Morgunblaðið - 05.11.2005, Side 42

Morgunblaðið - 05.11.2005, Side 42
42 lifun Nautnir mannsins eru fjölmargar og matur er svo sannarlega ofarlega á blaði hjá fólki þegar rætt er um nautnina að lifa. Kampavín, kaví- ar, súkkulaði, ostrur, gæsalifur og koníak eru dæmi um mat sem við tengjum við lúxus og nautnina að borða. Það getur líka reynst sönn sæla að borða góðan mat hvort heldur sem er í góðum félasgsskap eða einhversstaðar einn með sjálfum sér. Margir hafa sannreynt það að besti maturinn er ekki endilega á fínustu og flottustu veitingahúsunum, eða að matur verður ekki góður við það eitt að notað sé fínt leirtau eða nýtísku eldhúsáhöld. Matur sem eldaður er af alúð og natni og þar sem eitt bragð leikur við annað af nærgætni er hins vegar það besta sem hægt er að hugsa sér. Oft eru það einfaldar samsetningar sem læða inn sælustraumum um allan líkamann. Uppáhalds maturinn þinn er einmitt sá matur sem hentar þínum löngunum og þrám. Oft tengist það góðum minningum og ást á til dæmis matnum á uppeldisheimili, eða matur sem við fengum í óvenju skemmtilegu ævintýraferðalagi á framandi slóðum. Aðalatriðið er að njóta. Hér eru nokkrar syndsamlega góðar uppskriftir að litlum nautnaréttum til að njóta í haustmyrkrinu, gjarnan við kertaljós og góðan drykk. matur l í fsnautn Te xt i H ei ð a B jö rg H ilm is d ó tt ir. L jó sm yn d ir A rn al d ur H al ld ó rs so n.  hrogn á rússneskan máta  ferskt gnocci með trufflum  gratíneraður humar  ostaveisla sælkerans  hunangsmarineraðir ávextir 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.