Morgunblaðið - 05.11.2005, Síða 26

Morgunblaðið - 05.11.2005, Síða 26
26 lifun unaður og munaður á enska v ísu Ef eitthvert land í heiminum hefur hefð fyrir því að hafa hefðir í heiðri þá hlýtur það að vera England. Víða í sveit- um landsins má finna ævagömul óðalssetur þar sem hvers lags lávarðar, hertogar og greifar lifa sumir hverjir enn ljúft á kynslóðagömlu erfðagóssi og hafa það eitt fyrir stafni að gæta þess að hafa það jafn skrambi gott og fyrirrennarar- arnir. Það var fyrir þessa sneið samfélagsins sem lúxus- merkið Asprey var stofnað árið 1781; munaðarvara í hæsta gæðaflokki sem flakkar milli þess að vera nytsamleg lífs- gæði og yfir í glórulausan lúxus sem virðist ekki hafa annan tilgang en að gefa forríkum einstaklingum hugmyndir um hvernig skal eyða heilmiklum peningum. Stórsnjallt að koma sér í þann farveg – ættliðir eftir ættliði spreða fúlg- um í merkið af því það er „tradisjón“. Asprey hefur áhugaverða stöðu á markaðnum að því leyti að fyrirtækið einbeitir sér ekki að framleiðslu tiltekinnar vörutegundar eða vörulínu, heldur býður það upp á lúxus og lífsgæði í ótal birtingum. Fatnaður fyrir dömur og herra, skór sömuleiðis, skartgripir af dýrustu gerð, armbandsúr og klukkur til heimilisins, ferða- og skjalatöskur, gjafavörur á borð við vasa, myndaramma og kertastjaka, borðbúnað úr postulíni, silfri og kristal, riffla og haglabyssur (fyrir hinar hábresku refaveiðar, hvað annað), spil á borð við kotru og skák, og leðurvöru á borð við innbundnar dagbækur, dömuveski og belti eru meðal þess sem Asprey framleiðir og selur fyrir himinháar upphæðir. Bissnessmódelið er því afrek út af fyrir sig – aðgreining gegnum gæði og hátt verð. Og allt selst. Hvað sem vera skal. Leyndarmál fyrirtækisins að velgengni er í raun tiltölulega einfalt. Allar götur frá upphafi vega hefur það haft þá stað- föstu stefnu að kaupa upp þá sem mesta samkeppni veita þegar kemur að gæðum. Yfirtökur á færustu keppinaut- unum; það keppir enginn í gæðum við Asprey nema í stutta stund. Þannig hefur safnast saman geysimikil þekk- ing og reynsla í úrvals handverki og færni í meðförum hinna dýrustu hráefna, enda standa fáir – ef einhverjir – framleiðendur Asprey á sporði í þeim efnum. Sú aðferð hefur því skilað sér vel til fyrirtækisins enda samanstendur kúnnahópurinn að mestu leyti af fólki sem hefur litlar sem engar áhyggjur af því hvað hluturinn, sem það hefur auga- stað á, kostar. Íslendingum á ferð og flugi, sem hafa áhuga á að kynna sér varning Asprey, er sérstaklega bent á flaggskipsversl- anirnar tvær, við New Bond Street í London og svo í skýja- kljúfi Donald Trump við 5. breiðgötu í New York. asprey Lúxusmerkið Asprey stendur fyrir munaðarvöru í hæsta gæðaflokki og flakkar framleiðslan milli þess að vera nytsamleg lífsgæði og yfir í glórulausan lúxus. Lautarferðarsett fyrir Rollsinn. „Brunahanastélshristari“, 180.000 kr. Endurgerð Titanic-festarinnar er metin á 180 milljónir kr. Ferðatöskusett úr krókódílaskinni. Gæludýrataska úr krókódílaskinni fyrir Fífí. Te xt i J ó n A g na r Ó la so n. Silfurtappi fyrir vínflöskuna. Minnisbók úr krókódíl 18.000-36.000 kr. Stællegar tvíhleypur. Asprey-borðklukka. Verð um 35.000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.