Tíminn - 22.04.1970, Blaðsíða 3
J
MH>V1KUDAGUR 23. apríl 1970.
TIMINN
NÁTTÚRUVERNDARSÝNING
NORRÆNA HÚSINU
SJ—Reykjavík, mánudag. kynna uáttúruverndarstarfsemi
Náttúruverndarsýning stiend- á öðrum Norðurlöndum.
ur nú yfir í Norræna húsinu og
mun hún einnig fara í skóla
víða um land. Sýning þessi er
eimn liður í kynningar- og
fræðslustarfsemi í tilefni af
Náttúruverndarárinu 1970, sem
Evrópuráðið stendiur fyrir.
Kjörorð ársins er „Maðurinn í
náttúrunmi“, en í því folst við-
urkenning á því, aið maðurinn
sé hluti af þeim lífhieimd, sem
hann lifir og hrærist í. Fram-
tíð mannsins er undir því kom-
in að jafnvægi iífheimsins rasik
ist sem minnst, en á því er nú
talin mifeil hætta. Tæknifram-
farir, hraðvaxandi fólksfjölg-
un, breyttir atvinnuhættir og
sifellt stækkandi þéttbýlis-
sviæði gera stóreflda náttúru-
verndanstarfsemi að brýnu
nauðsynjamáli í Evrópu.
1 ti'lefni af Náttúruverndar-
árinu hafa Norræna húsið,
Nátbúruverndamefnd hins ís-
lenzka náttúrufræðifélags og
Stúdentafélag Háskólans tek-
ið upp samviinnu til þess að
Norræna húsið hefur í þessu
skyni keypt sýningu, sem nefna
mætti „Umhverfi fjöldans"
(Miljö för miljoner). Með henni
er leitazt við aið sýna firam á
að náttúruvernd er mál, sem
varðar ailla þjóðfélagsþegna,
mál sem taka verður fullt til-
lit til við uppbyggingu og skipu
lagningu þjóðfélagsins.
Sýmingin tekur fyrst til með-
ferðar verstu vandamálin vegna
mengunar lofts, láðs og lagar.
Síðan er bent á ýmsa aðila
sem hagnast á því að íram-
leiða og selja verstu mengunar-
valdana, hvernig efnahags- og
skipulagspólitík stangast á við
náttúruverndarpólitík og að
lokum eru svo viðtöl, fram-
tíðarsýnir og fjallað um það
hvort einstakliingurinn geti
haft áhrif á þróun þessara
mála.
í bókasafni Norræna húss-
ins er gott úrval bóka um nátt-
úruvernd og skyld málefni, auk
tímarita og árbóka.
Þjóðarbókhtaða reist
í tilefni 1100 ára af-
mæti Istanctsbyggðar
Skemmtanir Sumar-
gjafar fjötbreyttar
SB—Reykjavfk, þriðjudag.
Allir á aldrinum 2—15 ára ættu
að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi í dagskrá þeirri, sem Bama-
vinafélagið Sumargjöf, hefur á
prjónunum á sumardaginn fyrsta.
Fyrir yngstu börnin er skemmt-
un í Austurbæjarbíói kl. 3 og fyr-
ir unglingana dansleikir í Tóna-
bæ, kl. 4 og 9 um kvöldið. Auk
þess eru í flestum skólum og
mörgum samkomuhúsum eitthvað
fyrir alla.
Þá eru skipulagðar fjórar skrúð-
göngur, áður en skemmtanimar
byrja og eru þær í úthverfiunum
líka, svo ekki þurfi að ómaka sig
niður í mdðborgina til að fá að
ganga með. Gengið verður kl. 2
frá Vesturbæjarskólanum, Laugar-
nesskólanum, Vogaskólanium og
Hvassaleitisskólanum og leika
Lúiðrasveitir fyrir göngunum og
einnig við Breiðholtsskólanin frá
kl. 1.45.
Inniskemmtanir verða M. 3 í
Háskólabíói, Réttarholtsskóla,
Hagaskóla, Laugarásbdói og Safn-
aðarheimili Langholtssóknar, en
M. 2 í Álftamýrarskólanum og M.
4 í LeikskÖlanum, Árborg. Kvik-
myndasýningar verða M. 3 og 5 í
Nýja bíói. Dagskrá þessara
Framhald á bls. 14.
SKB—Reykjavík, þriðjudag.
