Tíminn - 27.06.1970, Page 3
1AUGARDAGUR 27. Júnl 1970.
TIMINN
SKÓLASLIT
k ÍSAFIRÐI
Gagnfræðaskólanum á ísafirði
var slitið 3. júní s. 1.
í haust innrituðust 220 nemend
ur í skólann. Deildir voru 8, all-
ir bekki tvískiptir. Framhaldsdeild
sú með námsefni 1. bekkjar
menntaskóla, sem starfrækt hefur
verið í mörg undanfarin ár við
skólann, leggst nú niður í haust,
þegar Menntaskólinn á ísafirði tek
ur til starfa.
Auk skólastjórans, Gústafs Lár-
ussonar, störfuðu 9 fastir kenn-
arar við skólann og 9 stundakenn-
arar.
Hæstu einkunn á 1. bekkjarprófi
hlaut Guðmundur Eydal, 8,7.
Hæst á unglingaprófi varð Hólm
fríður Sigurðardóttir og hlaut 8,9.
í valdeild 3. bekkjar hlaut
Guðrún Ó. Guðmundsdóttir hæsta
einkunn, 8,4.
Landspróf miðskóla stóðust 19
nemendur, en 14 náðu framhaíds-
einkunn. Efst og jöfn urðu Mar-
grét Gunnarsdóttir og Kristján Jó
hannsson. Þau hlutu 7,7 í lands-
prófsgreinum, en 8,0 í miðskóla-
prófinu.
Gagnfræðaprófi luku 29 nemend
ur. Hæstu einkunn hlaut Bjarni
Jóhannsson, 8,1. í samræmdu grein
unum varð efst Sigrún Skúladóttir.
í framhaldsdeildinni hlaut Þór
hildur Oddsdóttir hæstu einkunn,
8,9 .
Bókaverðlaun voru að venju veitt
þeim nemendum, sem báru af í
námi.
Þessi mynd átfi reyndar að fylgja frétt i blaðinu í gaer um gróðursetningu lerkiplantna í landi Víðivalla i
Fljótshlíð. Þar verða í sumar gréðursettar 7000 lerklplöntur og er með þessu hafi framkvaemd svonefndrar
Fljótsdalsáætlunar. Næstu 25 árin verður plantað lerk i í 1500 ha lands og mun taka næstu 4 árin að koma
upp girðingum um svæðið og framleiða plönturnar. 13 býil taka þátt i áætiuninni. (Tímamynd: JK)
VILJA AUKA ÞÁTTÖKU IS-
LENDINGA í STARFSÞJÁLFUN
Að-lfundur Íslenzk-Ameríska
félagsins var haldinn 28. maí s.
1. Starfsemi félagsins á liðnu starfs
ári hefur einkum beinzt að fjár
Kosningadeila á Neskaupstac
EB-Reykjavík, föstudag.
Deilt er nú um úrslit kosning-
anna á Neskaupstað, vegna nokk-
urra vafaatkvæða sem þar komu
fram, en talin voru gild við taln-
ingu. Hefur Alþýðuflokkurinn í
Neskaupst. kært úrslitin til félags-
málaráðuneytisins, sem þá fór fram
á að fá kjörkassann sendan til
Reykjavíkur, en kassinn er inn-
siglaður á Neskaupstað.
Að því er Bjarni Þórðarson
tjáði blaðinu í dag, hefur verið
neitað að afhenda kjörkassann,
fyrr en kjörnefnd Neskaupstaðar
væri búinn að láta í ljós álit sitt
á málinu, en það verður síðan tek
ið fyrir í bæjarstjórn n. k. þriðju-
dag. Sagði Bjarni Þórðarson að
sitt persónulega álit. á málinu,
væri það, að telja bæri atkvæðin
gild, þótt svo ljóst væri, að þau
væru gölluð. En samkvæmt 108.
gr. kosningalaganna, á að úrskurða
vafaatkvæði gild eður ei, jafn-
sbjótt og þau eru talin.
Eins og kunnugt er, voru úr-
slit kosninganan á Neskaupsstað
þau, að Alþýðuflokkurinn fékk 1.
mann kjörinn, en Alþýðubandalag
ið fimm, og stóð baráttan á milli
annars manns á lista Alþýðuflokks
ins og fimmta manns á lista Al-
þýðubandalags, og munaði aðeins
einu atkv. að Alþý?Suflokkurinn
fengi sinn annan mann kjörinn.
