Tíminn - 11.07.1970, Síða 10

Tíminn - 11.07.1970, Síða 10
10 TIMINN LAUGARDAGUR 11. júlí 1970. FULLT TUNGL Eftir P G Wodehouse 36 ursonur gamla vinar míns Chet Tiptons. . . — Það eruð þér búnir að seg.ia mér. . . — Og ég neita algerlegu að hórfa aðgerðarlaus á frænda Chet Tiptons eyðileggja framtíðina og láta ónotuð gullin tækifæri til að öðlast haming.iuna, af tómum klaufaskap, þar sem ég get með örfáum orðum komið öllu í lag, hlustið nú á mig væni minn, pað er óþarft að við séum að leika skollaleik, þér elskið Veroniku frænku mína. — Tipton hrökk við eins og hann hefði allt í einu fengið óþolandi kvalir, fyrst datt honum í hug að ncita þessari staðhæfingu eindregið, en um leið og hann opnaði munninn varð honum litið á myndina í tímarit- inu og hann starði á hið fagra and- lit sem blasti við sjónum, að vísu var þetta bara ' tnynd. en honum fannst sem hann sæi siálfa fyrir- myndina méð rós j munninum. svo hann gat ekki sagt eitt ein- asta orð, þess í stað var eins og honum svelgdist á, eins og bolabít, sem brjósk stendur í, og Gally klappaði föðurlega á herðar hans og sagði: — Auðvitað elskið þér hona, bað þarf ekki að ræða þá hlið málsins, þér elskið hana óskap- lega, allt nágrennið talar um ást yðar, en því í ósköpunum hagið þér yður svona furðulega? —Hvað meinið þér? hvernig furðulegá? spurði Tipton, í veikri sjálfsvörn. — Þér vitið vel hvað ég á við, margur mundi segja að þér væruð að leika yður að stúlkunni, sagði Gally og vildi engar vífilengjur. , hafa. Leika mér að henni? sagði i Tipton undrandi. — Já, leika yður að henni, og þér vitið vel hvernig heiðarlegir menn líta á svoleiðis háttalag. oft heyrði ég Chet frænda yðar fara ómildum orðum um menn sem fóru þannig að ráði sínu. sagði Gally og var fastmæltur. ..Til fjandans með Chet frænda“, var næstum hrotið út úr Tipton. en hann sá þann grænstan að halda sig við efnið og sagði því: — Jæja, ég held að megi alveg eins segja að hún sé að leika sér að mér, fyrst gefur hún mér und- ir fótinn og svo byrjar hún gamla herbragðið. eins og hver önnur Jezebel, og fer að leika tveim j skjöldum. | — Meinið þér ekki Delíu? -— Kannski, sagði Tipton. hann var ekki viss. að vísu var Gally það ekki heldur, en sagði þó: — Ég held að það hafi verið Jezebel sem hundarnir átu. —En viðbjóðslegt. sagði Tip- ton. — Já, það heíur ekki verið skemmtilegt og hlýtur að hafa ver- ið fjári sárt, — samþykkt Galiy og nú varð svipur hans strangleg- i ur um leið og hann sagði: — En I það sem máli skiptir er að þér eruð að bera frænku mjna alvar- ! legum sökum, hvað meinið þér j með þessu orðalagi. „gamla her- ! bragðið?'