Tíminn - 11.07.1970, Side 1
m
■g :r
llllllll
sbh
Ráðherrabustaðurinn í ljósum logum um tvöleytið í fyrrinótt. Til vinstri sést í Gestaskálann, sem reistur var fyrir nokkrum árum og slapp óskemmdur úr brunan-
um- Ofar á myndinni sést út yfir Þingvallavatn. (Tímamynd)
Enn ókunnugt um eldsupptök í ráöherrabústaðnum á Þingvöllum:
Forsætisráðherrahjónin og
dóttursonur þeirra fórust
Dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, frú Sigríður
Björnsdóttir, kona hans, og Benedikt Vilmundarson,
fjögurra ára, fórust í fyrrinótt, þegar ráðherrabústaður-
inn á Þingvöllum brann til kaldra kola. Fréttin um þetta
hörmulega slys kom sem reiðarslag yfir íslenzku þjóðina
og stjórnmálamenn á Norðurlöndum hafa lýst hryggð'
sinni vegna þessa atburðar.
Frásögn og myndir frá þessu hryggilega slysi eru á
blaðsíðu 3, 6 og 7 í blaðinu í dag. Einnig er dr. Bjarna
Benediktssonar minnzt í forystugrein á blaðsíðu 9.