Tíminn - 30.06.1970, Page 11

Tíminn - 30.06.1970, Page 11
•WÐJUDAGUR 30. júní 1970. TIMINN 11 25 valdir til landsliðsæfinga '■ Fyrir skömmu valdi landsl.nefnd handknattl. karla 25 menn til æf- inga vegna leikja við Fær- eyjar í júlímánuði og einnig með tilliti til væntanlegra landsleikja á næsta vetri bæði hehna og er erlendis. Eftii-taldir menn voru valdir til æfinga: Auðunn Óskarsson FII Birgir Finnbogason, FH Geir Haillsteinssoh FH Hjalti Einarsson FH Örn Hallsteinsson FH Axel Axelsson Fram Björgvin Björgvinsson Fram Guðjón Erlendsson, Fram IngóMur Óskarsson Fram Sigurbergur Sigsteinsson Fram Sigurður Einarsson Fram Þorsteinn Bj'ornsson Fram Ólafur Ólafsson, Haukar Stefán Jónsson Haukar Viðar Símonarson Haukar Ágúst Svavarsson ÍR Ásgeir Elíasson ÍR Brynjólfur Markússon ÍR Gísli Blöndal KR Emil Karisson KR Bjarni Jónsson, Valur Finnbogi Kristjánsson Valur Ólafur Jónsson Valur Einar Magnússon Víkingur Jón H. Magnússon Víkingur Páll Björgvinsson Víkingur Fyrst um sinn verða æfingar einu sinni í viku, á miðvikud. kl. 20,00 í Réttarholtsskólanum. Ríkharður var beztur! Iklp—Reykjavík. Það er synd að segja að það hafi verið uppörvandi fyrir hina ungu leikmenn Þróttar í leiknum við þýzka áhugamannaliðið VfB Speldorf á sunnudagskvöldið — og það eftir tvo fimm marka sigra í röð í 2. deild — að bezti mað- ur þeirra í leiknum, var lánsmað- urhin frá Akranesi, Ríkharður Jónsson, 42 ára gamall. Hann var „klassa” fjTÍr ofan þá og það litia sem Þróttur sýndi af viti í leiknum, kom frá „gamla manninum11 — eqda var honum óspart klappað lof í lófa af áhorf- endum, eftir sumar rispur hans í leiknum. Þjóðverjarnir sýndu í fyrri hálf leik mjög skemimtilegan leik, og skoruðu 4 falleg mörk. í síðari hálfleik tóku þeir lífinu með ró, og, Þróttur sótti öllu meir. Þeim tókst að skora mark, en það var gert með aðstoð markvarðar Spel dorf, sem missti boltann á þann klaufalegasta hátt sem sézt hefur bér á Laugardalsvellinum, milli fóta sér og í markið, eftir spyrnu frá samlherja. Islandsmeistarar iR eru úr leik! klp—Reykjavík. íslandsmeistararnir í körfuknatt- leik úr ÍR, voru sem vængbrotn- ir fuglar í höndunum á Ármenn ingum x síðari hálfleik liðanna í bikarkcppni KKÍ á sunnudaginn. ÍR-ingarnir, sem léku án Þor- Steins Hallgrímssonar, sem ekk- ert hefur æft að undanförnu, höfðu 7 stig í hálfleik. í síðari hálfleik komust Ármenningar yf- ir og sigruðu í lerknum 64—56, og slógu þar méð íslandsmeistar- ana út úr keppninni. B-flið Ármanns sigraði Breiða- blik í sömu keppni 54—32, en leik KR-a og HSK var frestað. þar sem IISK-menn stóðu 1 Hrepps- nefnarkosningum fyrir austan. íþróttir Framhald af bls. 8 þótt það væri í B K sem skoraði það — markið var nefni- lega sjálfsmark, gert af tveim varnarmönnum IBK, þannig, að annar ætlaði að hreinsa frá •marki, en skaut í hinn, og þaðan skoppaði knötturinn í netið. Rétt 10 mín. síðar fékk bezti