* — Ég nieina að hún sé að láta mig hlaupa f hringi.' — Ég skil yður ekki. — Jæja, hvað munduð þér segja ef stúlka léti alla sjá að hún teldi yður bláeygða dreng- inn sinn, og þér kæmuð svo að henni í keleríi á bekkjum, með skíthæl eins og Fredtjie. — Nú varð Gally alvarlega hneykslaður, hann sagði: — í faðmlögum á bekkjum með Freddie? — Já, ég sá þau, hann var að kyssa hana og hún var að gráta. hann meira að segja kyssti hana meira en góðu hófi gegnir. — Hvenær var þetta? — í gær. — Nú skildi hinn æruverði Galahad aiit, enda átti hann gott með að leggja saman tvo og tvo, hann spurði: —Var þetta áður eða eftir að þér svikust um að hitta hana á bak við alparunnana? —Á efiir, — sagði Tipton og gleymdi að loka munninum, hann gapti eins og sæljón sem bíður eftir öðrum fiski, svo sagði hann: — Ó, haldið þér að hún hafi ver- ið að gráta þess vegna? — Auðvitað, góði minn, þér er uð heimsmaður og vitið þvi full- vel að þér gctið ckki gengib um og beðið stúlkur að hitta yður a bak við alparunna og svikizt svo um að k.oma án þess að særa við- kvæmar tilfinningar þeirra inn í kviku, nú skilur maður samheng- ið. þegar Veronika grípur í tómt á bak við alparunnana. ba slagar hún auðvitað að næsta bekk og grætur biturlega, Freddie gengur svo framhjá henni grátándi . oCT kyssir hana eins og hver annar frændi. — Eins og frændi, haldið bér að það hafi verið svoleiðis? — Áreiðanlega. þetta hefur hann gert af tómri frændsend þau hafa þekkzt alla ævina. — Já. fólk kallaði hana litlu kærustuna hans, — sagði Tipton þunglyndislega —Hver sagði yður það? —Emsworth jarl, — sagði Tip- ton. Gally skellti í góm og sagði: — En góði minn, eitt af því fyrsta sem þér verðið að læra, ef þér ætlið að halda vitinu hér í Blandingskastala er að taka ekk- ert alvarl&ga af því sem Clarence bróðir minn segir, hann hefur talað tómt rugl í næstum sextiu ár. aldrei hef ég. heyrt nokkurn mann kalla Veroniku litlu kærust una hans Freddies. .— Hann var þó einu sinni trú- lofaður henni. — Nú vorum við það ekki aii- ir? ég meina náttúrulega ekki trú lofaðir Veroniku, heldur ein- hverri. voruð þér það ekki sjálf- ur? —Jú auðvitað, ég h^ verið trú lofaður svona sex sinnum — neyddist Tipton til að játa. — Og þessi augnabliksskot hafa enga þýðingu fvrir yður núna, eða hvað?' — Augnabliks hvað? — Ó, sleppum því. ég meina að yður er fjárans sama um þess- ar stúlkur núna. — sagði Gally. — Ég mundi nú kannski ekki segja fjárans sama. . .Það var til dæmis ein sem heitir Doris Jimp- son . . jú ef til vill. . . jú mér er fjárans sama um þær allar. — sagði Tipfon íhugandi. — Einmitt, jæja. barna sjáið þér þér þurfið ekki að hafa áhvggjur af Freddie. honum byk- ir vænt um konuna sína. — Nú kom vonarsvipur á andlitið á Tip ton og hann spurði: — Haldið þér það? — Auðvitað. h.jónaband þeirra er fullkomlega hamingjusamt, þau eru alltaí að sýna hvort öðru ástarhót. — Hó, — sagði Tipton og var hugsi um stund. svo sagði hann: — Auðvitað, frændur eru alltaf að kyssa frænkur sínar. eða er bað ekki? — Þeir eru einmitt alltaf að bví. — Og það er engin meiniag á bak við það? — Ekki hin minnsta, en segið mér góði minn, hvers vegna mætt uð þér ekki á alparunnamótið? spurði Gally, sem fannst að því fyrr sem það mál lægi Ijóst fyrir því fyrr mundi þessi málfundur bera árangur. — Ja, það er nú löng saga, — sagði Tipton. Það kom ekki oft fyrir að hinn æruverði Galahbad, varð að dást að skarpskyggni og gáfum