Tíminn - 11.07.1970, Síða 14

Tíminn - 11.07.1970, Síða 14
14 TIMINN LAUGARDAGUR 11. júlí 1970. Bruninn á Þingvöllum Framhald af' bls. 7 ar hann kom fram sem fulltrúi lands síns í_ samvinnu Norð- urlandanna. Ég kynhtist Bjarna Benediktssyni persónulega nu síðustu ár, er rætt var um að auka og styrkja bessa sam- vinnu, og lærði bá að meta hann bæði sem stjórnmála- leiðtoga og mann. Ég mun sakna hans.“ Aure, forsætisráðherra Finnlands sagði í dag að norræn sam- vinna hefði verið Bjarna Bene diktssyni mjög hugleikin og hann hefði tekið bátt í starfi Norðurlandaráðs frá upphafi. Jens Otto Krag, formaSur danska Jafna3arm.fi. sagði í dag, að fráfall Bjarna Benediktssonar væri mikið áfall fyrir íslendinga, sem nú ættu við efnahagsleg og stjórn málaleg vandamál að stríða. Krag lagði einnig áherzlu á skrif Bjarna Benediktssonar til samskipta Norðurlanda inn- an Norðurlandaráðs. Opinberri heimsókn frestaS Vegna andláts dr. Bjarna Benediktssonar, forsætisráð herra, og konu hans frú Sig- ríðar Björnsdóttur verður ráð- gerðri opinberri heimsókn for- seta íslands og konu hans til Austurlands dagana 16.—22. júlí frestáð um óákveðinn tíma. Reykjavík, 10. júli 1970. Skrifstofa forseta íslands. Gusjón Stvrkársson HÆSTARÉTTARLÖCMAÐWt AUSTURSTRÆTI < SlMI II3S4 Foreldrar okkart tengdaforeldrar, amma og afi, Sigríður Björnsdóttir °9 Bjarni Benediktsson létust aðfaranótt föstudagslns 10. júlí. Biörn Bjarnason og Rut Ingólfsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Anna Bjarnadóttir, Bjarni Markússon. Sonur okkar, Benedikt Vilmundarson lézt aðfaranótt föstudagsins 10. iúli. Valgerður Bjarnadóttir, Vilmundur Gylfason. Faðir minn, Biarni Magnússon, Hraðastððum, andaðlst að Helmill sínu aðfaranótt 9. þ. m. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Guðrún Biarnadóttir. Útför Sæunnar Sumarliðadóttur frá Breiðabólstað fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 13. júii kl. 13.30. í. Jón Sumarliðason. Innilegar þakkir faarum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför konu minnar, móður okkar, tengda- móður og ömmu, Sigurbjargar Sigbjörnsdóttur Óskar Stefánsson, Sigfrid Hákonardóttir, Sigurður Hákonarson, Guðmundur Jónsson og barnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar og móður okkar, Guðrúnar Haildóru Þórólfsdóttur frá Eskifirði Þórlindur Magnússon, Þórólfur Þórlindsson, Katrín Þórlindsdóttir. Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, Sigurbjargar Sigurðardóttur, Vestmannaeyjum. Jónas Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson. Hjartans þakkir fyrlr auðsýnda samúð við andlát og jarðarför konu minnar og móður okkar, Rannveigar Sigurðsson. Valdimar Jónsson, Björn Valdimarsson, Michael Valdimarsson. Allir yfir 10 pund úr Selá í Vopnafirði Selá í Vopnafirði var opnuð um síðustu helgi og fyrstu fjóra dagana veiddust 17 laxer — allir yfir 10 pund — úr ánni, og veidd ust þeir á þrjár stengdur. Það er veiðiklúbburinn Streng- ur sem tekið hefur Selá á leigu til næstu fimm ára. Stóra-Laxá með yfir 80 laxa Áframhaldandi góð veiði í Hreppunum, sagði Kolbeinn Ing- ólfsson í viðtali við Veiðihornið í gær og sagði hann að á miðviku dagskvöldið hefðu milli 80—90 laxar verið komnir á land úr Stóru-Laxá, og hefðu þeir einkum veiðzt á efri svæðunum, þótt svo nú væri laxinn kominn um alla ána. Þynd laxanna er mjög mis- munandi, en þó mun mest veið- ast af um 8 punda laxi. 15 laxar fyrir hádegi í gær úr Elliðaánum Ágæt veiði var Elliðaánum í gær og á sex tímum þ. e. fram að hádegi í gær veiddust 15 lax- ar úr ánum og vantaði þá aðeins einn upp á að 4 laxar væru á hverja stöng Guðmundur Heiga- son húsasmiður var einn þeirra manna er þá voru við veiðarnar og fékk hann einn 14 punda, sem er þyngsti laxinn er veiðzt hefur úr ánum á sumrinu. í fyrradag komu 15 laxar upp úr ánum, og veiddi Ásgeir Ingólfs son sjónvarpsfréttamaður 6 þeirra. Voru þeir allir nema einn veidd ir úr Fossinum. Þann 4. júlí voru 120 laxar komnir á land úr Víðidalsá, og sama dag voru 105 laxar komnir úr Blöndu. Þá höfum við fengið þær frétt- ir að vel veiðist úr Ölfusánni, að minnsta kosti eru þeir sem verið hafa við veiðar þar, yfirleitt mjög ánægðir með árangurinn. — EB. Lengið sumarið Tvær skemmtiferðir með m/s Gulifossi til meginlands Evrópu Fyrri ferð: 30. sept. til 19. okt. Seinni ferð: 21. okt. til 9. nóv. Ferðizt ódýrt - Ferðizt með Gullfossi Reykjavík, Dublin, Reykjavík, Leith, Amsterdam, Amsterdam, Hamborg, Hamborg, Kaupmannahöfn, Kaupmannahöfn, Leith. Leith, Thorshavn. Allar nánari upplýsingar veitir: FARÞEGADEILD EIMSKIPS, SÍMI 21460 H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.