Tíminn - 14.07.1970, Side 1
SAMVINNUBANKINH
mmm
154. tbl. — ÞriSjudagur 14. júlí 1970. — 54. árg._
Ahranesí
CrundamfirM
Patrcksjirðl
fyiuðúrkróhi
E&íflUÍfc
Kvpasherl
Sr+ðvarjlrðf
Kejlavík
Hajnarjírdl
Reykjavik
SAMVIKN UBAMKfífN
(Tímamynd—Gunnar)
Ílll
Hópreið á hestamannamótinu á Skógarhólum.
Vel heppnaö mót
í Skógarhðlum
EB-Reykjavík, mánudag.
ic Um áttaleytið í gærkvöldi
lauk landsmóti hcstamanna að
Skógarhólum, er hófst á miðviku
dagsmorguninn. Alls munu um 10
þúsund manns hafa komið á mót-
tð, en í gær voru þar yfir 6 þús-
und manns.
ic Fór mótið yfirleitt vel fram,
þótt óveðrið aðfaranótt föstudags
ylli töluverðum erfiðleikum og
röskun á dagskrá mótsins.
ic Nokkuð bar á ölvun á föstu-
dagskvöldið og laugardaginn, og
mikil ölvun var á mótinu aðfara-
nótt sunnudags, en ekki mun það
þó hafa valdið teljandi erfiðleik-
um, og lítið um slagsmál og slys-
farir. ----
Á laugardaginn var m.a. sölusýn
ing hrossa. >á var sýning á kyn-
bótahryssum,. stóðhestum oo klár-
hestum með tölti. Þá voru kapp-
reiðar síðdegis á laugardaginn,
keppt var í milliriðlum og brokki.
Kl. 9 á laugardagskvöldið var svo
kvöldvaka fyrir þá gesti mótsins,
sem ekki fóru á dansleiki, haldna
í Minni-Borg í Grímsnesi og
Aratungu. Margt var til skemmt-
unar á kvöldvökunni, upplestur,
söngur, hljóðfærasláttur o.s.frv.
Var sæmilegt veður á laugardag-
inn, þótt hann rigndi við og
við.
I sólskini á sunnudagsmorgun-
inn hélt svo dagskrá mótsins
áfram, og var fyrst sýnt úrval
kynbótahrossa og verðlaun af-
hent. Eftir hádegið voru hópreið-
ar, riðu félagar úr hestamanna-
félögunum á hestum sínum um
völlinn i litríkum skikkjum og
öðrum einkennisklæðnaði. >á
var helgistund með séra Árna
Pálssyni frá Söðúlsholti á Snæ-
fellsnesi. Lúðrasveit Selfoss lék
síðan og þá sýndi Ragnheiður
Steingrímsdóttir og nemendur
hennar listir sínar á hestum i
úrhellisrigningu, sem þó stóð að-
eins skamma stund. >ví næst
var sýnt úrval gæðinga, og verð-
laun afhent. Síðan hófst keppni
í síðara hlaupi skeiðsins og þá var
úrslitakeppnin í kappreiðunum.
Að lokum sleit Sveinbjörn Dag-
finnsson mótinu, og hafði þá dag-
Framhaid a bls. 14
Þorsteinn a Vatnsleysu stjornar s óng
Lán til námsmanna
aukin næsta skólaár
EJ—Reykjavík,- mánudag.
Ríkisstjórnin hefur tekið
ákvarðanir um fjárveitingatil-
lögur til Lánasjóðs ísl. náms
manna 1971 og er ákvörðunin
tekin nú til þess að lánsmönn
um verði kunn væntanleg láns
aðstoð sjóðsins tímanlega fyrir
haustið og jafnframt þar sem
ákveðið er að greiða hluta
námslána og styrkja við upp-
haf skólaárs í haust, en til
þessa hafa lánin ekki verið
afgreidd fyrr en eftir miðjan
vetur.
I frétt frá menntamálaráðu
neytinu segir, að námslán séu
verulega aukin auk þess sem
nú sé enginn munur á því,
hvort um nám heima eða er-
lendis er að ræða.
