Morgunblaðið - 05.11.2005, Page 48
48 lifun
Humar er sannkölluð nautna-
fæða og fer þessi uppskrift
einkar vel með hið hárfína og
góða humarbragð. Hér er miðað
við stóran íslenskan humar sem
fæst víða í fiskbúðum og er mjög
góður. Þó auðvitað sé afar eleg-
ant að elda stóran humar með
klóm er nokkuð erfitt að fá hann.
fyrir 4
1 kg stór humar
3 msk. dijon-sinnep
5 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
3 egg
1½ dl olía
4 msk. sýrður rjómi
2 msk. þurrt hvítvín
2 dl ferskt dill, saxað
3 sneiðar franskbrauð,
í litlum teningum
1 tsk. salt
1⁄8 tsk. hvítur pipar
2 tsk. sykur
½ sítróna
Byrjið á að kljúfa humarhalana frosna eftir endilangri skelinni og hreinsið svörtu röndina (görnina)
burt með litlum hníf. Raðið humrinum í stórt eldfast mót eða í 4 lítil eldföst mót með „sárið“ upp.
Hrærið saman sinnep og hvítlauk í skál og blandið eggjum út í. Hellið olíunni út í í mjórri bunu og
hrærið í á meðan svo hún blandist sósunni vel. Setjið sýrðan rjóma, hvítvín og dill út í. Smakkið til
með salti, pipar og sykri. Blandið brauðteningunum út í. Dreifið blöndunni vandlega yfir alla hum-
arhalana og setjið inn í 250°C heitan ofn og gratínerið í miðjum ofni í u.þ.b. 6 mínútur eða þar til
humarinn hefur tekið lit og fiskurinn losnar frá skelinni.
Berið fram með góðu kældu hvítvíni, sítrónusneiðum, brauði og einföldu salati.
humarveis la
matur