öflxm til styrktar fslenzkum náms
mönnum í Bandarfkjunum og að
því að auka þátttöku íslendinga í
starfsþjálfun þar í landi. Jafn
framt hefur félagið eins og áður
annazt milligöngu í sambandi við
styrkveitingar til námsmanna í
samvinnu við. stofqanir vestan
hafs og látið sig skipta hvers kon
ar menningarviðskípti míllj fs-
iánds og Bandaríkjanna.
Úr Hhor Thors sjobnum fengu
8 íslenzkir námsmenn styrk til
náms vestan hafs á skóla-árinu
1969— 70 cg aðrir 8 hafa fengið
sams konrr stynki iyrrr námsárið
1970— 71. Þá hefur Thor Tihors
sjóðurinn, eins og undanfarin ár,
scyrkt íslenzka kennara til þátt
töku í sumarnámskeiði Luther
College í Iowa-ríki. Sóttu 5 ís-
lenzkir kennarar þetta sumarnám
sikeið árið 1969, en 7 munu sækja
það sumarið 1970. Þá hafs noklkr
ir kennarar fengið styrki til 3ð
taka þátt í námskeiðum á vegum
HÉRAÐSHÁTÍÐ U.M.S.K.
í SALTVÍK 27. 0G 28. JÚNÍ
DAGSKRÁ laugard. 27. júní:
Frjálsar íþróttir
Handknattleikur kvenna:
Breiðablik — Fram
Dansleikur kl. 9—2
Miðnæturprógram
Aldurstakmark 14 ára.
•
Nóg tjaldstæði
Bátaleigan opin
Fjölskyldan verður : Saltvík
um helgina.
ÆVINTÝRI
LEIKUR
ÖLVUN
BÖNNUÐ
ALLIR
í
SALTVÍK
DAGSKRÁ sunnud. 28. júní:
Ávarp: Hafsteinn Þorvaldsson,
form. U.M.F.f. v
Knattspyrna:
UMSK — Valur (3. fl.)
Frjálsar íþróttir (3 greinar)
Frjálsar íþróttir, keppni barna
á aldrimun 10—12 ára.
Ómar Ragnarsson
Kristín Ólafsdóttir
Keppni f reiptogi milli sveitar-
I stjórna í Gullbr. og Kjósarsýslu.
i Fimleikasýning.
HÁTÍÐIN HEFST KL. 2,00 BÁÐA DAGANA
Aðgangseyrir: Fyrir alla helgina kr. 200,00
Fyrir sunnudag kr. 100,00
Börn 10—14 ára greiða hálft gjald. Frítt fyrir yngri börn. Ferðir frá Um-
ferðamiðstöðinni kl. 1,30 laugardag og kl. 9 umkvöldið — sunnudag kl. 1,30.
The National Science Founda-
tion í Bandaríkjunum.
Eins og að undanförnu hefur
fslenzk-Ameríska félagið haft
samstarf við Institute of Inter-
national Educaton í New York um
útvegun styrkja til handa íslenzk
um nýstúdentum til náms við
bandaríska háskóla. Eru þessir
styrkir til eins árs námsdvailar,
og n'ema yfirleitt sfcólagjöldum,
fæði og húsnæði. Hilutu 9 stúdent
ar sOíka styrki námsárið 1969—70
og hafa 10 þegar fengið styrki
fyrir árið 1970—71.
Frá því Thor Thors sjóðurinn
tók til starfa á árinu 1965 hefur
31 styrkur yerið veittur úr sjóðn
um til 27 íslendinga til niáms í
Bandaríkjunum. en 6 styrkir til
4 Bandarí'kjamanna til náms á
íslandi. Þá hafa 20 íslenzkir kenn
arar verið styrktir til þátttöku í
sumarnámskeiðum hjá Luther
Cöllege í Iowa og 2 Bandarrkja
menn haía verið styríktir til dval
ar á fslandi tii að kenna notkun
tónlistar við lækningar. Samtals
mámu úthlutanir úr sjóðnum rúm
um 42 þús. dölum fram til 22.
apríl s. 1. eða rúmum 3 millj.
ísl. krónum, samkvæmt núgildandi
gengi.
Til þess að örva þátttöku í starís
þjálfun í Bandaríkjumum hefur
íslenzlkhAimeríiska fédagnð gert
samkomulag við Iðnaðarmálastofn
un fsdands, sem mun taka á móti
umsóknum og veita upplýsingar
um þjálfunina.
Fyrirgreiðsla félagsins, sem fer
fram með aðsto'ð American-
Scandinavian Foundation, er
fyrst og fremst fólgin í útvegun
nauðsynlegra dvalar- og atvinnu
leyfa. Einnig er umsækjendum
komið í samband við atvinnurek
endur í þeirri grein, þar sem
þeir óska þjálfunar.