í gær var lögð fram á Alþingi
tillaga til þingsályktunar um bygg
ingu þjóðarbókhlöðu í tilefni 1100
ára afmælis íslandsbyggðar. Til-
lagan er á þá leið að Alþingi
álykti að í tilefni 1100 ára af-
mælis íslandsbyggðar skuli reist
þjóðarbókhlaða, er rúmi Lands-
bókasafn íslands og Háskólabóka-
safn.
f greinargerð segir m. a. að
enginn ágreiningur muni vera um
það meðal fslendinga, að rétt sé
að minnast 1100 ára afmælis fs-
landsbyggðar með eftirminnileg-
um hætti. Alþingi hafi árið 1966
kesið nefnd tii þess að gera til-
lögur um, með hvaða hætti skuli
minnast þessa afmælis. Og ein af
tillögum nefndarinnar hafi verið
bygging þjóðarbókhlöðu er rúmi
Landsbókasafn fslands og Háskóla
bókasafn.
Alþingi hafi samþykikt árið 1957
tillögu um að sameina skuli Lands
bókasafn og Háskólabókasafn. En
í þeim húsakynnum sem þessi
söfn era nú, muni það ekki fram-
kvæmanlegt. Nokkur undirbúning
ur að byggingu þjóðarbókhlöðu
hafi farið fram og frumáætlanir
verið gerðar, m. a. með aðstoð
sérfræðinga frá Menningar- og vís
indastofnun Sameinuðu þjóðanna,
og Alþingi hafi veitt nokkrar byrj-
unarfjárveitingar.
í tillögu þessari leggi rfkis-
stjórnin til, að Alþingi ákveði að
reisa þjóðarbókhlöðu í tilefni
1100 ára afmælis fslandsbyggðar.
Ef þessi tillaga verði samþykkt,
muni ríkisstjómin leggja áherzlu
á að hraða öllum undirbúningi og
og leggtja til við Alþingi, að nauð-
synlegar fjárveitingar verði veitt-
ar á næstu árum. Vegna þess hve
skamrnt sé til afmiælisins, og
einnig hins, hversu undirbúning-
ur slíkrar byggingar sé vandasam-
ur og timafrekur, sé ekki við því
að búast, að byggingunni geti ver-
ið lokið 1974, enda verði bér
einnig um mjög vandaða og dýra
byggingu að ræða. En engu að síð-
ur eigi bygging þjóðarbókhlöðunn
ar að vera tengd þessum merkis-
atburði í Sögu íslendinga.
Telja lánakjör
stúdenta
óviöunandi
Stjórn VÖKU, félags lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, ályktar á
stjórnarfundi 21. apríl 1970.
Stjórn VÖKU, félags lýðræð-
issinnaðra stúdenta, telur lána-
kjör islenzkra stúdenta óviðun-
andi og lýsir fullum stuðningi við
kröfur, sem miða að bættri náms-
aðstöðu.
Stjórn VÖKU er ljóst að papp-
írsflóð Og bliekiðja stúdenta undan
farin ár hefur ekki borið árangur
sem skyldi. Ljóst er að vinna verð
ur að framgangi hagsmun-amála
stúdenta með skipulögðum, lýð-
ræðislegum þrýstingsaðgerðum.
Hins vegar fordæmir stjórn
VÖKU þann atburð ,er ellefu ís-
lenzkir stúdentar lítilsvirta sendi-
ráð íslands í Stokkhólmi 20. apríl
s.l. VAKA telur að þessi ólýð-
ræðislegi atburður þjóni ekki
hagsmunabaráttu stúdienta, enda
verður ekki séð, að til hans hafi
verið stofnað í þeim tilgangi og
bendir jafnframt á, að ofbeldi og
yfirgangur sé ekki til annars fall-
inn en að skaða málstað stúdenta.
Árni Ól. Lárusson.
F.h. stjórnar VÖKU.
Nemendur MH sýna kennsluleikrit Brechts
Undantekningin og reglan
Siíðastiiðinn miðvikudag frum-1 við Uamrahlíð Undantekninguna
sýndu nemendur Menntaiskólans | og regluma eftir þýzka Jeikskálddð
Aðafhlutverkitv leika þelr Páll K. Pálsson (kúlíi), Sveinn Rafnsson (leiðsögumaður) og Haukur Haraldsson (kaup-
maður).
Bertolt Brecht í Lindarbæ. Verk
þetta er eitt af nokkrum kennslu-
leikritum, sem Brecht samdi fyrir
áhugamenn úr hópi ’erkamanna
og skólafólks. Leikritið er stutt
og einfalt í sniðum, segir sögu um
stéttaskiptingu, um kúgara og þá
kúguðu. Það felur í sér þjóðfélags-
ádeilu, sem vissulega er tímabær
enn í dag.
