Tíminn - 11.07.1970, Side 16

Tíminn - 11.07.1970, Side 16
 Tjaldið á miðrl myndinni var v«l hælað niður, auk þess sem steinar voru bundnir í stögin, og jafnvel beizlin voru notuð til að halda tjaldlnu á jörðinni. (Tímam. Gunnar) Stórum og miklum dómpalli hefur verið komið fyrir í Skóg arhólum, og má segja að hann hafi bjargað miklu, því þangað var hægt að flýja undan veðr- inu. Mjög vel var búið í haginn fyrir þetta Landsmót, og er vonandi að sem flestir geti notið þeirrar skipulagning- ar og miklu vinnu, sem búið er að leggja af mörkum í því sam bandi. Er því ekki að efa að margir munu leggja íeið sína í Skógarhóla nú um helgina, enda mun þar margur fagur gripur tölta um völl, og vekja aðdáun áhorfenda. Salermshusið a Skogarholamótinu stóðst ekki hið mikla rok, sem varþar í fyrrinótt og lá á hliðinni í gærmorgun, eins og myndin sýnir. Dagskrá mótsins er mjög fjö] breytt, og margt þar um ný- mæli. Búizt við miklum mannfjölda KJ-Reykjavík, föstudag. Skógarhóiamótinu var frestað að miklum hluta í dag, en á morgun er ráðgert að setja mótið, og láta það fara fram samkvæmt áætlun, enda er veðurspá mun hag- stæðari fyrir laugardaginn en hún var í gær. Ekki verð- ur annað sagt, en ömurlegt hafi verið a ð koma austur í Skógarhóla í morgun, þegar aðeins á að gizka einn fjórði af tjöldunum, sem reist hafa verið þar undanfarna daga, stóð uppi, og mikið af fólki var flúið af staðnum. Birgðatjaldið var fokið ofan af gosdrykkjakössunum, þótt það hafi verið ramlega hælað nlður. Fréttamaöur Tímans hafði tal af nokkrum mótsgesta, sem voru á staðnum í morg- un,' og báru sig allir vel, enda ekki veðrið svo slæmt, að vel gallaður maður í góðu tjaldi, gæti hafzt við. Hafa líka H '"" A- rt r gangnamenn lent stundum í öðru eins á haustin. Mótsgestirnir sögðu að jörð hefði gránað á tjaldstæðunum í nótt, og um morguninn var snjór niður undir tjöldin á Skógarhólum. Þetta verður sem þarna gerði, er ekki ósvip að veðrinu sem varð eina nótt- ina á Hólum í Hjaltadal, er Landsmót hestamanna var hald ið þar síðast. Töluðu mótsgest ir um það að svo virtist sem þetta væru einhver álög á landsmótum hestamanna, aS þar gerði vitlaust veður ein~ hverja nóttina. sem mótið stæði yfir. Hjalti Jósefsson frá Hrafna- gili í Eyjafirði var að huga að nýföllnu tjaldi sínu er Tíma- menn bar þar að. Hjalti sagði að hann hefði komið í hópi hestamanna norðan úr Eyja- firði, og hefiðu þeir verið með 30 hesta og farið Grímstungu- heiði. Hjalti sagði að þeir hefðu verið fimm daga á leiðinni, og allt gengið vel. Hálf vont veð- ur hefði gert strax á miðviku- daginn, er þeir voru á leið suð ur, og hámarki hefði veðrið svo náð í nótt, en er við ræddum við hann var farið að lægja og rofa til. Millilandaflug 25 ára -- sjá bls. 8

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.