maður vallarins. Eyleifur Haf- steinsson knöttinn á miðju, sendi hann út til Guðjóns, sem gaf vel fjTÍr markið, og þar skállaði Teit- ur Þórðarson glæsilega í netið, gjörsamlega óverjandi. Hinn markheppni innherji ÍBK frá síðasta ári, Jón Ólafur, minnk aði bilið í 2—1 skömmu síðar, og var staðan þannig í hálfleik. í byrjun síðari hálfleiks voru Keflvíkingar mjög frískir, og áttu hvert tækifærið af öðru, en tókst ekki að skora. Átti Einar Guð- leifsson. sem nú lék aftur með ÍA. mikinn þátt í því, en hann átti mjög góðan leik. Þessi góði kafli ÍBK stóð í um 30 mín„ en þá tóku Skaganjenn aftur við sér. og Guðjón Guð- mundsson skoraði eftir fyrirgjöí frá Matthíasi, sem skömmu áður var kominn inn í vítateig, er hon- um var brugðið, en dómarinn sleppti þar gefinni vítasp. Aðeins nokkrum min. síðar minnka Kefl- víkingar áftur bilið jneð marki frá hinum markheppna útherja ÍBK í ár, Friðriki Ragnarssyni — en þetta var hans fjórða mark í 1. deild í ár í 4 leikjum. Síðasta orðið í leiknum átti Guðjón Guðmundsson, er hann notfærði sér ein af fáum mistök- um ÍBK-varnarinnar, og komst inn fyrir og skoraði. Eyleifur var potturinn og pann- an í öllum ieik ÍA, og var mjög góður, einnig var Guðjón Guð- mundsson, góður og er nú sýni- lega að komast í sitt fyrra form. Einar í markinu átti einnig góð- an leik, en það má raunar segja um alla leikmennn Akraness að þessu sinni. Hjá ÍBK var vörnin sem fyrr áberandi betri hluti liðsins, en framlínan í daufara lagi. Dómari í leiknum var Hinrik Lárusson, og dæmdi þokkalega vel. Guojön Styrkáksson HÆST ARÉTT ARLÖCMAÐUR AUSTURSTRÆTI t SÍMI IS3Í4 | ÁRNAD HEÍLLA I I i i 7.3 voru gefin saman í hjóna- band af séra Jakobi Jónssyni ung- frú Hansína R. Ingólfsdóttir og Magnús Ólafsson. Heimifli þeirra er að Nóatúni 30. (Stúdíó Gupðmundar, Garðastræti 2, sími 20900). 20. nóv. 1969 voru gefin saman í hjónaband í Saurbæjarkirkju, Hvalfjarðarströnd af séra Jóni Einarssyni, ungfrú Jónína Erla Valgarðsdóttri og Guðmundur Snævar Ólafsson. Heimili þeirra er á Hverfisgötu 119. (Studíó Guðmundar, Garðastræti 2, sími 20900). 17.1 voru gefin saman í hjóna- band í Laugarneskirkju af séra Garðari Svavarssyni, ungfrú Ingi- björg Möller kennari og Sigurður Harðarson, a:k. stud. (Stúdó Guömundar, Garðastræti 2, sími 20900). Óeirðir Framhald af bls. 1 manns hafi verið skotnir til bana um helgina og 200 særzt. í gær- kvöldi bættust 550 brezku her- menn við til að stilla til friðar í Belfast. en bangað eru væntan- íegir 3000 næstu daga. Dómstóll í Belfast neitaði í dag Bernadettu um eins dags frí úr fangelsinu til að vinna þingmanns eið sinn. Þann 14.3. voru gefin saman í h.jónaband í Arbaejarkirkju af sr. Bjarna Sigurðssyni, ungfrú Kristín Sigurðardóttir og Runólfur Trausta son. Heimili þeirra er á Fálka- götu 24. (Stúdíó Guðmundar, Garðastræti 2, sími-20900). Samstarf í Keflavík Framhald af bls. 1 bandalagið