Flutningur nemenda Hamrahlíð
arskóla á Undantekningunni og
reglunni var mjög snotur, fram-
sögn leikenda skýr og áheyrileg,
en meira hefði ef til viM mátt
bera á lífi og fjöri, og tiilraun til
að nálgast meira vandamál líðandi
stundar.
Jakob Magnússon og Þorvaldur
Jénsson hafa samið þokkalega tón-
list sem filutt er með leikritdnu-
Leikstjóri og þýðandi er Erlingur
Halldórsson, en leifcmynd gerði
Ungverjinn Ivan Török, og virðist
verk beggja dável af hendi leyst.
Það er vissulega þess virði að
sjá þssa þriðju athyglisverðu skóla
leiksýningu, sem ftatt er hér í
Reykjavík í vetur.
Síðustu sýningar á Undantekn-
ingunni og reglumni verða í kvöld
22. apríl, föstudag 24. apríl og
mánudag 27. apríl kl. 21. Aðgöngu-
miðar kosta 100 kr. og eru seldir
hjá Eymundsson, Austurstræti, og
við innganginu í Lindarbæ.
Borgarstjóri
Flokksins
Það kom glögglega í ljós á
framboðsfundi stúdenta í
Reykjavík í fyrrakvöld. að
Geir Hallgrímssyni var mjög
í mun að sannfæra menn um
það, að yfirlýsingin um að
hann vildi því aðeins vera
borgarstjóri í Reykjavík, að
Flokkurinn mikli héldi þar
meirihluta sínum, hefði ekki
verið mjög alvarlega meint.
Hann fór um það fjálgleg-
um orðum hvað eftir annað,
að hann hefði reynt að vera
borgarstjóri allra Reykvíkinga
og mundi Icitast við að vera
það áfram.
Þótt Geir vildi þannig reyna
að draga svolítið í land, tók
hann ekki yfirlýsinguna aftur,
svo að bókstafur hennar blífur,
og Geir er því aðeins í fram-
boði í Reykjavík sem borgar-
stjóri Flokksins.
Eftir slíka yfirlýsingu finnst
mömium það kynlegt að sjá
borgarstjóraefni Flokksins í
efsta sæti listans. Ef maðurinn
vildi fylgja þessu fram í
verki, hefði hann átt að vera
í áttunda sætinu.
f annan stað telja menn, að
Iiðsmönnum foringjans mikla
sæmi ekki annað en fylgja for-
dæmi herforingja síns og lýsa
yfir, að þeir muni alls ekki
taka kosningu sem borgarfull-
trúar í Reykjavík, nema Flokk-
urinn haldi öllum völdum sem
áður. Ekki dugar annað en
hafa samræmi í hernaðarað-
gerðunum.
Forystuflokkurinn
Það vakti verðskuidaða
kátínu á stúdentafundinum,
hve fulltrúi Alþýðuflokksins
var borginmannlcgur. Hann
fullyrti án þess að blikna. að
Alþýðuflokkurinn væri for-
ystuflokkur andstöðuflokka
íhaldsins í borgarstjórn. Að
vísu dró nokkuð niður f hon-
um, þegar fundarmönnum varð
þetta aðhlátursefni, en hann
fullyrti samt, að hefðu síðustu
alþingiskosningar verið borgar-
stjórnarkosningar, þá hefði Al-
þýðuflokkurinn fengið þrjá
menn kosna og íhaldið misst
meirihlutann.
Þetta var auðvitað alveg rétt
reiknað, en það er ekki ný
útkomu úr sliku dæmi. Full-
trúi Alþýðuflokksins vildi þó
augsýnilega halda opnum öll-
um leiðum í íhaldsfaðminn og
varðist fimlega öllum tilraun-
um til þess að fá hann til að
víkja úr hlutverki björgunar-
flekans.
Nóg af góðum borgar-
stjóraefnum
Sú spuming var borin fram
á fundinum, hvert væri borg-
arstjóraefni núverandi minni-
hlutaflokka, ef íhaldið missti
meirihlutann og Geir stæði við
yfirlýsingu sína um að vera
aðeins borgarstjóri óskoraðs
flokksvalds. Svör fulltrúa
minnihlutanna voru hin fróð-
Iegustu. Þeir héldu því allir
réttilega fram, að enginn hörg-
uli mundi verða á góðum borg-
Framhald á bls. 14