Freddies bróðursonar síns, sem hann hafði taiið hálfvita frá blautu barns- beini, en það gerði hann á þess- ari stundu og stöðugt i ríkari mæli, eftir því sem á leið sögu Tiptons. Freddie hafði áreiðan- lega haft iög að mæla, er hann taldi óráð að láta svínið inn í svefnherbergi Tiptons Plimsoll, svo vel þekkti Gally til manna sem séð höfðu sýnir, hann hafði kynnst mörgum slíkum á langri og svallsamri ævi í höfuðborginni og vissi því vel hvað þessir menn voru viðkvæmir og fljótir að grípa til flöskunnar til að slaka á spennunni. Um það sem Tip- ton var að l.júka við söguna var Gally orðinn mjög álvarlegur á svipinn, hann sagði: — Ég skil, og andlitið gægðist á yður út úr runnanum? —Ekki nóg með að það gægð- ist, það gaf mér 'svona frekar glettnisfullt hornauga og ég held helzt að það hafi sagt „hí“ sagði Tipton, sem vildi hafa allt á hreinu. — Höfðuð þér gefið andlitirm tilefni til þessa athæfis? — Ja, ég fékk mér smásopa úr pelanum. —Aha. hafið hér þennan pela hérna hjá yður? — Já, hann er þarna í skúff- unni. Hinn æruverði Galahad leit efablandinn á skúffuna og sagði: — Væri ekki bezt fyrir yður að ég geymdi pelann fyrir yður? Tipton b.eit á vörina. Honum fannst þessi uppástunga eins og drukknandi manni væri boðið er laugardagur 11. júlí — Nabor og Felix Tungl í hásuðri kl. 19,14 Árdegisháflæöi í Rvík kl. 0,51 HEILSUGÆZIA Slökkviliðií sjúkrabifretðir. Sjúkrabifreið I Hafnarflrði síma 51336. fyr. “ ykjavík »g Kópavog síml 11100 Slysavarðstofan I Borgarspitalanuin er opin allan sólarhringinn. Að eins móttaka slasaðra Slml 8181t. Kópavogs-Apótek og Keflavfkur Apótek erc optn vtrka daga kl 9—19 langardaga kL 9—14 helea daga kl. 13—15 Almennar uppiýsingar um læfcn* þjónustu 1 trorginiu ern getnai símsvara læknafélags Reykjavtk ur, simi 13888. Fc garhe "ð i Kópavogl. Hlfðarvegi 40, stml 42644. Eópavogs-apótek og Keflavlkur apótek eru opln vtrka daga fcl. >■ —19 laugardaga kt 9—14, helgl daga tcL 13—10. Apótek Hafnarfjarðar er opið alla virka daga frá X. »—7 é taugar dögutn fcl 9—2 og á sunnudögum og öðrum helgidögum et rpið i.a kl 't—-» Tannlæknavakl er ' Hei.suvernd arstöðinni Cþai sem slysavarð stofan var) og er opim laugardag? og sunnudaga Id 5—8 e. h. Sími 22411 Kvöld- og helgarvörzlu Apóteka i Reykjavík, vikuna 11.7—17.7. ann ast Apótek Austurbæjar og Garðs Apótek. Næturvörzlu í Keflavík 11.7. og 12. 7 annast Guðjón Klemenzson. Næturvörzlu í Keflavík 13. og 14.7. annast Kjartan Ólafsson. i FLUGÁÆTLANIR ~ Loftleiðir h. f. Þorfinnur karlsefni er væntanlegur frá NY kl. 07.30. Fer til Luxem- borgar kl. 08.15. Er væntanlegur til baka frá Luxemborg kl. 1630. Fer til NY kl. 19.00. Eiríkur rauði er væntanlegur frá NY kl. 0430. Fer til Luxemborgar kl. 05.15. Er væntanlegur til baka kl. 14.30. Fer til NY kl. 15.15. Leifur Eiríksson er .væntanlec ur frá NY kl. 08.30. Fer til Oslóa’ Gautaborgar og Kaupm.h. kl 09.30. Er væntanlegur til baka k: 00.30 Fer til NY kl 01.30. Snorri Þorfinnsson er væntanleg ur frá NY kl. 09.00. Fer til Lux- emborgar kl. 0945. Er.væntanleg- ur til baka frá Luxemborg kl. 18. 