einn. í bæjarstjóminni eiga sæti: Af A-lista: Karl St. Guðnason og Ragnar Guðleifsson. Af B- lista: Hilmar Pétursson, Valtýr Guðjónsson og Páll Jónsson. Af D-lista: Ámi R. Árnason, Ing- ólfur Halldórsson og Tórnas Tómasson ,og af G-lista Karl Sigurbergsson. Á síðasta kjörtímabili var samstarf milli Sjálfstæðisfl. og Alþýðuflokksins í Keflavík. í hljómleikasal Framhald af bls. 6. inu eftirminnilegt öllum sem á hlýddu, og voru útlendingar þar fjölmennir og aðsókn ágæt. Ólafur V. Albertsson er vax- andi sem undirleikari, og var hans hlutur með ágætum. Að kvöldi sunnudagsins 28. júní héldu þeir Ahkenazy og Itzak Pearlmann fiðluleikari, sónötukvöld í Háskólabíó. — Pearlmann er ungur fsraels- maður, sem þegar er kominn svo langt á listabrautinni, að undrum sætir. Lífið hefur far ið um hann ómjúkum hönd- um, en sálaptyrkur og þroski hins unga manns hefur leystst úr lseðingi og magnað hæfi- leika hans til að tjá sig á þann hátt, sem aðeins stórri og næmgeðja sál er mögulegt. Efnisskrá þeirra félaga voru fiðlusónötur eftir Mozart, Beet hoven og Cesar Franck. Ætla mætti að samleikur þeirra ætti sér rætur frá barnæsku, en svo mun þó ekki vera. f gömlum ísl. sögum segir frá fólki, sem hafði hamskipti, brásérínýjan ham ef mað þurfti. Það gerði Ashkenazy í gærkvöldi.Einleilcs hamurinn hvarf, og í hans stað 22. nóv. voru gefin saman í | hjóniaband í Kópavogskirkju af séra Gunnari Ámasyni, ungfrú Kristín Káradóttir og Hláðver Ein arsson. Heimili þéirra er að Þingholts- stræti 15. (Stúdíó Guðmundar, Garðarstræti 2, sími 20900). sem andar og bærist með mót- leikara sínum. — Með frábærri tónmýkt og fáséðri bogatækni brá Pearlmann upp andblæ unaðar og skilnings í hvaða tónmynd sem var. Sameigin- lega í öllum sónötunum var hvert smáatriði slípað og fág- að, og heildarmynd þeirra fé- laga líkust litfögróttu blómi, sem vex af einum stofni. Menn segja að hin gömlu ævintýri gerist ekki lengur, það gerðist samt í gær, og gerast munu þau enn þar sem hugur fylgir tjáningu. Unnur Arnórsdóttir. Brýr endurbyggðar Framhald af bis. 1 Á Suðurlandi verður byggð 24 metra brú í tveim höfum yfir Brunná í Fljótshverfi í Vestur- Skaftafellssýslu. Yfir Hvammsá £ Mýrdal verður byggð 12 metra brú í einu hafi. Á Strandarsýki á Rangárvöllum, verður byggð 12 metra brú í einu hafi, en tvíbreið vegna umferðarþungans sem þarna er. Auk þess verða byggðar margar smábrýr á sýsluvegum. Á VÍÐAVANGI Framhald af bls. 3. félögunum við þau þjóðræknis störf, bregða birtu á framtíð- ina. Á meðan við eigum æsku, sem eykur hið gróna land, elg um við einnig falinn eld til framtíðarheilla í lífsbaráttu komandi daga“. Vissulega ér það ánægjulegt, þegar æska landsins íeggur þannig hönd á plóginn með sjálfboðavinmi við gróður Iandsins og önnur þjóðlioll störf. |». Þ. kom „Kammer“-listamannsham urinn ,sá sanni og heilsteypti,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.