Morgunblaðið - 05.11.2005, Síða 32
32 lifun
Eigendurnir hafa lengi verið búsettir erlendis en höfðu hugsað sér að
breyta um lífsstíl og flytja heim til Íslands þegar þeir sáu þessa íbúð aug-
lýsta til sölu. Þeir höfðu alltaf búið í einbýlishúsi og vildu nú losna við
áhyggjur og vinnu sem fylgja því, svo sem viðhald, garðvinnu, áhyggjur af
innbrotum og þess háttar. Stefnan var tekin á fjölbýlishús og minni áhyggj-
ur, sem á ensku er oft kallað „easy-living“.
Eigendurnir höfðu fylgst með húsinu í byggingu og stukku því til og
keyptu íbúðina þegar hún bauðst. Þar sem enn var ekki kominn rétti tíminn
til þess að flytja heim stóð íbúðin óhreyfð og var látin standa fokheld í
langan tíma.
Mikil viðbrigði fólust svo í því að flytja í fjölbýlishús að sögn húsráðanda,
sem segir breytinguna þó fullkomlega þess virði. Þessi lífsstíll veiti mikið
frelsi, t.d. til ferðalaga. Nú sé ekkert mál að skreppa í burtu með litlum sem
engum fyrirvara og engar áhyggjur þurfi að hafa af garðslætti eða viðhaldi.
Þegar kom að því að finna arkitekt til þess að hanna heimilið var valið ein-
falt. Húsráðendur höfðu séð til verka Björns Skaptasonar hjá Arkitektar
Atelier og fengu hann til liðs við sig. Vinna við íbúðina hefur tekið alls um
þrjú ár og útkoman er sérhannað heimili með óvenju hreina hönnun sem
skilar sér í listrænni heildarsýn.
Björn lærði arkitektúr í Frakklandi en flutti sig svo til Los Angeles þar sem
hann fór í framhaldsnám. Nú rekur hann teiknistofuna Arkitektar Atelier.
Björn er með mörg verkefni á prjónunum um þessar mundir, bæði hér á Ís-
landi og í Bandaríkjunum. M.a. er hann að vinna að hönnun tveggja stórra
bygginga í miðborg Reykjavíkur. Hann segist alls ekki vinna einungis sem
innanhússarkitekt heldur vilji hann helst koma bæði að hönnun bygginga
að utan og innan.
Við hönnun á þessari íbúð segist hann hafa lagt áherslu á tæra sýn, yfirveg-
aða tilfinningu og rólegt yfirbragð. Hann hafi séð fyrir sér hreint rými með
fyrsta flokks efnum og hönnun sem myndi eldast vel og væri í engu háð
duttlungum tískustrauma sem úreldast hratt. Frá byrjun lögðu húsráð-
endur og hönnuður mikla áherslu á góða samvinnu sín á milli og má heyra
að allir aðilar eru sammála um að það hafi ráðið úrslitum um hversu vel hafi
tekist til við að laga hönnunina að lífsstíl eigendanna.
Auk þess að hanna rýmið frá grunni fylgdi Björn heildarsýninni eftir með
því að aðstoða við val á húsgögnum, stærð á sjónvarpi, uppsetningu lista-
Álið er látið halda sér sem eitt af grunnefnunum sem ganga í gegnum íbúðina, ásamt marmara, gleri, graníti og hvítlakkaðri eik.
Bogadreginn veggurinn setur óneitanlega mikinn svip á íbúðina.
Á gólfunum eru 2 cm þykkar ítalskar marmaraflísar.
innlit