Morgunblaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 21
lifun 21 skyldi þannig að ég leysti til mín þessa fyrirtaks magnara – reyndar með því ódýrasta sem var til í versluninni. En þeir hent- uðu mér afskaplega vel, og voru líka eiginlega það eina sem var eftir þegar við lögðum upp laupana. Þannig að það má segja að þeir séu mér mjög kærir, enda ígildi tveggja ára launa, þótt þeir hafi ekki kostað nema um 60 þúsund út úr búð. Í flestum tilfellum hafa síðan ekki risið neinar deilur vegna tækja- kaupa á heimilinu. Aðrir heimilismenn hafa yfirleitt tekið breyt- ingunum fagnandi.“ Hvað á að hafa í huga þegar sjónvarp er valið fyrir heimilið? „Í dag er fólk almennt spenntast fyrir þunnum, flötum tækjum. Það er eðlilegt, enda er þá hægt að vera með töluvert stærri skjá, sem tekur mun minna pláss en áður þekktist. Best er svo að miða skjástærðina við það rými sem hver og einn hefur. Flestir framleiðendur miða við að fjarlægð augna frá skjá sé u.þ.b. 10 cm á hverja tommu skjásins. Það þýðir að ef þú ert með 32" tæki er ekki æskilegt að sitja nær því en rúma þrjá metra. Ef síðan er miðað er við þessi flötu tæki (LCD og plasma) er nokkuð bein fylgni milli verðs og gæða. Dýrari tæki hafa yfirleitt talsverða yf- irburði varðandi myndgæði, enda nokkuð flókin tækni sem ligg- ur að baki sem kostar sitt. Í ljósi þess hve flötu tækin eru hins vegar orðin vinsæl er nú hægt að kaupa hefðbundin mynd- lampatæki í mjög háum gæðaflokki á rífandi góðu verði.“ Hvað um hljómtækin? „Hér flækjast málin svolítið. Allir vilja góðan hljóm, en sumir mega ekkert sjá! Stórir og góðir hátalarar hafa t.d. lengi verið þyrnir í augum fjölda kvenna (og undanfarið karla líka). Ef hvorki má sjá hátalara né hljómtæki, þá verður að ganga á hljómgæði. Þetta þykir mörgum smart og það er bara fínt. Flestir þurfa því að velja og hafna, fá eitt á kostnað annars. Hins vegar geta þeir sem hafa ótakmörkuð fjárráð nokkuð auðveldlega sameinað alla þessa þætti.“ Eru gæði alltaf í beinum tengslum við verðið á græjunum? „Það eru alltaf einhverjir sem vilja plata, en í flestum tilfellum er nú samhengi á milli gæða og verðs. Svo verða menn líka að átta sig á að þeir sjá bara og heyra það sem þeir vilja.“ Framþróun innan tæknigeirans er ör og ný tæki sífellt að líta dagsins ljós. Er forsvaranlegt að eyða háum upphæðum í tæki sem virðast stundum orðin úrelt samstundis? „Það fer eftir því hvað það er. Góður lampamagnari, góðir hátal- arar og góður plötuspilari eru ekki tæki sem úreldast. Ég held að það sama eigi við um gott sjónvarp. Ef þú ætlar að bíða eftir að tækniþróun hætti, þá bíður þú bara – en það verður löng bið og lítið skemmtileg.“ Að lokum, hvaða spennandi nýjunga er að vænta á markað á næstunni og hverjar væru draumagræjurnar ef peningar skiptu engu? „Það sem mér finnst mest spennandi í augnablikinu eru þráð- lausar lausnir á efnisflutningi. Þetta tengist því að hafa „efnis- veitu“ á einum stað í húsinu, og geta svo nálgast efnið frá mörg- um stöðum. Þetta er náttúrlega ekki spennandi nema gæðin séu almennileg – það hefur verið vandamál að koma þungum skrám, eins og t.d. bíómyndum, til skila á viðunandi hátt þráðlaust. En það virðist vera að breytast til batnaðar. Helst væri ég nú bara til í að eiga gott bíó – það eru drauma- græjurnar. Stjörnubíó hefði t.d. verið fínt.“ spurt og svarað Afrakstur tveggja ára vinnu. Kínverski lampamagnarinn (a.o. og a.n. t.h.). Þegar sjónvarpstærð er valin borgar sig að hafa stærð rýmisins í huga. Sonus Faber Concertino-hátalararnir eru hafði í öndvegi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.