Jónas H. Haraiz, sem verið hef
ur formaður fslenzk-Ameríska fé-
lagsins um tveggja ára skeið, læt
ur nú af því starfi, en við for
mennsku tekur Erling Aspelund.
Aðrir stjórnarmenn eru: Jón Sig
urðsson. varaformaður, Ottó Jóns
son, ritari, Kristinn Haillgrímsson
gjaldkeri, Agnar Tryggrvason,
Ágúsf Valfells, Björn Matthíasson
Eiður Guðnason, Jón H. Magnús
son, Jónas H. Haraílz, Sigrún Jör
undsdóttir og Þórhallur Asgeirs
son.
3
AVIDA
mm
íhaldsgleraugu
Alþýðuflokksins
Alþýðuflokkurinn viróist nú
í nokkrum vanda staddur, og
ber Alþýðublaðið vitni þess.
Sem kunnugt er hefur flokk-
urinn svarið sig í einskonar
fóstbræðralag við íhaldið og
unað sér þar vel í rúman
áratug. f þessu fóstbræðralagi
liefur Alþýðuflokkurinn nú
stórlega tapað fylgi í sínu höf-
uð vígi, höfuðborginni, en i
blóma síns lífs keppti hann þar
einn um meirihlutann við íhald
ið, sem síðar gaf honum sín
gleraugu.
Á sjóndeprutíma Alþýðu-
| flokksins hefur fylgi Framsókn
arflokksins farið mjög vaxandi
í þéttbýlinu, enda reynslan sú,
að Alþýðuflokknum tókst ekki
aJ gegna því hlutverki í þétt
býlinu, er honum var ætlað
er haim og Framsóknarflokkur
inn hófu göngu sína á öðrum
tug þessarar aldar. Stóð þó
ekki á stuðningi Framsóknar-
flokksins við Aiþýðuflokkinn á
meðan hann var ekki berg-
nnminn af íhaldinu.
Nú hefur það gerzt til við-
bótar raunum Alþýðuflokksing
útaf stöðugri fylgisaukningu
Framsóknarflokksins í þéttbýl
inu, að tveir flokkar, sinn
hvoru megin við Alþýðuflokk-
inn, hafa komið til sögunnar
og kennir annar sig við bamda
lag alþýðu cn hjnn við vinstri
sinnaða alþýðu. Þetta virðist
koma Alþýðuflokknum í svipað
ástand og hryggbrotnum biðli.
f því ástandi, sem Alþýðu-
flokkurinn er nú í, virJKst
ásækja hann margþætt hugar-
stríð. Eitt þeirra kallast af-
brýðisemi, og birtist það meðal
annars í ótta um, að Framsókn
arflokkurinn muni stela frá A1
þýðufloldknum vináttu Sjálf
stæðisflokksins, samanber leið
ara Alþýðublaðsins 25. þ.m. í
þessari hræðslu skreppur Al-
y þýðuflokkurinn í raupsárin, og
heldur sig geta tekið niður
flialdsgleraugu fyrirvaralaust
og samtímis endurheimt sjáald
ur Jóns Baldvinssonar o. fl. leið
toga Alþýðuflokksins frá fyrri
tíð. Ætli að vonbrigðin með
slíkt eigi ekki eftir að verða
hin sömu og í síðustu borgar-
stjórnarkosningum?
Ösannindaiðja Mbl.
FjTÍr nokkru birtist forustu
grein í Tímanum, þar sem því
var haldið fram, að þótt ríkis-
stjórnir ættu ekki að grípa inn
í kjaradeilur með valdboði,
bæri þeim að stuðla að sáttum
og lausn dcilnanna á þann hátt.
Þetta hafi rikisstjórnin ekki
aðeins vanrækt að þessu sinni,
heldur beinlínis spillt fyrir
samkomulagi, sbr, Hagráðsfund
Gylfa Þ. Gíslasonar, þar sem
lagðar voru fram tillögur Efna
hagsstofnunarinnar um skert-
ar vísitölubætur, en þær urðu
til þess að tefja mest fyrir
samkomulagi. í stað þess nð
svara þessari gagnrýni Tímans
snýr Mbl. málinu alveg við,
og deilir á Tímann fyrir það.
að hann hafi krafizt lögþving-
unar! Mbl. hefur síðan hamrað
látlaust á þessu. Lyginni skal
Framhald á bls. 14.