, hefur síðan vakið athygli og ég hef sýnt hann víða,“ bætir hún við. „Eftir að þessi vinna hafði átt hug minn allan um margra mánaða skeið fann ég að hugmyndin hafði þróast og tekið á sig nýjar myndir. Mig langaði til þess að búa til húsgagn þar sem áhersla var lögð á ein- staklinginn. Ég vildi sýna fjölbreytileika um leið og ég undirstrikaði heild, ég vildi draga fram og upphefja innri fegurð, en það er nafnið sem ég valdi þessari framleiðslu. Antik í flötum pökkum er heitið á þessum húsgögnum. Í þeim mætast nútíminn og nostalgía fyrri tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.