Morgunblaðið - 05.11.2005, Page 36

Morgunblaðið - 05.11.2005, Page 36
36 lifun Aðalbaðherbergið er inn af svefnherberginu. Í öllum hurðum er gler með álramma. innlit Hugsað er út í hvert smáatriði. vel og mynduðu flæði. Undir þetta tekur eigandinn og segir íbúðina þess vegna sérstaklega góða partííbúð! Í þessari íbúð má líka segja að allt sé út- hugsað frá gólfi og upp í loft. Engir ofnar eru til að mynda í íbúðinni, heldur er hiti hafður í gólffletinum yfir alla íbúðina og sömuleiðis var loftið tekið mikið niður og ljósin felld inn í það. Engar gluggakistur voru heldur hafðar við gluggana, þó að við svalahurðirnar væru smíðaðir nokkurs konar pallar úr marmara sem nýtast húsráðendum á ýmsa vegu. Öll vinna við smíðina og uppsetningu var í höndum Guðmundar og Óla hjá Traustu verktaki, TVT ehf., sem voru aðalverktakar við smíðina, en innréttingar voru smíðaðar af Trésmiðju Þráins E. Gíslasonar á Akranesi. Útkoma góðrar samvinnu eigenda, arkitekts og verktaka og hve vel er hug- að að öllum smáatriðunum skilar sér líka í glæsilegri íbúð sem er svo sann- arlega sérhönnuð og sérsmíðuð að óskum og þörfum eigendanna. Hér er hugsað út í hvert einasta smáatriði og ekkert til sparað til þess að útkoman verði fullkomin heild – fullkomin hönnun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.