00. Fer til NY kl. 19-00. SIGLINGAR Skipaútgcrð ríkisins. Hekla er á Austfjai'ðahöfnum á suður leið- Herjólfur fer til Vest- mannaeyja n. k. mánudag kl. 21. 00 Herðubreið fer n. k þrið.iudag vestur um land ti! Kópasker.s Bald ur lestar á þriðjudag til Breiðafj.- hafna KIRKJAN Laugarneskirkja. Messa kl. 11. Séra Garðar Svavars- son. Dómkirkjan. Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns. Hallgrímskirkja. Messa kl. 11. Dr. Jakob Jónsson Grensásprestakall. Messa í Safnaðarheimilinu jMiðbæ kl. ll. Felix Ólafsson. Bútsaðapreslakall. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju^kl. 10.30. Fermd verður Rósa Margret Cerisano, Árhvammi, Rafstöð. Séra Ólafur Skúlason. Hafnarfjarðarkirkja. Messa kl. 10.30. Séra Garðar Þor- steinsson. Háteigskirkja. Messa kl. 11. Séra Arngrímur Jóns son. Daglegar kvöldbænir eru í kirkjunni kl. 6.30. Séra Arngrímur Jónsson. i.angholtsprestakall. Guachiónustá kl 10.30. Séra Sig. i Guðjónsson. Vegaþjónusta FÍB, helginga 11. — 12. júlí 1970. FÍB Þingvellir, Laugarvatn. FÍB 2 Hellisheiði, Ölfus, Grímsnes Flói. FÍB 3 Akureyri og nágrenni FÍB 4 Hvalfjörður- FÍB 5 Út frá Akranesi (krana- og viðgerðabifreið) FIB 6 Út frá Reykjavík (krana- og viðgerðabifreið) FJB 8 Árnessýsla (upplýsinga- og aðstoðarbifreið) FÍB 11 Borgarfjörður. Skyndiaðstoö verður veitt á svæði Fáks við Skógarhóla. Ef óskað er eftir aðstoð vega þjónustubifreiða veitir Gufunes- radíó, sími 22384, beiðnum um að stoð viðtöku. Orlof hafnfirzkra húsmæðra verður að Laugum í Dalasýslu 31. júií — 10. ágúst. Tekið verður á móti umsóknum á skrifstofu verkakvennafélagsins Framtíðin, Alþýðuhúsinu .rnánu- daginn 13. júlí kl. 8,30 — 10 e. h. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS hf. é laugardag 11. 7 1. Hreppar — Laxárgljúfur kl. 14. 2. Þórsmörk kl. 14. Sumarleyfisferðir; 11—19. júlí Austurland 11.—23. júlí Suðausturland 14.—23. júlí Vesturland 14.—19. júli Kjfilur — Sprengis. 16,—23. júli Öræfi — Skaftafell 16.—29. júlí Hornstrandir. Ferðafélag íslands, Öldugötu 3, símar 19533 — 11798. Tónabær — Tónabær — Tónabær Félagsstarf eldri borgara. Mánudaginn 13. júlí verður farið í Sædýrasafnið í Hafnarfirði. Þátt takendur eru vinsamlegast beðnir um að hafa með sér nesti, því áætl að er a@ hafa viðkomu í Hellis- gerði og drekka þar kaffi, ef veð ur leyfir. Lagt verður af stað frá Austur- velli kl. 2. — Þátttökugjald kr. 175. Aðgangur í Sædýrasafnið er innifalið. ' Uppl. í síma 18800 frá kl. 10— 12 f. h. 7 Z 1 V 5 , ■ 1 i 1 1 o n ■ ■ n 1 1 É r m . Larétt: 1 Mánuður 5 Fugl 7 Eiturloft 9 Keyra 11 Burt 12 Keyrði 13 Óhreinka 15 Gróða 16 mann 18 Stöng. Krossgáta Nr. 578 Lóðrétt: 1 Dýr 2 Op 3 Klukka 4 Æða 6 Gljáber 8 Sigað 10 Drykkur 14 Dýr- 15 Rödd 17 Spil. Ráðning á gátu no. 577: Lárétt: 1 ísland 5 Ála 7 Fæð 9 Man 11 Ið 12 Me 13 Sal 15 Tif 16 Ýta 18 Óséður Lóðrétt: 1 ísfisk 2 Láð i A1 4 Nam 6 Hnefar 8 Æðs 10 Ami 14 Lýs 16 Tað 17 T*. 4

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.