Tíminn - 27.05.1970, Page 2
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 27. maí 197a
n-iirvF'
Frá hinum geysifjölmenna kappræSufundi i Sigtúni.
(Tímamyndir: Gunnar)
Mjög fjölmennur og fjörugur kappræðufundur F.U.F. og Heimdallar í fyrrakvöld:
Fátt um svör við rökfastri
gagnrvni Framsóknarmanna
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Kappræðufundurinn, sem
Félag ungra Framsóknar-
manna stóð í 40-daga-baráttu
til að fá við Heimdall, var
haldinn í gærkvöldi í Sigtúni.
Var þessi fundur geysifjöl-
mennur og fjörugur, en ein-
kenndist að öðru leyti af
mjög harðri málefnalegri
gagnrýni ræðumanna Fram-
sóknarflokksins á mistök borg
arstjórnarmeirihlutans í Rvík
á undanförnum árum. Var
fátt um svör hjá ræðumönn-
um Sjálfstæðisflokksins —
þeim sem á annað borð gerðu
tilraun til að svara gagnrýn-
inni. Sumir Sjálfstæðismenn-
irnir ræddu um flest annað
en borgarmálin, og gátu fá
svör gefið við gagnrýni og
spurningum Framsóknar-
manna. Þá gátu þeir heldur
ekki svarað því, hver yrði
borgarstjóri f hugsanlegri
samsteypustjórn Sjálfstæðis-
manna og Alþýðuflokksmanna
eftir kosningar — ef íhaldið
tapaði meirihluta sínum.
Þegar fcappræ'ðufundurinn hófst
fcl. 20.30, var hiisfyllir og áætlað,
að um 500 manns væri í húsinu
RæSumenn F.U.F. TaliS frá vinstri Rúnar Hafdal Halldórsson, AlfreS Þorsteinsson og Guðmundur G. Þór-
arinsson.
— bæði í sætum og standandi á
göngum Sigtúns. Var barna að
mestu um að ræða ungt fólfc á
kosningaaldri, og tók hað þátt í
fundinum af lífi og sál. Skiptust
fundarmenn nokkurn veginn í
tvær fylkingar, en á köflum höfðu
þó Heimdellingarnir hærra —
enda vanari baulinu en ungir Fram
sóknarmenn, sem ávallt stunda mál
efnalegar kappræður.
Málefnaleg gagnrýni Guð-
mundar Þórarinssonar
Fundarst.ióri FUF, Atli Freyr
Guðmundsson, setti fundinn og
bauð gesti velkomna til að hlusta
á kappræður höfuðandstæðinganna
í þessum kosningum í Reyk.iavík
— Siálfstæðismanna og Framsókn
armanna.
Fyrsti ræðumaður var síðan Guð'
mundur G. Þórarinsson. verkfræð
ingur. f upphafi ræðu sinnar fagn-
aði hann því. að af þessum fundi
yrði þrátt fyrir erfiða fæðingu.
Hvatti hann hina ungu frambióð-
endur Siálfstæ'ðisflokksins til mál-
efnalegra umræðna um borgarmál-
in. Ef þeir hefðu áhuga á að ræða
önnur mál, væri hægt að halda
annan kappræðufund um þau.
Hann benti á, að Framsóknar-
menn teldu að mest hefði farið úr-
skeiðis hiá íhaldsmeirihlutanum í
atvinnumálum, fiárstjórn og verk-
legum framkvæmdum á undanförn
um árum.
Tók hann fyrst fyrir atvinnu-
málin, og sýndi glögglega fram á
aðgerðarleysi og úrræðaleysi borg-
arstjómarmeirihlutans í þeim mál-
um. Benti faann á nauðsyn atvinnu
málaáætlunar, sem notuð yrði serm
tæki til að sjá fyrir þróunina og
hafa áhrif á hana og halda þannig
jafnvægi í atvinnulífinu og útrýma
atvinnuleysi.
Síðan fjallaði hann um fjár-
stjórn borgarinnar og benti á, að
Í riti Framsóknarmanna í Reykja-
vík — „Borgin okkar“ — væri
að finna á hrikalega og málefna-
lega gaenrýni á stjórn íhaldsins
í þeim málum. Nefndi hann nokk-
rar þeirra framkvæmda, svo sem
Sundahöfnina — sem staðið hefði
ónotuð í tvö ár og borgarbúar orð ,
ið að greiða 25 milljónir í vaxta-
tap af þeirri höfn.
Þá benti hann á. að Sjálfstæð- *
ismenn ætluðu að færa Hringbraat !
ina til suðurs — frá Mifclatorgi i
vestur fyrir Umferðamiðstöð '
— á næsta kjörtímabili. J
Þessi 40 milljón króna fram- <
kvæmd væri vægast sagt vafa- ’
söm og leysti engan vanda. Sagt [
í væri, að færa þyrfti Hringbraut- *
I ina til að auka rými við Land-
! spítalann, en á sama tíma ætti a'ð
í leggja Háaleitisbrautina svo nærri ,
’Borgarspítalanum, að til ónæðis i
væri fyrir það sjúkrahús. Það væri
því rökrétt, afleiðing, að eftir
nokkur ár ætti einnig að færa Háa-
leitisbrautina.
Guðmundur lagði á það áherzlu,
að Framsóknarmenn teldu að nýta
ætti fjármagn borgarbúa betur en
þama væri gerf. Borg sem hefði
takmarka'ð fjármagn til umráða
yrði alltaf að kappkosta að það
yrðj nýtt sem bezt og skynsam-
legast og væri rétt tímaröð fram-
kvæmdanna þar höfuðatriði.