Tíminn - 20.05.1970, Blaðsíða 6
G
irUíUiií m1Í
TIMINN
MIDVIKUDAGUR 20. maí 197A
2 menn fórust er bátur sokk - einn komst lífs af
FB—Reykjavík, þriðjudag.
Snemma á laugardagsmorgun
sökk vélbáturinn Ver frá Sand-
gerði aðeins um tvær mílur suð
ur af innsiglingunni í Sandgerði.
Tveir menn fórust með bátnum,
en þriðji maðurinn, Aðalsteinn
Sveinsson, bjargaðist eftir að hafa
svamlað í sjónum í um hálfa
klukkustund. Aðalsteinn hefur
borið fyrir sjódómi í Hafnarfirði,
að Steinunn gamla* KE 69 hafi
siglt á bátinn, og hafi hann brotn
að í spón við ásiglinguna.
Þremenningarnir á Ver. sem
var þrjú tonn að staerð, höfðu
verið á veiðum um nóttina. Höfðu
þeir farið út á föstudagskvöld.
Var Björgvin Þorkelsson með í
þessum róðri í stað bróður
þeirra Gísla og Aðalsteins, sem
ekki hafði ætlað sér að róa í
þetta sinn, en hefur annars verið
með bræðrum sínum á bátnum,
sem þeir keyptu fyrir skömmu.
Þegar báturinn kom á miðin
fór vikur í kælivatnsdælu, en
tókst mönnunum að lagfæra það
eftir nokkurn tíma. Lítill fiskur
var á þessum slóðum, sem bátur
inn var á, svo ákveðið var að
halda heim aftur. Á leiðinni
Aáalsteinn Sveinsson bjargaöist komst báturinn á betri mið, Og
naumlega, eftlr að hafa velkst um I höfðu mennirnir verið að dorga í
sjónum f hálfa klukkustund. .um það bil eina klukkustund,
(Ljósmynd M.G.) þegar þeir tóku eftir því að Stein
/ LÍFSHÆTTU EFT-
IR FLÖSKUBROT
unn gamla frá Keflavík nálgaðjst
þá. Töldu þeir þó ekki vera hættu
á ferðum, þar sem skyggni var
gott, og ratsjá Steinunnar í
gangi. Aðalsteinn segir að hann
hafi heyrt bróður sinn Gísla hrópa
upp, að þeir skuli kasta sér í sjó
inn og um leið hafi áreksturinn
orðið.
Aðalsteini tókst að ná í botn
hlera, og sömuleiðis rak til hans
björgunarbelti, sem bróðir hans
hafði verið búinn að blása upp
að nokkru leyti. Tókst honum að
halda sér uppi á þessu tvennu, og
hafði verið í sjónum um hálfa
klufckustund, þegar vélbátinn Bár
una bar áð, og tóku mennirnir,
SB-Reykjavík, þriðjuda'g.
15 ára piltur úr Hafmarfirði ligg
ur nú lifshættulega særðúr í Borg-
arsjúkrahúsinu, en hann datt í
gærkvöldi og sfcar sig á áfengis-
flöska, sem hann var með í beltis-
stað. Pilturinn var ásamt nofkkr-
um félögum sínum á hlaupum á
Kirkjuvegi um tíuleytið, en þá
tókst ekki betur til en svo, að
hann datt fram yfir sig og við það
brotnaði flaskan. Glerbrotin stung
ust inn í kvið piltsins, sem þegar
var fluttur í Borgarsjúfkrahúsið.
Þar var gert að sárum hans eins
og hægt var, en þau reyndust það
alvarleig, að enn getur brugðið til
beggja vona.
STAKKUR STRANDADI
Á DRANGSHLlDARFJÖRU
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Verkamenn við Skógaskóla und-
ir Eyjafjöllum sáu lun níu leytið
í morgun hvar neyðarblysum var
skotið á loft, niður undan Skógum,
og við nánarí athugun kom í Ijós,
að á Drangshííðarfjöru á Skóga-
sandi, haí'ði stálbáturinn Stakkur
frá Vestmannaeyjum strandað.