, Lánahlutfall af svonefndri
„umframfjárþörf“ (mismun
heildarnámskostnaðar og eigin
tekjuöflunar námsmanna, bæði
atvinnutekna og styrkja), hækk
ar nú og verður 1971 sem hér
segir: Á 1. og 2. ári 60%. á
3. og 4. ári 65%, á 5. ári 70%,
á 6. ári 80% og á 7. ári 90%.
Engin breytitíg er á hlutfallinu
síðustu þrjú ár námsins-
í fréttinni segir, að til að
anna námslánum i samræmi
við þetta þurfi fjárráðstöfun
lánasjóðsins að vaxa úr 86
milljónum 1970 í 134,9 milljón
ir á næsta ári. Hefut ríkisstjórn
in ákveðið að beita sér fyrir
því, að þessi fjárveiting fáist.
Þá verður svoköiluðum „stór-
um styrkjum“ <?> ára styrkjum)
fjölgað á næstu fjárlögum úr
7 í 10 á næsta skó.aári.
Margrét prinsessa hingað í dag
KJ—Reykjavík, mánudag.
Margrét krónprinsessa Dana
og eiginmaður hennar Hin’rik,
munu koma á Kefla-
víkurflngvöll á morgun, en þau
verða þá á leiðinni frá Kaup
mannahöfn til Kulusuk.
Þau hjónin koma svo aftur
hingað til lands 17. júlí á leið
sinni frá Grænlandi og munu
þá stíga um borð í Skipið Thala
Dan ,sem mun flytja þau frá
Akureyri til Danmprkur
Þetta mun vera í fyrsta
sinn sem krónprinsessan kemur
til íslands. er. hún ber sem
kunnugt er. íslenzkt nafn líka,
og ennfremur er þetta í fvrsta
sinn sem hinn franski eigin
maður hennar kemur til lands-
ins.
Ra 2 á
leiðar-
enda
NTB—Bridgetown, mánudag.
Papýrusbáturinn ,Jla 2“
kom að landi á Barbadoseyj-
um í gærkvöldi, eftir 57 sól-
arhringa siglingu yfir Atlants
hafið. Með þessu telur Heyer
dahl sig hafa fært sönnur á,
að Forn-Egyptar hafi siglt á
papýrusbátum þessa leið í fom
öld. „Ra 1“ var sem kunnugt
er kominn langleiðina tfl
Barbados í fyrra, þegar
hætta varð ferðinni. Heyer-
dahl sagði, að þessi seinni
för væri hreinasta sumarfrí f
samanburði við hina.
Fnamhald ð bte. 14.
B0RTEN
KEMUR
FB—Reykjavfk, mánudag.
Tilkynnt hefur verið, að Per
Borten forsætisráðherra Noe-
egs og kona hans muni koma
til Reykjavíkur til þess að
vera viðstödd útför dr. Bjama
Benediktssonar, Sigríðar Björns
dóttur konu hans og dóttur-
sonar þeirra, sem gerð verð-
ur á fimmtudaginn. Þá hafa
einnig borizt fréttir um, að
Thestrup dómsmálaráðherra
Dana muni koma til þess að
verða við jarðarförina. Vit-
að er, að margir aðrir full-
trúar erlendra ríkja eru vænt
anlegir, þótt ekki hafi borizt
staðfestar fréttir af komu
þeirra.
Magni á strandstað.
MAGNI STRANDAÐI
VIÐ ENGEY í GÆR
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Dráttarbáturinn Magni strand
aði í dag á rifi austur af Eng-
ey. Var verið að setja niður
bauju á þessum stað, þegar
báturinn strandaði. Fjara var
þegar Magni lenti á rifinu, og
var ekki gerð tilraun til að
draga hann á dýprs vatn, því
skipverjar iðu einfaldlega eft
ir að flæddi undir skipið og
var búizt við að bað færi á
flot seint i kvöld Þama er
sandbotn og ekki var búizt
við að ncinar skemmdir væra
á Magna.
I