Stahkur er 66 lesta bátur, og
bafði fenigið trollið í skrúfuna,
með þeim afieiðingum að hann
rak á land þarna á Drangshlíðar-
fjöru. Skipshöfnin var í bátnum
fram til klukkan þrjú í dag
en þá fóru skipverjar, fíman tals-
ins í land, og til Reykjavíbur. Var
þá farið að gefa yfir bátinn, og
hann farinn að hallast mikáð í
fjörunni, enda verenandi veður á
strandstaðnum. Strax og strands-
ins varð vart, var björgnnareveit-
um Slysavarnafélagsins f Vík,
undir Eyjafjöllum og á Hvolsvelli
gert aðvart, og kornnu þœr á stað-
inn. EJkki þurfti þó að hafa mikl-
ar björgunaraðgerðir I frammi,
þar sem hægt var að kalla til
skipverja úr landi, en björgunar-
sveitirnar voru til taihs, ef á
þyrfti að halda. Tréborðstokkur
á bátnum var farinn að brotna
síðari hluta dags í dag, gengu
sjóir þá yfir bátinn. Lóðsinn úr
Vestmannaeyjum var kallaður til,
,ef takast mætti að draga Stakk
| á flot, en versnandi veður kom í
veg fyrir slíkar björgunaraðgerðir.
Skipstjóri á Stakk er Guðjón Ól-
afsson.
sem voru á Bánunni, Ásmundur
Böðvarsson og Finnbogi Bjama
son eftir Aðalsteini og gátu náð
honum upp úr sjónum.
Eikki sást til Gísla eðá Björg-
vins þrátt fyrir ítrekaða leit að
þeim. Sigldi Báran með Aðalstein
til Sandgerðis og síðan fóru bát
ar út þaðan til þess að halda
áfram leit að mönnunum tveim
ur en þeir fundust ekki.
Gísli Sveinsson var 27 ára og
iætur eftir sig konu og tvö börn.
Björgvin Þorkelsson var 51 árs
og lætur eftir sig konu og sjö
börn.
Sjópróf hófust í Hafnarfirði í
dag.
Björgvin Þorkelsson 51. árs, lætur
eftír slg kom» og 7 böm.
Gfstl Svelnsson, 27 óre, lætur eftir
slg konu og 2 böm.
Steinunn gamla, sem talið er að hafi siglt á trillubátínn Ver. (Timam. Kári)
Ásmundur Böðvarsson skipstjóri á
Bárunni, sem bjargaði Aðalsteini.
Finnbogi Bjarnason, skipsmaður á
Bárunni.
Annríki um helgina
hjá Hafnarfjarðar-
lögregl
Stálbáturínn Stakkur á Drangshlíðarfjöru í gærmorgun. Báturinn var farinn að hallast mun meira i gærkvöldi.
(Tlmamynd A.J.)
unm
SB—Reykjavík, þriðjudag,
Fjórir menn voru teknir ölvaðir
við akstur í Hafnarfirði um belg-
ina. Einn þeirra var á stolnum
vörubil. sem hann hafði veriö að
gera við uppi í Mosfellssveit. Þetta
var nýlegur bíll og þegar ökuferð-
in endaðj j gjótu suður við Krýsu-
vikurveg, var hann stórskemmdur.
Hafnarfjarðariíigreglan hafði
nokkur afskipti af unglingum í
tjöldum við Hv'aleyrarvatn á hvíta
sunnunóttina og þurfti a@ flytja
eitthvað af þeim í bæinn, sökum
ölvunar og illrar aðbúðar.
Brotizt var inn á elliheimilinu
Sólvangi snemma að morgni hvíta-
suninudags og þar stolið 1100 krón
um í peningum frá gamalli konu.
í Ijós kom, að þarna voru að verki
unglingar, sem voru að koma ofan
af tjaldstæðinu við vatnið.
Reykjavikurlögreglan átti hins
vegar tiltölulega rólega helgi. Ölv-
un í borginni var ekki meiri en
oft um venjulega helgi og fáir
ökumenn teknir ölvaðir við stýrið.